Miklar sveiflur á verðmiða Icelandair - Allra augu á WOW air

Gengi hluta­bréfa í Icelandair hefur sveifl­ast mikið frá degi til dags á und­an­förnum mán­uðum.

Gengi bréfa í Icelandair hefur sveifl­ast mikið, frá degi til dags, á und­an­förnum vikum á mán­uðum en á síð­ustu við­skipta­dögum hefur verð­mið­inn á fyr­ir­tæk­inu rokið upp.

Í dag hækk­aði gengi bréfa félags­ins um 6,35 pró­sent og nemur mark­aðsvirði félags­ins nú um 42 millj­örðum króna. Á und­an­förnu ári hefur verð­mið­inn hins vegar lækkað veru­lega eða um 47 pró­sent.

Ástæðan fyrir miklum sveiflum á gengi bréfa félags­ins á und­an­förnum mán­uðum má að miklu leyti rekja til tíð­inda af WOW air, en félagið hefur frá því í haust reynt að tryggja sér fjár­magn til rekstr­ar­ins sem dugar til að tryggja fram­tíð félags­ins. Tíðindi af þessum helsta keppi­naut Icelandair, þegar kemur að flugi til og frá Íslandi, hafa mikil áhrif á mark­aði.

Rekstur Icelandair hefur gengið erf­ið­lega und­an­farin miss­eri en félagið tap­aði 6,8 millj­örðum króna á fjórða fjórð­ungi síð­asta árs.

Eins og greint var frá fyrir helgi, þá ætla WOW air og banda­ríska félagið Indigo Partners að taka sér mánuð til við­bótar, til 29. mars, til að reyna að ná sam­komu­lagi um fjár­fest­ingu síð­ar­nefnda félags­ins í WOW air.

Stjórn­völd fylgj­ast nú náið með stöð­unni, eins og greint hefur verið frá í umfjöllun Kjarnans, og það við um rík­is­stjórn, yfir­menn Sam­göngu­stofu, ISA­VIA og eft­ir­lits­stofn­anna í fjár­mála­kerf­inu, Seðla­bank­ans og FME.

Rík­is­stjórnin átti fund seinni part­inn á fimmtu­dag­inn síð­ast­lið­inn, þar sem mál­efni er tengd­ust WOW air voru meðal ann­ars rædd, þó fund­ur­inn hafi verið boð­aður af öðru til­efn­i.

Í ljósi þess að staða WOW air er metin fall­völt, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans, ef ekki tekst að útvega félag­inu fjár­magn á næstu miss­erum, þá hafa yfir­völd sett sig í þær stell­ingar að illa geti farið en vonir standa þó alltaf til þess að það tak­ist að tryggja fjár­mögnun félags­ins. Arion banki á tölu­verða hags­muni undir sem lán­veit­andi, en bank­inn hefur nú þegar farið illa út úr falli flug­fé­lags þegar Pri­mera Air fór í gjald­þrot í lok síð­asta árs.

Ljóst er að fall WOW air gæti haft víð­tækar nei­kvæðar afleið­ingar á hag­kerfi lands­ins, eins og fram hefur komið áður, og var meðal ann­ars ein sviðs­mynd stjórn­valda, sem greind var í fyrra, á þá leið að hag­vöxtur gæti farið niður um 3 pró­sent við fall félags­ins.

Und­an­farna mán­uði hefur þó tek­ist að vinna mik­il­vægan tíma til að end­ur­skipu­leggja stöð­una, bæði hjá Icelandair og WOW air, en félagið greip meðal ann­ars til sárs­auka­fullra aðgerða í des­em­ber þegar 350 starfs­menn misstu vinn­una hjá félag­inu í hag­ræð­ing­ar­að­gerð­um.

Skúli Mog­en­sen, for­stjóri og eig­andi WOW air, sagði við það til­efni að aðgerð­irnar hefðu verið nauð­syn­legar til að styrkja fjár­hag­inn og end­ur­skipu­leggja fram­tíð­ar­stefn­una, í takt við vænt­ingar og mat Indigo Partners.

Staðan í við­ræðum WOW air og Indigo er gerð að umtals­efni í umfjöllun á breska við­skipta­vefnum City AM. Þar segir að helst sé deilt um það í við­ræð­unum hversu mikið Skúli Mogensen eigi að fá stóran eign­ar­hlut í félag­inu ef Indigo ákveður að fjár­festa.

Eru heim­ild­ar­menn City AM meðal ann­ars hafðir fyrir því að staða WOW air sé alvar­leg, og það sé ekki óeðli­legt að Indigo geri kröfu um að fá stóran eign­ar­hlut, og að hlutur Skúla þynn­ist út.

WOW a­ir tap­aði 33,6 millj­­­­ónum dala, sem jafn­­­­­­­gildir um 4,2 millj­­­­arði króna, á fyrstu níu mán­uðum árs­ins í fyrra. Á sama tíma­bili árið á undan nam tap félags­­­­ins 13,5 millj­­­­ónum dala, jafn­­­­virði tæp­­­­lega 1,7 millj­­­­arða króna miðað við núver­andi gengi.

Mikið er í húfi fyrir íslenskt efna­hags­líf, eins og áður seg­ir, enda hefur WOW air verið í lyk­il­hlut­verki við upp­­­gang í ferða­­þjón­­ustu og efna­hags­­lífi lands­ins, á und­an­­förnum árum, og flutt til lands­ins 600 til 700 þús­und ferða­­menn á ári, með til­­heyr­andi marg­­feld­is­á­hrifum á efna­hag lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár