Segist sjá einna mest eftir því að hafa ekki látið Lilju vita

Lilja Alfreðs­dóttir vissi ekki af end­ur­komu tveggja þing­manna Mið­flokks­ins fyrr en á þing­fundi í morgun. Gunnar Bragi Sveins­son seg­ist sjá einna mest eftir því að hafa ekki látið hana vita.

Gunnar Bragi Sveinsson
Gunnar Bragi Sveins­son Mynd: Bára Huld Beck

Gunnar Bragi Sveins­son þing­maður Mið­flokks­ins segir að hann sjái einna mest eftir því að hafa ekki látið Lilju Alfreðs­dóttur mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra vita af því að hann hygð­ist snúa aftur á Alþingi í dag. Þetta kemur fram í frétt Vísis í dag.

[links]Lilja vissi ekki af end­ur­komu Gunnars Braga og Bergþórs Ólasonar, þing­manna Mið­flokks­ins, fyrr en hún sá þá í þing­sal í morgun.

„And­rúms­loftið hefur oft verið erfitt á þingi síðan ég byrj­aði fyrir um tíu árum síðan. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem er lág­skýjað á Alþingi. Við hins vegar þurfum að vinna hér að ákveðnum málum, það er það sem við eigum að gera, við eigum að hafa okkur yfir það hvað okkur finnst um hvort annað. Ég get örugg­lega sagt það að það eru ekki allir þing­menn sem ég er sér­stak­lega hrif­inn af hér, and­stæð­ingar mínir, en ég ætla samt að vinna með þeim því það er okkar skylda,“ segir Gunnar Bragi í sam­tali við frétta­stofu Stöðvar 2.

Gunnar Bragi og Bergþór til­kynntu í morgun að þeir myndu taka sæti á þingi og tóku þeir þátt í þing­störfum í dag. Meðal ann­ars voru þeir við­staddir óund­ir­búnar fyr­ir­spurnir.

Lilja segir í sam­tali við RÚV í dag afar mik­il­vægt að þing­störf haldi áfram og þeir sem hlut eigi að máli í Klaust­ur­mál­inu fari ekki með dág­skrár­valdið þar.

Athygli vakti á Alþingi í morgun þegar Lilja stóð upp úr sæti sínu tvisvar, með tæp­lega tveggja mín­útna milli­bili, og hvísl­aði ein­hverju að Gunnari Braga. Skömmu seinna yfir­gaf Lilja þingsal­inn, eins og sjá má á mynd­bandi í frétt RÚV frá því fyrr í dag.

Í sam­tali við Stöð 2 vildi Gunnar Bragi ekki gefa upp hvað honum og Lilju fór á milli á þing­fund­inum en fyrr í dag hafði hún sagt við RÚV að skila­boð hennar til Gunnars Braga hefðu verið að hún væri ekki sátt við þessa fram­komu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár