Rósa Björk reið yfir karlrembunni á Alþingi

Til­lögu um að Berg­þór Óla­son, þing­maður Mið­flokks­ins, myndi ekki sitja áfram sem for­maður umhverf­is- og sam­göngu­nefndar var vísað frá á fund­i ­nefnd­ar­inn­ar í morg­un. Rósa Björk er ekki sátt við útkom­una.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður Vinstri grænna.
Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, seg­ist vera reið yfir karl­rembunni á Alþingi á Twitter-síðu sinni í dag en til­lögu um að Berg­þór Óla­son, þing­maður Mið­flokks­ins, myndi ekki sitja áfram sem for­maður umhverf­is- og sam­göngu­nefndar var vísað frá á fund­i ­nefnd­ar­inn­ar í morg­un.

[links]Í dag var fyrsti fundur umhverf­is- og ­sam­göngu­nefnd­ar eftir að Berg­þór tók sæti á Alþingi á ný í síð­ustu viku eftir að hafa tekið sér leyfi frá störfum eftir Klaust­ur­málið.

Rósa Björk segir á Twitter að „klaust­urs­for­mað­ur­inn“ hafi mætt án nokk­urs fyr­ir­vara. „Við bárum upp til­lögu um að kjósa hann í burtu. Meiri­hluti nefnd­ar­innar með stuðn­ingi tveggja Klaust­urs­þing­manna kaus gegn því ...“ segir hún.

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, lagði fram til­lögu með stuðn­ingi Hönnu Katrínar Frið­riks­son, for­manns þing­flokks Við­reisn­ar, og Rósu Bjarkar um að greidd yrðu atkvæði um for­mann nefnd­ar­innar en þeirri til­lögu var vísað frá af meiri­hluta nefnd­ar­inn­ar.

Jón Gunn­ars­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, lagði fram frá­vís­un­ar­til­lög­una en að sögn Helgu Völu í sam­talið við Vísi í morgun var hún studd af Líneik Önnu Sæv­ars­dótt­ur, þing­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, Vil­hjálmi Árna­syni, þing­manni Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Ara Trausta Guð­munds­syni, þing­manni VG, og þeim Berg­þóri og Karli Gauta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár