Gunnar Bragi ætlar að snúa aftur á þing í dag

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, hefur sent frá sér til­kynn­ingu þar sem hann greinir frá því að hann muni snúa aftur á þing í dag.

Gunnar Bragi Sveins­son, vara­for­maður Mið­flokks­ins, mun snúa aftur til þing­starfa í dag. Frá þessu greinir hann í til­kynn­ingu. Hann segir að stundum sé ákvarð­anir teknar fyrir menn. „Fremur óvænt – en samt ekki - blasir svarið við því hvenær rétt sé að snúa til baka. Fyrstu dagar þing­funda á nýju ári, og fram­ganga for­seta Alþingis að und­an­förnu, er með þeim hætti að annað er óhjá­kvæmi­legt en að nýta sér allan rétt til þess að vera inni á þeim leik­velli þar sem að mér er sótt og svara fyrir mig á þeim vett­vangi en ekki utan hans. Þess vegna mæti ég á nýjan leik til starfa minna á Alþingi í dag.“

Í til­kynn­ing­unni segir hann að í kjöl­far „óvið­eig­andi og sær­andi orða og ólög­mætrar upp­töku á þeim þá tók ég þá ákvörðun að taka mér launa­laust leyfi frá þing­störfum eftir að hler­un­ar­málið umtal­aða komst í hámæli. Ég vildi skoða hug minn, safna kröftum og ræða síðan við bak­land mitt. Ég iðr­ast og hef beðist fyr­ir­gefn­ingar á orðum mínum og geri það enn á ný.

Ég hef leitað ráð­gjafar og um leið notið mik­ils skiln­ings og stuðn­ings ætt­ingja, vina og félaga innan flokks og utan. Þakka ég þeim hvatn­ing­una og traustið.“

[adspot]Gunnar Bragi segir að Mið­flokk­ur­inn hafi gefið sér það svig­rúm sem hann hafi óskað eftir og hvorki hvatt né latt sig til að flýta end­ur­komu. „Vel má skilja það hlut­leysi sem vís­bend­ingu um að hvorki ég né aðrir væru ómissandi fyrir flokk­inn og undir það tek ég heils­hugar. Ég var á hinn bóg­inn kos­inn til starfa á Alþingi af fjölda fólks og gagn­vart því ber ég ríkar skyldur. Þær vildi ég að sjálf­sögðu rækja á nýjan leik í fyll­ingu tím­ans. Þakka ég þeim fjöl­mörgu stuðn­ings­mönnum sem hafa sett sig í sam­band við mig og minnt mig á þessar skyldur mínar og hvatt mig til starfa.“

Ástæða þess að Gunnar Bragi fór í leyfi er Klaust­ur­málið svo­kall­aða. Það snýst um það þegar sam­töl fjög­urra þing­manna Mið­flokks­ins, þar með talin öll stjórn hans, og tveggja þing­manna Flokks fólks­ins voru tekin upp. Í sam­töl­unum var fjöl­mörgum stjórn­mála­mönnum og ýmsum öðrum nafn­greindum ein­stak­lingum úthúðað með niðr­andi orða­lagi. Tveir þing­menn Mið­flokks­ins, Gunnar Bragi Sveins­son og Berg­þór Óla­son, voru í kjöl­farið sendir í leyfi en hinir tveir, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, sögðu fljótt að þeir ætl­auðu ekki að segja af sér.

Hinir tveir þing­menn­irnir sem voru á Klaustri, Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son, voru reknir úr Flokki fólks­ins og sitja nú sem óháð­ir. Þeir ætla heldur ekki að segja af sér þing­mennsku.

Bergþór ætlar líka að snúa til baka

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, sögðu fljótt að þeir ætl­uðu ekki að segja af sér.

[links]Berg­þór Óla­son greindi frá því í morgun að hann ætli að halda áfram að starfa sem þing­mað­ur. Hann mun því snúa aftur til starfa innan tíð­ar. Þetta kom fram í grein sem hann skrifar í Morg­un­blaðið í dag.

Þar fór hann yfir Klaust­ur­málið svo­kall­aða og eft­ir­mála þess. Berg­þór sagði margt hafa komið illi­lega við sig í mál­inu. „Mér fannst vond þróun að legið væri á hleri þegar annað fólk talar saman á veit­inga­hús­um. Mér fannst vont að fjöl­miðlar teldu sjálf­sagt að birta slíkt drykkju­raus opin­ber­lega og eig­in­lega enn verra hversu margir voru ánægðir með hvorttveggja. En verst af öllu fannst mér að heyra í sjálfum mér.“

Hægt er að lesa umfjöllun um grein Bergþórs hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár