Segja frávísunartillöguna ekki vera stuðningsyfirlýsingu við formennsku Bergþórs

Frá­vís­un­ar­til­lagan sem sam­þykkt var á fundi umhverfis- og sam­göngu­nefndar í morgun sneri ein­ungis að til­lögu þess efnis að setja ætti af for­mann nefnd­ar­innar, sam­kvæmt þing­flokks­for­mönnum VG, Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks.

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Frá­vís­un­ar­til­lagan sem sam­þykkt var á fundi umhverfis- og sam­göngu­nefndar í morgun sneri ein­ungis að til­lögu þess efnis að setja ætti af for­mann nefnd­ar­innar, Bergþór Ólason en ekki lá fyrir til­laga um nýjan for­mann.

[links]Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu þing­flokks­for­manna Vinstri grænna, Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks vegna frétta af fundi umhverfis- og sam­göngu­nefndar Alþingis í morgun.

Þau telja að óvissa hafi verið um hvort til­lagan hafi verið tæk og segja að frá­vís­un­ar­til­lagan hafi ekki verið stuðn­ings­yf­ir­lýs­ing við nefnd­ar­for­mennsku Bergþórs Ólasonar.

Í til­kynn­ing­unni segir enn fremur að for­mennska í umhverfis- og sam­göngu­nefnd sé hluti af sam­komu­lagi milli meiri­hluta og minni­hluta. Samkvæmt sam­komu­lagi þing­flokks­for­manna í kjöl­far þing­kosn­inga 2017 hafi for­mennska fallið í þremur nefndum í skaut stjórn­ar­and­stöðu­flokka og for­mennska í fimm nefndum í skaut stjórn­ar­flokk­anna. Það sé á for­ræði þing­flokks­for­manna ef breyta á sam­komu­lag­inu og hafa þannig áhrif á nefnd­ar­for­mennsku.

Í fjar­veru Þórunnar Egils­dóttur og Birgis Ármanns­sonar eru starf­andi þing­flokks­for­menn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks þau Willum Þór Þórsson og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir.

Til­lögu um að Berg­þór Óla­son, þing­maður Mið­flokks­ins, myndi ekki sitja áfram sem for­maður umhverf­is- og sam­göngu­nefndar var vísað frá á fund­i ­nefnd­ar­inn­ar í morg­un. Í dag var fyrsti fundur umhverf­is- og ­sam­göngu­nefnd­ar eftir að Berg­þór tók sæti á Alþingi á ný í síð­ustu viku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár