Kröfur í þrotabúi Primera air komnar upp í rúma 16 milljarða

Í kringum 500 fyr­ir­tæki og ein­stak­lingar hafa lýst kröfum í þrotabú flug­fé­lags­ins Primera Air. Flug­fé­lagið varð gjald­þrota á dög­unum en for­stjór­inn og stærsti eig­and­inn hefur tekið yfir rekstur ferða­skrif­stof­unnar.

Kröf­urnar á Primera air eru komnar upp í 16,4 millj­arða króna en eignir Primera eru metnar á um hálfan millj­arð. Í kringum 500 dönsk fyr­ir­tæki og ein­stak­lingar hafa lýst kröfum í þrotabú flug­fé­lags­ins. Frá þessu er greint á danska miðl­inum Jyske Vest­kysten. En tekið er fram að ekki hefur fengið stað­fest frá dönskum skipta­stjóra þrota­bús­ins hverjar end­an­legu töl­urnar um kröf­urnar og eign­irnar eru. Túristi.is greindi frá þessu fyrst íslenskra miðla.

[links] Í byrjun mán­að­ar­ins birt­ist til­kynn­ingu um það að flug­fé­lagið Primera air væri á leið í gjald­þrot. Gjald­þrota­skipti standa nú yfir en á laug­ar­dag­inn síð­asta var síðan til­kynnt að Tra­velco, nýtt eign­ar­halds­fé­lag, hefur keypt allar ferða­skrif­stofur Pri­mera Tra­vel Group, og tekið yfir skuldir við Arion banka. Stærsti eig­andi Tra­velco er Andri Már Ing­ólfs­son, sem áður var for­stjóri og stærsti eig­andi Pri­mer­a. Nýtt hlutafé í Tra­velco nemur millj­arði króna, sam­kvæmt til­kynn­ingu. Kaup­verðið er ekki gefið upp í til­kynn­ingu.

Í til­kynn­ing­unni kom fram að í kjöl­far lok­unar Pri­mera Air, töp­uðu ferða­skrif­stofur Pri­mera Tra­vel Group háum fjár­hæðum vegna fluga sem greidd höfðu verið til flug­fé­lags­ins en voru ekki flog­in. Til að tryggja rekstur ferða­skrif­stof­anna var stofnað nýtt eign­ar­halds­fé­lag með millj­arð í nýju hluta­fé, sem að stórum hluta hefur nú þegar verið greitt inn. Rekstur allra fyr­ir­tækj­anna var því fluttur undir Travelco en það félag heldur áfram óbreyttum rekstri. Öll félögin eru færð undir það félag til að ein­falda félagið og styrkja eigið fé þess eftir þessi miklu áföll. Samkvæmt til­kynn­ing­unni ætlar félagið að standa við allar skuld­bind­ingar sínar gagn­vart öllu starfs­fólki og birgjum og heldur áfram rekstri allra

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár