Hröð hækkun olíuverðs sligar flugfélög

Flug­fé­lög á Íslandi eiga í vand­ræðum. Ein ástæðan er hækkun olíu­verðs sem sligar mörg félög sem ekki eru vel fjár­mögnuð. Erf­ið­leikar fyr­ir­séðir á næst­unni. Trump Banda­ríkja­for­seti er sagður hafa rætt við Salman Arab­íukón­ung og heimtað meiri fram­leiðslu.

Til­kynn­ingin um að Primera Air sé á leið í gjald­þrot, og hafi óskað eftir greiðslu­stöðvun frá og með morg­un­deg­inum, kom mörgum á óvart, enda höfðu nýlega verið sagðar fréttir af því að félagið væri að ljúka fjár­mögnun upp á 40 millj­ónir evra, um 5,5 millj­arða króna, sem átti að tryggja starf­semi félags­ins.

Lokaðar dyr

Allt kom fyrir ekki, þar sem fjár­mögn­unin gekk ekki eftir, og því varð stjórn félags­ins að óska eftir stöðvun á starf­semi þess, meðal ann­ars til að tryggja jafn­ræði við upp­gjör á skuld­bind­ingum við kröfu­hafa. Á meðal þeirra er ISAVIA, sem rekur flug­vell­ina á Íslandi, en ljóst er að félagið mun tapa fjár­munum á falli Primera Air.

Eins og fram kemur í yfir­lýs­ingu frá stjórn félags­ins, þá hafa marg­vís­legir erf­ið­leikar á und­an­förnum mán­uðum leitt til þess að félagið komst á enda­stöð. Meðal ann­ars seinkun á afhend­ingu flug­véla, en þó er ljóst að rekstur félags­ins hefur lengi staðið tæpt.

Velta félags­ins nam um 23 millj­örðum í fyrra, en helsta starfs­svæði félags­ins eru Norð­ur­lönd og Eystra­salts­lönd, og stærstu starfs­stöðvar í Danmörku og Lett­landi. Félagið hefur einnig starfað á Íslandi og flogið fyrir ferða­skrif­stofur til sól­ar­landa, ekki síst. Þá hefur félagið einnig verið með lággjalda­flug­fé­lags­starf­semi og tekið þátt í þeirri hörðu sam­keppni sem ein­kennir þann markað.

Fjandsamlegt umhverfi

Ein stærsta ástæða þess að flug­fé­lög eru mörg hver að lenda í erf­ið­leikum þessi miss­erin, er hröð verð­hækkun á olíu á heims­mark­aði. Á henni hefur skerpst veru­lega á und­an­förnum mán­uðum. Tunnan af hrá­olíu á heims­mark­aði er nú komin yfir 81 Banda­ríkja­dal og hefur hækkað um rúm­lega 40 pró­sent á fjórum mán­uðum. Hækkunin það sem af er degi í Banda­ríkj­unum er 3,17 pró­sent. Spár benda til þess að verðið muni halda áfram að hækka, og muni á næsta ári fara yfir 100 Banda­ríkja­dali á tunn­una.

Þetta gerir rekstur flug­fé­laga erf­iðan, svo ekki sé meira sagt. Sér­stak­lega er þetta við­kvæmt fyrir lággjalda­flug­fé­lög sem eru oft óvarin fyrir verð­sveiflum á olíu, líkt og til­fellið er hjá WOW Air, sem enn vinnur að fjár­hags­legri end­ur­skipu­lagn­ingu félags­ins, til þess að treysta stoð­irnar. Félagið til­kynnti um það í dag, að það myndi hætta með þrjár flug­leiðir í vetur, til Stokk­hólms, Edin­borgar og San Francisco, en það er liður í að hag­ræða í rekstri.

Icelandair hefur síðan boðað í til­kynn­ingu til kaup­hallar, um afkomu­við­vörun, þar sem EBITDA rekstr­ar­hagn­aður félags­ins verður á bil­inu 80 til 100 millj­ónir Banda­ríkja­dala á þessu ári, en sé horft til lána­skil­mála félags­ins þá þarf rekstr­ar­hagn­að­ur­inn að vera á bil­inu 90 til 95 millj­ónir Banda­ríkja­dala, svo að staðið sé við skil­mála í lána­samn­ingum.

Erfiður vetur?

Að und­an­förnu hafa fjöl­miðlar á sviði flug­rekstrar fjallað mikið um það, hversu mik­ill vandi sé far­inn að skap­ast í flug­iðn­aði vegna hækk­unar olíu­verðs. Þar á meðal er Aviation Today. Birt­ing­ar­mynd hans er þannig, að mörg flug­fé­lög fella niður áfanga­staði í áætl­unum sínum, flug­véla­kaup ganga til baka og óvissa skap­ast um sókn­ar­færin til fram­tíðar litið. Sam­keppni um verð harðnar, og flug­fé­lög verða hrædd við að hækka verð til að mæta vax­andi rekstr­ar­kostn­aði, að ótta við að við­skipta­vinir snúi baki við félög­unum.

Til við­bótar koma svo afleidd áhrif á ferða­þjón­ustu, þar sem mörg mark­aðs­svæði eru háð því að flug­sam­göngur séu góðar og fjöl­breyttar, og má segja að Ísland falli þar undir.

Verð­þróun olíu á und­an­förnum árum hefur verið afar sveiflu­kennd. Árið 2011 var hæsta verðið á tunn­unni um 130 Banda­ríkja­dalir, en það hélst hátt alveg fram á árið 2014, þegar það hrap­aði hratt niður. Það fór þá alveg niður í um 25 Banda­ríkja­dali á tunn­una, í febr­úar 2016. Síðan þá hefur það verið að þok­ast upp á við, en sér­stak­lega hratt frá því í vor.

Ein ástæða þess að olíu­verðið hefur hækkað, er minna fram­boð af olíu frá Íran á heims­mark­aði, eftir að Banda­ríkin ákváðu að beita Íran ströngum við­skipta­þving­unum og brjóta upp sam­komu­lag, sem var gert til að fá Íran til að hætta fram­leiðslu kjarn­orku­vopna. Á móti opn­að­ist fyrir olíu­sölu inn á heims­markað frá Íran.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur kvartað sáran yfir verð­hækkun olíu upp á síðkastið, þrátt fyrir að aðgerðir Banda­ríkja­stjórnar séu ein ástæða þess að verðið hefur hækkað hratt. Hann hefur farið fram á það við OPEC fram­leiðslu­ríkin - þar sem Sádí-Arabía er einna valda­mest - að þau auki fram­leiðslu, og auki þannig fram­boð og hafi áhrif á verðið til lækk­unar. Greindi AFP frétta­stofan frá því í gær að Trump hefur rætt þetta í sím­tali við Salman Arab­íukón­ung nýverið, og ítrekað þar óskir um aukna fram­leiðslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár