Skuldabréfaeigendur WOW air gætu þurft að fallast á tugprósenta afskriftir

Full­trúar Indigo Partners krefj­ast þess að skulda­bréfa­eig­endur WOW air taki á sig tug­pró­senta afskriftir og að end­an­legur hlutur Skúla Mogensen verði minni en áður hefur verið rætt um.

Skulda­bréfa­eig­end­ur WOW air gætu þurft að sam­þykkja tug­pró­senta af­skrift­ir af höf­uð­stól bréf­anna til þess að kaup Indigo Partners í fé­lag­inu nái fram að ganga. Auk þess krefst banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lagið að end­an­legur eign­ar­hlutur Skúla Mogensen, for­stjóra og stofn­anda WOW air, í fé­lag­inu verði mun minni í kjöl­far við­skipt­anna en áður hef­ur verið rætt um. Flug­fé­lagið fékk í síð­ustu viku frest til lok mán­að­ar­ins til að ná sam­komu­lagið við Indigo Partners. Frá þessu er greint í Mark­að­inum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins, í dag.

Skuldabréfaeignendur WOW air fjárfestu fyrir 8,2 milljarða síðasta haust

Fyrir helgi var greint frá því að WOW air og banda­ríska félagið Indigo Partners ákváðu að taka sér mánuð til við­­bót­­ar, til 29. mars, til að reyna að ná sam­komu­lagi um fjár­­­fest­ingu síð­­­ar­­nefnda félags­­ins í WOW air. Skúli Mogensen fund­aði með banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lag­inu síð­asta fimmtu­dag, sem var dag­ur­inn sem frestur sem skulda­bréfa­eig­endur WOW air veittu félag­inu til þess að ná sam­komu­lagi við banda­ríska félagið rann út. Samkvæmt umfjöllun Mark­að­ar­ins voru á þeim fundi skil­yrðin um nið­ur­skrift á kröfum skulda­bréfa­eig­and­anna WOW air, sem fjár­festu fyrir sam­tals 60 millj­ónir evra eða um 8,2 millj­arða króna í skulda­bréfa­út­boði flug­fé­lags­ins síð­asta haust lögð fram. Á meðal skulda­bréfa­eig­andi er meðal ann­ars banda­ríska sjóð­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæki Eaton Vance en sjóð­ur­inn keypti skulda­bréf í útboði WOW fyrir um 10 millj­ónir evra, eða sem nemur tæp­lega 1,4 millj­arða króna

Á fund­inum lögðu full­trúar Indigo air auk þess fram þá kröfu um að Skúli afskrifi hluta af eign­ar­hlut sínum en hann fjár­festi sjálfur fyrir 5,5 millj­ónir evra í skulda­bréfa­út­boði WOW air í haust. Samkvæmt heim­ildum Mark­að­ar­ins komu kröf­urnar Skúla veru­lega á óvart og ollu honum miklum von­brigðum. En greint hefur verið frá því að for­svars­menn WOW air komust að sam­komu­lagi við leigu­sala flug­fé­lags­ins en það var talin stór hindrun í samn­inga­við­ræðum flug­fé­lags­ins við Indigo partners.

Enn­fremur gætu til við­bótar, við þær nið­ur­skriftir sem skulda­bréfa­eig­endur WOW air eru krafðir um, aðrir lán­ar­drottnar og kröfu­hafar flug­fé­lags­ins þurft að gefa eitt­hvað eftir af kröfum sínum á hendur félag­inu, sam­kvæmt heim­ild­ar­mönnum Mark­að­ar­ins. En ef við­ræður WOW air ganga ekki eftir og greiðslu­þrot blasir við flug­fé­lag­inu þá þyrfti skulda­bréfa­eigandur að óbreyttu að tapa kröfum sínum að stórum hluta.

Greint var frá því á föstu­dag­inn að Skúli hefði sett sig í sam­band við Icelandair í kjöl­far fund­ar­ins til að kanna hvort mögu­leiki væri á því að taka upp þráð­inn á nýjan leik en stjórn Icelandair til­kynnti sama dag að ganga ekki til við­ræna við flug­fé­lagið. Við­ræður WOW air og Indigo hafa staðið yfir síðan í nóv­em­ber þegar ljóst var að Icelandair ætl­aði sér ekki að kaupa WOW air. Horft hefur verið til þess að WOW geti fengið um 9 millj­arða fjár­fest­ingu frá Indigo, að upp­fylltum skil­yrð­um. WOW air tap­aði 33,6 millj­­­­ónum dala, sem jafn­­­­­­­gildir um 4,2 millj­­­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í fyrra.

Skilagreinar launagreiðenda í vanskilum bera 12,25 prósent dráttarvexti

[links]Í gær var greint frá því að WOW air hefði ekki greitt mót­fram­lag í líf­eyr­is- og sér­eigna­sparnað í þrjá mán­uði, bæði hvað varðar skyldu­ið­gjald og sér­eign­ar­sparnað, en sam­kvæmt upp­lýs­inga­full­trúa fyr­ir­tæk­is­ins von­ast félagið til þess að koma því í skil í þessum mán­uði. Um er að ræða greiðslur vegna nóv­em­ber og des­em­ber síð­asta árs auk jan­úar þessa árs en þær eru allar komnar fram yfir eindaga. WOW hefur átt í miklum lausa­fjár­erf­ið­leikum og hefur ekki getað staðið skil á fyrr­nefndum greiðslum vegna þessa.

Í Morg­un­blað­inu í dag er greint frá því að atvinnu­rek­endum sé ekki mögu­legt að aðgreina mót­fram­lag sitt og iðgjalda­greiðslur laun­þega í upp­gjöri sínu við líf­eyr­is­sjóði. Þannig geri sam­þykktir helstu líf­eyr­is­sjóða lands­ins ekki ráð fyrir því að launa­greið­endum sé kleift að standa skil á iðgjalda­greiðslum þeim sem þeir draga af launum starfs­manna sinna á sama tíma og þeir draga að greiða lög­bundið mót­fram­lag sitt á sama tíma. Þannig byggj­ast kröfur líf­eyr­is­sjóða á hendur launa­greið­endum á skila­greinum og eng­inn aðskiln­aður við inn­heimt­una gerður á mót­fram­lag­inu og iðgjalda­greiðslum laun­þega.

Þegar dráttur verður á iðgjalda­greiðslum til líf­eyr­is­sjóða stofn­ast til vaxta­kröfu sem mið­ast við drátt­ar­vexti á hverjum tíma en drátt­ar­vextir eru 12,25 pró­sent í dag, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Seðla­bank­anum. Jafn­framt er kveðið á um í sam­þykktum helstu líf­eyr­is­sjóða að skila­greinar frá launa­greið­endum telj­ist í van­skilum uns full greiðsla hennar, ásamt áföllnum van­skila­vöxtum séu inntar af hendi. Samkvæmt upp­lýs­ingum Morg­un­blaðs­ins grípa líf­eyr­is­sjóðir til ákveð­inna inn­heimtu­að­gerða þegar líf­eyr­is­ið­gjöld eru komin í 90 daga van­skil. Það er m.a. gert þar sem Ábyrgð­ar­sjóður launa ábyrgist kröfur líf­eyr­is­sjóða um líf­eyr­is­sjóðsið­gjöld til 18 mán­aða. Ekkert þak er á þeirri ábyrgð og sjóð­ur­inn gerir ekki grein­ar­mun á van­goldnu mót­fram­lagi atvinnu­rek­anda og iðgjaldi launa­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár