WOW air og Indigo Partners gefa sér mánuð í viðbót

Viðræður hafa staðið yfir í allan dag.

Óskað hefur verið mán­að­ar­fresti til við­bótar, við að klára við­ræður milli WOW air og banda­ríska félags­ins Indigo partners, sam­kvæmt til­kynn­ingu sem birst hefur á vef WOW air.

Í henni segir að reynt verði að ljúka við­ræðum fyrir 29. mars.

Frestur sem skulda­bréfa­eig­endur WOW air gáfu til að ljúka við­ræðum, átti að renna út í dag.

Fundað hefur verið í allan dag vegna við­ræðna félag­anna tveggja, í höf­uð­stöðvum WOW air, en fjár­fest­ing frá banda­ríska félag­inu er WOW air lífs­nauð­syn­leg.

Frá því í haust hefur fjár­hags­staða WOW air verið erfið, og í des­em­ber greip fyr­ir­tækið til þess að segja upp sam­tals 350 starfs­mönnum til að hag­ræða í rekstri og end­ur­skipu­leggja starf­sem­ina, á meðan við­ræður við hið banda­ríska félag stóðu enn yfir.

Hinn 81 árs gamli Bill Franke stýrir banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lag­inu og má segja að það sé undir honum komið, að fjár­fest­ingin í WOW air nái fram að ganga.

WOW a­ir tap­aði 33,6 millj­­ónum dala, sem jafn­­­gildir um 4,2 millj­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í fyrra. Á sama tíma­bili árið á undan nam tap félags­­ins 13,5 millj­­ónum dala, jafn­­virði tæp­­lega 1,7 millj­­arða króna miðað við núver­andi gengi.

Mikið er í húfi fyrir íslenskt efna­hags­líf, enda hefur WOW air verið í lyk­il­hlut­verki við upp­gang í ferða­þjón­ustu og efna­hags­lífi lands­ins, á und­an­förnum árum, og flutt til lands­ins 600 til 700 þús­und ferða­menn á ári, með til­heyr­andi marg­feld­is­á­hrifum á efna­hag lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár