Primera skuldar lendingargjöld og vél var kyrrsett á Stansted

Íslenska ríkið mun tapa fjár­munum á yfir­vof­andi gjald­þroti Primera Air. Félagið skuldar Isavia vegna ógreiddra lend­ing­ar­gjalda.

MYND: Aðsend
MYND: Aðsend

Að minnsta kosti ein vél Primera Air var kyrr­sett á Stan­sted­flug­velli í Lundúnum í gær vegna ógreiddra lend­ing­ar­gjalda. Engin vél á vegum félags­ins var hins vegar á Kefla­vík­ur­flug­velli á þeim tíma. Isavia, fyr­ir­tæki sem er að fullu í eigu íslenska rík­is­ins, mun tapa fjár­munum á yfir­vof­andi gjald­þroti Primera Air. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

[links]Í til­kynn­ingu frá félag­inu í gær kom fram að engir við­skipta­vinir íslenskra ferða­skrif­stofa ættu að verða fyrir áhrifum af gjald­þrot­inu en ljóst að margir far­þegar urðu stranda­glópar í Evrópu í gær þegar starf­semi fyr­ir­tæk­isin lagð­ist af. Sam­göngu­stofa hvetur hins­vegar við­skipta­vini að leita réttar síns.
Primera Air, sem eru í eigu Andra Már Ing­ólfs­sonar, fer fram á greiðslu­stöðvun í dag eftir 14 ár í rekstri. Í til­kynn­ingu flug­fé­lags­ins kemur fram að gjald­þrotið er til komið í kjöl­far þung­bærra áfalla á síð­asta ári, m.a. missti félagið vél úr flota sínum vegna tær­ingu sem hafi í för með sér 1,5 millj­arða við­bót­ar­kostnað.

[adspot]Þá höfðu miklar hækk­anir á heims­mark­aðs­verði á olíu veru­leg áhrif á rekstr­ar­hæfi félags­ins sem og lækk­andi far­miða­verðs á öllum mörk­uðum slig­andi áhrif á rekst­ur­inn.

Flug­fé­lagið stóð þó engu síðar í upp­bygg­inu á þessu ári og átti að taka á móti 10 nýjum og sér­hönnuð Boeing flug­vélum á næsta ári en þær áttu að gera félag­inu kleift að fljúga frá nokkrum lyk­il­flug­völlum í Evrópu. Í til­kynn­ing­unni er fjallað um hversu erfitt sé að stand­ast slík áföll í því rekstr­ar­um­hverfi sem ríki á mark­að­inum og því hafi stjórn Primera tekið ákvörðun um að hætta rekstri á þessum tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár