Kauptilboð Icelandair í meirihluta ríkisflugfélags á Grænhöfðaeyjum samþykkt

Icelandair Group telur að miklir mögu­leikar séu fyrir hendi til að byggja félagið upp sem öfl­ugt tengiflug­fé­lag með Græn­höfða­eyjar sem tengi­m­ið­stöð.

Tilboð Loft­leiða, dótt­ur­fé­lags Icelandair, í 51 pró­sent hluta í rík­is­flug­fé­lag­inu Cabo Verde Airlines á Græn­höfða­eyjum, hefur verið sam­þykkt.

Und­ir­skrift kaup­samn­ings er áætluð á morgun föstu­dag­inn 1. mars, segir í til­kynn­ingu frá Icelandair til kaup­hallar.

„Icelandair Group telur að miklir mögu­leikar séu fyrir hendi til að byggja félagið upp sem öfl­ugt tengiflug­fé­lag með Græn­höfða­eyjar sem tengi­m­ið­stöð á milli heims­álfa. Mun sú reynsla og þekk­ing sem orðið hefur til í sams konar rekstri Icelandair þar með nýt­ast Cabo Verde Airlines,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Loft­leiðir Icelandic, sem er dótt­ur­fé­lag Icelandair Group, er eig­andi að 70 pró­sent hlut í Loft­leiðum Cabo Verde en aðrir hlut­hafar eiga 30 pró­sent. „Kaupin hafa óveru­leg áhrif á reikn­ings­skil Icelandair Group þar sem Cabo Verde Airlines mun ekki verða hluti af sam­stæðu­reikn­ingi Icelandair Group. Eign­ar­hlut­ur­inn verður færður á meðal hlut­deild­ar­fé­laga,“ segir í til­kynn­ingu.

Eins og greint var frá fyrr í dag hækk­aði virði Icelandair umtals­vert í dag á mark­aði, eða um rúm­lega 7,5 pró­sent. Virði félags­ins er nú um 40 millj­arðar króna, en félagið hefur gengið í gegnum erf­ið­leika í rekstri að und­an­förnu, og tap­aði félagið 6,8 millj­örðum króna á fjórða árs­fjórð­ungi í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár