Travelco kaupir ferðaskrifstofur Primera og tekur yfir skuldir við Arion banka

Primera Air fór á haus­inn á dög­unum en for­stjór­inn og stærsti eig­and­inn hefur nú tekið yfir rekstur ferða­skrif­stofa.

Travelco, nýtt eign­ar­halds­fé­lag, hefur keypt allar ferða­skrif­stofur Primera Travel Group, og tekið yfir skuldir við Arion banka.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu en stærsti eig­andi Travelco er Andri Már Ing­ólfs­son, sem áður var for­stjóri og stærsti eig­andi Primera.

Nýtt hlutafé í Travelco nemur millj­arði króna, sam­kvæmt til­kynn­ingu.

Kaup­verðið er ekki gefið upp í til­kynn­ingu.

„Í kjöl­far lok­unar Primera Air, töp­uðu ferða­skrif­stofur Primera Travel Group háum fjár­hæðum vegna fluga sem greidd höfðu verið til flug­fé­lags­ins en voru ekki flogin. Kaupa varð önnur flug fyr­ir­vara­laust, til að vernda far­þega fyr­ir­tækj­anna. Til að tryggja rekstur ferða­skrif­stof­anna var stofnað nýtt eign­ar­halds­fé­lag með millj­arð í nýju hlutafé, sem að stórum hluta hefur nú þegar verið greitt inn. Rekstur allra fyr­ir­tækj­anna hefur nú verið fluttur undir Travelco Nordic A/S í Danmörku, sem hét áður Primera Travel A/S, en það félag heldur áfram óbreyttum rekstri. Öll félögin eru færð undir það félag til að ein­falda félagið og styrkja eigið fé þess eftir þessi miklu áföll. Félagið stendur við allar skuld­bind­ingar sínar gagn­vart öllu starfs­fólki og birgjum og heldur áfram rekstri allra ferða­skrif­stof­anna óbreyttum. Andri Már Ing­ólfs­son er stærsti hlut­hafi Travelco,“ segir í til­kynn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár