Sáðfrumur spila stærra hlutverk í fósturláti en áður var talið

Nýjar rann­sóknir eru að breyta við­horfi til orsaka fóst­ur­láta. Um 60 pró­sent þeirra stafa af erfða­galla sem bendir til þess að sáð­frumur spili þar hlut­verk.

Flestir gera sér lík­lega grein fyrir því að hvert fóstur sem til verður í gegnum kyn­mök karls og konu er sam­sett úr erfða­efni beggja ein­stak­linga. Þrátt fyrir þetta hefur ástæða fóst­ur­láts almennt verið tengt við kon­una sem gengur með barnið fremur en karl­mann­inn. Nýjar rann­sóknir á þessu sviði eru að breyta þessu við­horfi með því að sýna fram á hlut­verk sáð­frumna í fóst­ur­látum.

Raunin er sú að um 60% fóst­ur­láta stafa af erfða­galla sem bendir til þess að sáð­frumur spili hlut­verk. Vís­inda­menn við Imperial College í London birtu nýverið grein í tíma­rit­inu Clinical Chemistry sem fjallar um einmitt þetta.

Gæði sáðfrumna mikilvæg

Alls var sæði 110 karl­manna rann­sakað. 50 þeirra áttu það sam­eig­in­legt að eiga maka sem hafði misst fóstur þrisvar sinnum eða oftar. Hinir karl­menn­irnir áttu maka sem ekki höfðu misst fóstur svo vitað væri.

Í ljós kom að í sáð­frumum þeirra karla sem áttu maka sem misst höfðu fóstur var að finna tvisvar sinnum meira galla í erfða­efni sáð­frumna þeirra.

Þessar nið­ur­stöður gefa til kynna að hjá pörum sem glíma við end­ur­tekin fóst­ur­lát sé mik­il­vægt að kanna gæði sæðis hjá karl­mann­inum ásamt þeim rann­sókn­unum sem konan gengur sjálf í gegnum til að reyna að varpa ljósi á vand­ann.

Staðfesta niðurstöður eldri rannsókna

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sýnt er fram á mik­il­vægi heil­brigðs sæðis. Meðal ann­ars hafa fyrri rann­sóknir sýnt fram á að sáð­fruman spili hlut­verk í myndun fylgj­unnar sem sér um að færa fóstr­inu súr­efni og nær­ing­ar­efni.

Rann­sóknir hafa að auki sýnt fram á að ofþyngd og hærri aldur karl­manna geta haft áhrif á gæði sáð­frumn­anna sem þeir fram­leiða. Þetta var einmitt raunin í rann­sókn­inni sem hér er rætt um. Þeir karl­menn sem áttu maka sem misst höfðu fóstur voru lík­legri til að vera eldri og þyngri en þeir sem áttu maka sem ekki höfðu misst fóstur.

Það er í raun merki­legt að þetta við­fangs­efni sé ekki betur þekkt en raun ber vitni. Aukinn skiln­ingur á þessu sviði munu á kom­andi árum von­andi gefa betri mynd af því hvað veldur síend­ur­teknum fóst­ur­látum hjá pörum og hvernig hægt sé að koma í veg fyrir þau.

Fréttin birt­ist fyrst á Hvatinn.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hvatinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár