Samgöngustofa bendir fólki á að kanna réttarstöðu sína

Fall Primera Air hefur víð­tæk áhrif. Um 1.250 Svíar og Danir eru stranda­glópar á ferða­lögum, sam­kvæmt umfjöllun danskra og sænskra fjöl­miðla.

Sam­göngu­stofa, sem gefur út flu­rekstr­ar­leyfi og hefur eft­ir­lits­skyldu með flug­fé­lögum, hefur birt á vef­síðu sínni leið­bein­ingar fyrir fólk sem hafði bók flug með Primera Air, t.d. í gegnum ferða­skrif­stofur hér á landi.

Í til­viki Primera Air eru það dönsk og lett­nesk flug­mála­yf­ir­völd sem gefa út flug­rekstr­ar­leyfin, og því er verið að vinna að lausn mála í sam­starfi við þau. Danskir og sænskir fjöl­miðlar hafa greint frá því í dag að um 1.250 far­þegar séu stranda­glópar, meðal ann­ars á sól­ar­strand­ar­stöðum í Grikk­landi og víðar, vegna falls félags­ins.

Í leið­bein­ingum Sam­göngu­stofu segir að fólk eigi að kanna rétt­ar­stöðu sína og vera í sam­bandi við rétta aðila, til að fá end­ur­greiddar ferðir sem höfðu verið pant­aðar.

Um rétt­indi far­þega vegna rekstr­ar­stöðv­unar gildir í meg­in­at­riðum eft­ir­far­andi:

- Farþegar sem keyptu flug­miða með kredit­korti er bent á að hafa sam­band við útgef­anda þess til að kanna mögu­leika á að fá flug­mið­ann end­ur­greiddan.

- Farþegar sem keyptu ferð­ina af evr­ópskum ferða­skipu­leggj­anda, þ.m.t. íslenskum, sem seldi flug­mið­ann sem hluta af svo­kall­aðri alferð (þ.e. sam­settri ferð þar sem flug er selt ásamt gist­ingu eða öðrum þjón­ustu­þáttum) eiga rétt á heim­flutn­ingi á grund­velli sam­evr­ópskra reglna um alferðir. Farþegum er bent á að hafa sam­band við þann ferða­skipu­leggj­anda sem þeir keyptu ferð sína af.

- Farþegar kunna jafn­framt að eiga kröfu á hendur Primera Air, m.a. á grund­velli reglu­gerðar um rétt­indi flug­far­þega.

Frekari upp­lýs­ingar má sjá hér, er varða rétt­indi þeirra sem hafa pantað flug hjá félagi sem fer í greiðslu­stöðvun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár