Bergþór ætlar að snúa aftur á þing – Miður sín yfir mörgu sem hann sagði

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins segir það vonda þróun að legið sé á hleri og að upp­takan af Klaustri sé ólög­leg. Verst af öllu hafi honum þó þótt að heyra í sjálfum sér á upp­tök­unni. hann ætlar ekki að segja af sér þing­mennsku.

Bergþór Ólason
Bergþór Ólason Mynd: Bára Huld Beck

Bergþór Ólason, þing­maður Mið­flokks­ins sem verið hefur í launa­lausu leyfi frá því í lok nóv­em­ber, hyggst halda áfram að starfa sem þing­maður. Hann mun því snúa aftur til starfa innan tíðar. Þetta kemur fram í grein sem hann skrifar í Morg­un­blaðið í dag.

Þar fer hann yfir Klaust­ur­málið svo­kall­aða og eft­ir­mála þess. Bergþór segir margt hafa komið illi­lega við sig í mál­inu. „Mér fannst vond þróun að legið væri á hleri þegar annað fólk talar saman á veit­inga­húsum. Mér fannst vont að fjöl­miðlar teldu sjálf­sagt að birta slíkt drykkju­raus opin­ber­lega og eig­in­lega enn verra hversu margir voru ánægðir með hvorttveggja. En verst af öllu fannst mér að heyra í sjálfum mér.“

Hann seg­ist hafa margt við upp­tök­una og ýmis við­brögð við henni að athuga og að það sé athygl­is­vert hversu hart sé barist gegn því að fjórir þing­menn Mið­flokks­ins fái aðgang að gögnum sem til séu og geti sýnt „ hvernig var í raun staðið að því að hlera sam­tal okkar.“ Þing­menn­irnir hafa reynt að fá slíkan aðgang með því að fara með málið fyrir dóm­stóla, en án árang­urs.

Bergþór segir upp­tök­una vera ólög­mæta, að hún sé klippt saman og margt sé tekið úr sam­hengi. Ekkert af þessu séu þó eins slæmt og sumt af því sem hann sjálfur sagði þetta kvöld. „Í mínum huga er aðal­at­riðið að margt af því sem ég hef greini­lega sagt þetta kvöld er að mínu mati til skammar, ekki aðeins sleggju­dómar og fárán­legar hug­leið­ingar heldur einnig stundum með orð­bragði sem kemur mér mjög illi­lega á óvart að ég hafi notað. Þegar mér varð ljóst hvernig ég hafði í raun talað við félaga mína þetta kvöld ákvað ég að taka mér launa­laust leyfi frá þing­mennsku minni. Ég vildi ná áttum og horfa í speg­il­inn á þennan mann sem þarna hafði talað með orð­bragði sem ég hefði ekki getað ímyndað mér að hann ætti til. Um þetta hef ég síðan átt í sam­tali við bæði sjálfan mig og marga sem meira vita. Ég hef talað við áfeng­is­ráð­gjafa og leitað aðstoðar sál­fræð­ings og ég hef átt löng og hisp­urs­laus sam­töl við þá sem lengi hafa þekkt mig. Ég er miður mín yfir mörgu sem ég sagði þetta kvöld og sér­stak­lega yfir því að orð mín hafi orðið til þess að særa fólk, sem ég hef aldrei viljað særa, en varð skilj­an­lega sárt þegar upp­taka af sam­tal­inu var spiluð fyrir alþjóð.“

Bergþór seg­ist bera ábyrgð á eigin orðum og finnst virki­lega leið­in­legt að hafa látið þau verstu þeirra falla. “Í okkar fámenna hópi á veit­inga­hús­inu voru þessi orð ósmekk­legt en mein­ing­ar­laust raus yfir glasi, sem engan særði. Það var ekki okkar ákvörðun að þau skyldu borin á borð fyrir alla þjóð­ina. Í kosn­ing­unum haustið 2017 var ég kjör­inn á þing og í þing­störfum mínum hef ég reynt að berj­ast fyrir hags­munum fólks­ins í því kjör­dæmi sem ég til­heyri og fyrir þeirri stefnu sem flokkur minn bygg­ist á. Ég hyggst gera þetta áfram eftir bestu getu. Ég fagna hverjum þeim sem vill eiga við mig sam­starf um raun­veru­leg brýn mál­efni en mun ekki erfa það við neinn sem fer aðrar leiðir.“

Sex þingmenn á Klausturbar

Klaust­ur­málið snýst um það þegar sam­töl fjög­urra þing­manna Mið­flokks­ins, þar með talin öll stjórn hans, og tveggja þing­manna Flokks fólks­ins voru tekin upp. Í sam­töl­unum var fjöl­mörgum stjórn­mála­mönnum og ýmsum öðrum nafn­greindum ein­stak­lingum úthúðað með niðr­andi orða­lagi. Tveir þing­menn Mið­flokks­ins, Gunnar Bragi Sveins­son og Bergþór Ólason, voru í kjöl­farið sendir í leyfi en hinir tveir, Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Anna Kolbrún Árna­dóttir, sögðu fljótt að þeir ætl­auðu ekki að segja af sér.

Nú liggur fyrir að Bergþór ætlar heldur ekki að gera það en Gunnar Bragi hefur ekk­ert tjáð sig frá því að hann fór í leyfi.

Hinir tveir þing­menn­irnir sem voru á Klaustri, Ólafur Ísleifs­son og Karl Gauti Hjalta­son, voru reknir úr Flokki fólks­ins og sitja nú sem óháðir. Þeir ætla heldur ekki að segja af sér þing­mennsku.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, skrif­aði harð­orða grein í Morg­un­blaðið um for­seta Alþingis, Stein­grím J. Sig­fús­son, fyrr í vik­unni og sagði með­ferð Alþingis á Klaust­ur­mál­inu vera póli­tísk rétt­ar­höld. Stein­grímur væri að nota málið til að hefna sín á sér. Degi síðar fór hann í útvarps­við­tal á Bylgj­unni og sagði Stein­grím þar vera einn mesta popúlista íslenskra stjórn­mála­. ­Sig­mund­ur Da­víð hefur haldið því fram að Stein­grímur sé að brjóta ­þing­skap­a­lög ­með til­lögu sinni um að skipa nýja for­sætis­nefnd. Hann segir að við­horf Stein­gríms í sinn garð sé vel þekk og hann telur að póli­tík, popúl­isma og per­sónu­leg óvild ­Stein­gríms sé ástæða þess að for­seti þings­ins noti nú aðstöðu sína til að fara í prí­vat her­ferð ­gegn Sig­mund­i. 

Nýir vara­for­setar hafa verið kjörnir í for­sætis­nefnd og þeir munu taka ákvörðun um hvort vísa eigi Klaust­ur­mál­inu til siða­nefndar þings­ins. Þau eru Haraldur Bene­dikts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, og Steinunn Þóra Árna­dóttir, þing­maður Vinstri grænna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár