Færri komast að en vilja í stjórn Icelandair

Sjö eru í fram­boði til stjórnar Icelandair Group, en fimm eru í stjórn.

Sjö eru í fram­boði til stjórnar Icelandair Group en aðal­fundur félags­ins fer fram á morgun. Stjórnin er skipuð fimm manns og því má gera ráð fyrir spenn­andi kosn­ingu um stjórn­ar­sæti í félag­inu á morgun.

Í stjórn félags­ins í dag eru Úlfar Stein­dórs­son, for­maður, Ómar Bene­dikts­son, Heiðrún Jóns­dóttir, Guð­mundur Haf­steins­son og Ást­hildur Othars­dóttir.

Ást­hildur, sem er stjórn­ar­for­maður Marels, er ekki í kjöri til stjórnar, en aðrir stjórn­ar­menn bjóða fram krafta sína til áfram­hald­andi setu.

Í fram­boði eru auk þeirra fjög­urra fyrr­nefndu þær Guðný Hans­dóttir, Svafa Grön­feldt og Þórunn Reyn­is­dóttir.

Icelandair hefur gengið í gegnum erf­iða tíma und­an­farin tvö ár. Á síð­ustu tólf mán­uðum hefur félagið fallið um rúm­lega 43 pró­sent að mark­aðsvirði, en það nemur um þessar mundir 42 millj­örðum króna, sem er langt undir eig­in­fjár­stöðu félags­ins.

Eigið féð var í lok árs rúm­lega 470 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 56,8 millj­örðum króna.

Rekst­ur­inn hefur verið þungur und­an­farin miss­eri og blikur á lofti í íslenskri ferða­þjón­ustu eftir mik­inn vöxt á und­an­förnum árum. Tap Icelandair á fjórða árs­fjórð­ungi síð­asta árs nam um 6,8 millj­örðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár