Stjórn Primera Air: „Mikil vonbrigði“

Marg­vís­legir ófyr­ir­séðir erf­ið­leikar leiddu til þess að Primera Air er á leið í gjald­þrot.

Stjórn Primera Air segir í yfir­lýs­ingu á vef félags­ins, að marg­vís­legir ófyr­ir­séðir atburðir hafi leitt til þess að félagið er nú í leið í gjald­þrot. Í yfir­lýs­ing­unni segir að nið­ur­staðan - eftir mikla vinnu starfs­fólks við að reyna að rétta af rekst­ur­inn og styrkja fjár­hag­inn - sé „mikil von­brigði“.

Félaginu tókst ekki að ljúka brú­ar­fjár­mögnun, upp á um 40 millj­ónir evra, eða sem nemur um 5,5 millj­örðum króna, með við­skipta­banka sínum og því var ekk­ert annað í stöð­unni en að óska eftir gjald­þrota­skiptum.

Andri Már Ing­ólfs­son er for­stjóri og aðal­eig­andi félags­ins, en það hefur vaxið hröðum skrefum und­an­farin ár, en var upp­haf­lega stofnað 2003.

Félagið var með um 23 millj­arða króna veltu í fyrra, en helsta mark­aðs­svæði félags­ins eru Norð­ur­lönd. Félagið þjón­aði Íslandi einnig, en það var aðeins hluti af starf­semi félags­ins.

Í yfir­lýs­ingu stjórnar félags­ins segir að tap vegna rekst­urs í fyrra hafi verið 23 millj­ónir evra, eða sem nemur 10 millj­ónir evra, eða um 1,3 millj­arður króna. Tafir á afhend­ingu á flug­vélum hafi valdið félag­inu vand­ræðum, og magnað upp erf­iða stöðu.

Á und­an­förnum mán­uðum hafa verð­hækk­anir á olíu á heims­mark­aði leitt til mik­illa erf­ið­leika hjá mörgum flug­fé­lögum, en bæði WOW Air og Icelandair, stærstu íslensku flug­fé­lögin, hafa átt í erf­ið­leikum vegna þeirrar þró­unar.

Tunnan af hrá­olíu kostar nú um 80 Banda­ríkja­dali og hefur hækkað um 40 pró­sent á fjórum mán­uðum. Spár benda til þess að áfram­hald verði á verð­hækk­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár