Mikilvægasti vinnutíminn á hverjum vinnustað er í kaffitímaspjallinu. Að borða saman er veigamikil félagsleg athöfn sem bætir tengsl þeirra sem saman koma. Þar til viðbótar eru þessir afmörkuðu og óformlegu fundir samstarfsfólks á kaffistofunni skilvirkasta leiðin til að miðla reynslu, upplýsingum og hugmyndum, koma á framfæri kvörtunum og stinga upp á úrbótum.
[links]Vinnustaður sem á ekki góða kaffistofu er ekki góður vinnustaður.
Á góðum vinnustað vinnur fólk sem deilir sameiginlegum áhuga á viðfangsefnum vinnustaðarins. Það þarf ekki að vera svo að fólk tali bara um vinnuna í kaffitímunum og á endilega ekki að vera svo. Allir tímarnir sem fara í að spjalla um daginn og veginn, spyrja ráða og miðla reynslu af matreiðslu, barnauppeldi og bílaviðgerðum eða segja sögur af sveitungum og ferðalögum, allir þeir tímar virkja tengslamyndun samstarfsfólksins og tilfinninguna fyrir að vera hluti af heild.
[adspot]Sérhver vinnustaður er samstarfsverkefni allra þeirra sem þar vinna. Þegar fólk sér sig og samstarfsfólk sitt sem samherja á vinnustað þá er það af því það hefur sjálft áhuga á starfi sínu og deilir þeim áhuga með áhugasömu samstarfsfólki. Þá verður til samtal um stórt og smátt í starfinu, þar miðlast upplýsingar um framgang verks, biluð tæki, tillögur að úrlausnum, áminningar um það sem þurfi að gæta að, hugmyndir um nýjungar, lausnir á samskiptavanda, hvatning, hrós og skammir yfir því sem miður hefur farið. Áhugasamt fólk sækir sér líka upplýsingar utan vinnustaðarins og á kaffistofunni miðlar það reynslu frænda síns eða frú Gúgglu um framleiðsluaðferðir, tækninýjungar, uppeldiskenningar, kennsluefni, vísindarannsóknir, ræstingavörur og markaðstækifæri.
Góðir stjórnendur eru þátttakendur á kaffistofunni og kunna að nýta hana bæði til að hlusta og til að miðla. Þess vegna á kaffistofan að vera sameiginlegt rými allra starfsmanna, stjórnenda, sérfræðinga og allra hinna. Mikilvægasta aðsetur þróunardeildar vinnustaðar er kaffistofa hans. Með góðri kaffistofu má spara heilmikinn tíma í undirbúning formlegra starfsmannafunda og samanlögðum tíma allra þeirra sem sitja þá. Á kaffistofunni kemur líka svo margt fram sem aldrei kæmi fram á formlegum starfsmannafundi af því form þeirra hentar ekki öllum.
Sú tillaga SA að mæta kröfum um styttingu vinnutíma verkafólks með því að stytta kaffitímana eða fella þá alveg niður, kemur frá stjórnendum sem kunna ekki að vinna. Fólk sem kann ekki að vinna á ekki að fást við að stjórna vinnustöðum. Það endar bara á því að reita hár sitt og ráða almannatengil til að skrifa fyrir sig afsökunarbréf sem endar á VÁ!
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.




















































Athugasemdir