Kemur til greina að Icelandair Group efni ekki til hlutafjárútboðs

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group, segir að ef salan á Icelandair Hotels gangi vel og það verði ekki frek­ari breyt­ingar á sam­keppn­isum­hverf­inu þá gæti verið að Icelandair Group efni ekki til hluta­fjár­út­boðs að svo stöddu.

Bogi Nils Bogason, for­stjóri Icelandair Group, segir að það komi til greina að Icelandair Group efni ekki til hluta­fjár­út­boðs. Í sam­tali við Mark­að­inn í dag sagði Bogi Nils að ef salan á Icelandair Hotels gangi vel og það verði ekki frek­ari breyt­ingar á sam­keppn­isum­hverf­inu þá gæti verið að Icelandair Group efni ekki til hluta­fjár­út­boðs að svo stöddu. Hann segir það koma í ljós á hlut­hafa­fundi félags­ins næst­kom­andi föstu­dag.

Upphaflega átti að auka hlutafé til að fjármagna kaupin á WOW air

Icelandair group stefndi að hluta­fjár­boði á fyrsta árs­fjórð­ungi í ár. Hins vegar var upp­lýst á aðal­fundi félags­ins að nú væri horft til fyrri helm­ings árs­ins, sam­kvæmt umfjöllun Mark­að­ar­ins. Fjár­hæðin sem safna á er 625 millj­ónir að nafn­virði, miðað við mark­aðsvirðið núna er um rúm­lega 4,4 millj­arða króna að ræða.

Í sam­tali við Mark­að­inn segir Bogi Nilsað upp­haf­lega hafi verið ákveðið að auka hlutafé Icelandir Group til að fjár­magna kaup félags­ins á WOW air. Í nóv­em­ber kom hins vegar í ljós að þau kaup gengu ekki eftir. Bogi segir að engu síður hafi Icelandair sótt um heim­ild til hlut­hafa þess efnis að auka hlutafé til að nýta til vaxtar ef breyt­ingar verði á sam­keppn­isum­hverf­inu. „Enn er stefnt að útboð­inu en við viljum fá skýr­ari mynd á það hvernig landið liggur áður en efnt verður til hluta­fjár­út­boðs“ segir Bogi Nils.

Lánið nýtt til að fjármagna skuldabréf á hagstæðari kjörum

[links]Til­kynn­t var í gær að Icelandair hefði fengið lán upp á 80 millj­ónir Banda­ríkja­dala, um 10 millj­arða króna, frá inn­lendri lána­stofnun, sem reynd­ist svo vera Lands­bank­inn. Rík­is­bank­arn­ir, Íslands­banki og Lands­bank­inn, eru nú meðal lán­veit­enda félags­ins en félagið er að miklu leyti í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Bogi Nils segir að lánið verði nýtt til að fjár­magna skulda­bréf á hag­stæð­ari kjörum. Þá sé að auk lengt í lán­inu en það sé til fimm ára. Hann segir að því muni skuldir félags­ins ekki aukast fyrir vikið.

Greint hefur verið frá því í fjöl­miðlum að vegna versn­andi afkomu á síð­asta ári og end­ur­fjár­mögnun skulda þá hafi félagið brotið gegn skil­málum í fjár­mögnun. Þá kemur fram í sam­tali Bogi við Mark­að­inn að að félagið greiddi félagið 73 millj­ónir doll­ara inn á skulda­bréfa­flokk­inn í jan­úar. Félagið muni því á skömmum tíma hafa greitt 153 millj­ónir doll­ara inn á lánið, jafn­virði 18,5 millj­arða króna.

„Þá standa 60 millj­ónir doll­ara eftir og það kemur til greina að end­ur­fjár­magna þá að fullu fyrir lok ann­ars fjórð­ungs. Við höfum nokkuð mik­inn sveigj­an­leika. Við getum veð­sett flug­vélar í okkar eigu sem eru óveð­settar og getum því stokkið til ef við­un­andi kjör bjóð­ast á mark­aðnum, “ segir Bogi í sam­tali við Mark­að­inn.

Miklar sveiflur yfir lengri tíma

Sveiflur á gengi bréfa í Icelandair hafa verið tíðar und­an­farin miss­eri. Ástæðan fyrir miklum sveiflum á gengi bréfa félags­­ins á und­an­­förnum mán­uðum má að miklu leyti rekja til tíð­inda af WOW air og rekstr­ar­erf­ið­leikum Icelandair, sem gaf út afkomu­við­var­anir á síð­asta ári þegar ljóst var að áætl­anir voru ekki að fara að stand­ast.

Mark­aðsvirði Icelandair hrundi til að mynda niður um 16 pró­sent eftir að upp­gjör félags­ins var birt snemma í febr­ú­ar, en félagið tap­aði alls 6,7 millj­örðum króna á síð­asta ári. Eigið fé Icelandair var 56,5 millj­arðar króna í lok síð­asta árs en mark­aðsvirði félags­ins við opnum mark­aða í dag var ein­ungis 39,8 millj­arðar króna. Gera má ráð fyrir því að um tæp­lega fjórir millj­arðar króna hafi skaf­ast af virð­inu það sem af er degi.

Mark­aðsvirði Icelandair fór yfir 180 millj­arða króna í apríl 2016 og því hefur virði félags­ins dreg­ist saman um rúm­lega 140 millj­arða króna á tæp­lega þremur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár