Kalla eftir verulegri hækkun húsaleigubóta í aðdraganda fyrirséðra leiguhækkana

Hlutfall heim­ila sem búa íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað hefur auk­ist á síð­ustu árum en kostn­að­ur­inn telst íþyngj­andi ef hann fer yfir 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum. Staða leigj­enda er afleit að mati Eflingar en fyr­ir­séð er að leiga hækki kröft­ug­lega í ár.

Hækka þarf húsa­leigu­bætur umtals­vert og veita alvöru við­nám gegn „taum­lausum hækk­unum“ leigu­verðs að mati Eflingar. Bent er á það í nýjum Kjara­f­réttum Eflingar að árið 2021 greiddu leigj­endur að með­al­tali 45 pró­sent ráð­stöf­un­ar­tekna sinna í leigu en hús­næð­is­kostn­aður telst íþyngj­andi fari hann yfir 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum. Þá býr 27 pró­sent fólks á leigu­mark­aði við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað.

Hlutfall leigj­enda sem býr við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað hefur lækkað lít­il­lega á síð­ustu árum, hlut­fallið var 28,4 pró­sent árið 2019 og 27,6 pró­sent árið 2020. Nú er hins vegar við­búið að hlut­fallið fari aftur hækk­andi. „Þó dregið hafi úr hækkun leigu á meðan Kóvid far­ald­ur­inn gekk yfir þá er hækkun leigu nú þegar hafin á ný og fyr­ir­séð að hún verður kröftug þegar auk­innar eft­ir­spurnar eftir leigu­hús­næði fer að gæta frá inn­fluttu vinnu­afli og auknum fjölda ferða­manna,“ segir í Kjara­f­réttum. [links]

Þar kemur einnig fram að rúm­lega 20 pró­sent heim­ila séu á leigu­mark­aði, þar af að mestu leyti lág­tekju­fólk. „Leigu­mark­að­ur­inn hefur því lengi verið með tals­vert óör­yggi fyrir leigj­endur og miklar hækk­anir á leigu. Á síð­ustu 10 árum hefur leiga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 102%, langt umfram það sem sést hefur í Evrópu. Ekki hefur verið vilji hjá stjórn­völdum til að setja hömlur á hækkun leigu­verðs, þó því hafi verið lofað við gerð Lífs­kjara­samn­ings­ins 2019.“

Of margir búi við óhóflega leigubyrði

Hlutfall leigu­greiðslna af ráð­stöf­un­ar­tekjum hefur hækkað úr 40 pró­sentum árið 2019 upp í áður­nefnd 45 pró­sent árið 2021. Þar að auki greiðir tals­verður fjöldi leigj­enda óhóf­lega stóran hluta ráð­stöf­un­ar­tekna sinna í leigu, að því er fram kemur í frétta­bréfi Eflingar. Mest er leigu­byrðin hjá þeim sem leigja hjá einka­reknum leigu­fé­lögum en sam­kvæmt leigukönnun Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) frá því í nóv­em­ber í fyrra greiddi hátt í helm­ingur leigj­enda sem leigja af slíkum leigu­fé­lögum meira en 50 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu. Þar af greiddi 31 pró­sent þeirra á bil­inu 50-69 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu en 13 pró­sent greiddu 70 pró­sent eða meira af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu. 32 pró­sent leigj­enda á stúd­enta­görðum greiða meira en 50 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í leigu. Hjá leig­endum sem leiga íbúður af sveit­ar­fé­lögum greiða 29 pró­sent meira en helm­ing ráð­stöf­un­ar­tekna sinna í leigu.

„Almennt er allt of stór hluti leigj­enda með óhóf­lega leigu­byrði, einnig þeir sem eru í félags­legu hús­næði sveit­ar­fé­laga. Talað hefur verið um að æski­legt sé að leiga fari ekki yfir 25% af ráð­stöf­un­ar­tekjum, en þegar með­al­talið fyrir leigj­enda­hóp­inn allan er 45% og umtals­verðir hópar fara upp í 70% eða jafn­vel meira þá er ófremd­ar­á­stand,“ segir í Kjara­f­réttum Eflingar.

Í frétta­bréf­inu segir að húsa­leigu­bætur hafi ekki fylgt þróun leigu­verðs, að þær séu of lít­ill hluti leigu­kostn­aðar og að sá stuðn­ingur sem af þeim hlýst sé ófull­nægj­andi. „Rík­is­stjórnin er nú að hækka húsa­leigu­bætur um 10% vegna almennra verð­hækk­ana. Það færir flestum leigj­endum á bil­inu 2.000 til 3.200 krónur á mán­uði. Það telur ekki upp í hinar miklu hækk­anir sem orðið hafa á fram­færslu­kostn­aði und­an­farið og enn síður upp í gríð­ar­legar hækk­anir á leigu­verði á síð­ustu árum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár