„Mér finnst að þeir eigi bara að taka sökina“

Sigrún Magn­ús­dóttir, fyrrum umhverf­is­ráð­herra, segir við­brögð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Gunnars Braga Sveins­sonar við Klaust­ur­mál­inu barna­leg.

Sigrún Magnúsdóttir
Sigrún Magn­ús­dóttir Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigrún Magn­ús­dóttir, fyrrum umhverf­is­ráð­herra, segir við­brögð Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Gunnars Braga Sveins­sonar við Klaust­ur­mál­inu barna­leg og sömu­leiðis fyrrum sam­herja þeirra úr Fram­sókn­ar­flokknum. Henni líði illa yfir mál­inu en seg­ist hún ekki vilja taka afstöðu til þess hvort þing­menn­irnir eigi að segja af sér. Þetta kemur fram í frétt Rúv en Sigrún var við­mæl­andi í Viku­lok­unum á Rás 1 í morgun.

Sigrún segir að það sé líka erfitt að horfa upp á það að þing­menn­irnir væru að benda út og suður. „Mér finnst að þeir eigi bara að taka sök­ina. Þetta var mjög alvar­legur atburður sem gerð­ist á þessum fræga bar.“

„Manni líður mjög illa yfir þessu öllu saman. Ég vann mest með Sigmundi Davið og dáði hann fyrir margra hluta sakir. Þetta hefur bara verið erf­iður tími. Mér finnst þeir of reiðir út í allt og alla,“ segir hún.

Sigrún kveðst minn­ast orða móður sinnar úr bernsku sem sagði að ef fólk gerði eitt­hvað af sér þá þýddi ekki að benda á aðra sem hefðu gert það sama. Hver og einn bæri ábyrgð á sinni hegðun. „Mér finnst þetta kannski pínu­lítið barna­legt, við­brögðin þeirra,“ segir Sigrún.

Hún bendir á að Alþingi sé ekki venju­legur vinnu­staður og að hún vilji ekki taka afstöðu til þess hvort téðir þing­menn­irnir eigi að segja af sér. Alþing­is­menn séu kosnir í frjálsum kosn­ingum og hafi kjós­endur á bak við sig og á meðan þeir styðji við­kom­andi séu þeir enn þing­menn. Hún hafi trú á því að allir geti bætt sig, þannig gangi lífið, að fólk reyni að gera betur í dag en í gær. „En mér finnst að við­brögðin mættu vera betri og að þeir eigi að hætta því að vera reiðir út í allt og alla og reyna að njóta þess sem gott er og sýna það,“ segir hún.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár