Hlutfall þeirra heimila sem búa við íþyngjandi húsnæðiskostnað eykst milli ára

Tekju­hæstu heim­ili lands­ins eru að spenna bog­ann í hús­næð­is­kaupum mun meira en þau gerðu 2020 og stærra hlut­fall þeirra býr við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað. Staða leigj­enda batnar á milli ára en staða eig­enda versnar.

Það er dýrt að halda þaki yfir höfðinu.
Það er dýrt að halda þaki yfir höfð­inu. Mynd: Pexels

Alls búa 12,8 pró­sent heim­ila lands­ins við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað, en slíkur kostn­aður telst íþyngj­andi ef við­kom­andi greiðir meira en 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjur sínum í að halda þaki yfir höf­uðið. Hlut­fallið eykst á milli ára, en 2020 bjuggu tólf pró­sent lands­manna við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað. Hlut­fallið er þó sögu­lega með því lægra sem mælst hefur frá því að Hagstofa Íslands fór að taka þessar tölur saman árið 2006. Verst var staðan 2011 þegar 17,4 pró­sent lands­manna voru að greiða meira en 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í hús­næð­is­kostnað.

Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofa Íslands birti í dag. Nið­ur­stöð­urnar eru byggðar á lífs­kjara­rann­sókn Hagstofu Íslands. Eft­ir­far­andi liðir telj­ast til hús­næð­is­kostn­aðar: húsa­leiga, vaxta­kostn­aður og verð­bætur vegna lána, við­hald, við­gerðir, bruna-, og fast­eigna­trygg­ing, raf­magn, hiti og fast­eigna­gjöld. Húsa­leigu­bætur og vaxta­bætur eru dregnar frá hús­næð­is­kostn­aði hjá þeim sem fá slíkar bætur greiddar.

Til að setja þessar tölur í sam­hengi má nefna að með­al­tal ráð­stöf­un­ar­tekna var 433 þús­und krónur á mán­uði árið 2020. Ef heim­ili sem hafði þannig laun býr við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað þá er það að borga að minnsta kosti 173 þús­und krónur á mán­uði vegna hans.

Þeir sem búa í leigu­hús­næði eru mun lík­legri til að eiga erfitt með að standa undir hús­næð­is­kostn­aði en þeir sem eiga eigið hús­næði. Samkvæmt tölum Hag­stof­unnar bjuggu 27 pró­sent heim­ila á leigu­mark­aði við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað en 8,9 pró­sent heim­ila sem búa í eigin hús­næði. Athygli vekur að aukn­ingin milli ára er hjá eig­endum, ekki leigj­endum. Í hópi þeirra heim­ila sem eiga eigið hús­næði eykst hlut­fall þeirra sem búa við íþyngj­andi kostnað um 1,6 pró­sentu­stig milli ára en hjá leigj­endum lækkar það um 0,6 pró­sentu­stig. Þar gæti skipt máli umtals­verð fjölgun íbúa á mark­aði í eigu óhagn­að­ar­drif­inna leigu­fé­laga, sem bjóða upp á leigu sem er tölu­vert langt undir því sem tíðkast á almenna mark­aðnum.

Tekjulægstu í mestu vandræðum en tekjuháir að spenna bogann

Lægsta tekju­bil heim­ila er það sem á í mestum vand­ræðum með hús­næð­is­kostnað. Alls eru 28,8 pró­sent þeirra sem til­heyra þeim fimmt­ungi heim­ila sem eru með lægstu tekj­urnar að glíma við íþyngj­andi hús­næð­is­kostnað en hlut­fallið lækkar hins vegar lít­il­lega á milli ára. Þar gætu áður­nefnd óhagn­að­ar­drifin leigu­fé­lög skipt máli.

[adspot]Athygli vekur að efstu tekju­bili hafa verið að skuld­setja sig mjög mikið í við­bót milli ára. Þannig fjölgar þeim heim­ilum sem eru með hærri tekjur en 61-80 pró­sent lands­manna sem borga meira en 40 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í hús­næð­is­kostnað úr 3,3 í 5,6 pró­sent milli ára og hjá 20 pró­sent tekju­hæsta hópnum tvö­fald­ast fjöld­inn sem er í þeirri stöðu, fer úr þremur pró­sentum í sex.

Þetta má rekja til gríð­ar­legra hækk­ana á hús­næð­is­verði, sér­stak­lega á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Síðasta mælda árs­hækkun er um 22 pró­sent. Þetta er afrakstur þess að eft­ir­spurn hefur verið langt umfram fram­boð. Í síð­ustu birtu mán­að­ar­skýrslu hag­deildar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar kom fram að fram­boð íbúða til sölu hafi verið undir eitt þús­und á land­inu öll í byrjun mars. Það er þó ofmat á fram­boð­inu því um þriðj­ungur íbúð­anna voru þegar komnar í fjár­mögn­un­ar­ferli og því búið að sam­þykkja til­boð í þær. Til sam­an­burðar fór það í fyrsta sinn niður fyrir tvö þús­und íbúðir í mars í fyrra.

Stóraukin útlán skapa ruðningsáhrif

Lyk­il­breyta í þessum miklu ruðn­ings­á­hrifum á tímum kór­ónu­veiru­far­ald­urs voru stór­aukin útlán Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka til heim­ila lands­ins svo þau gætu keypt sér nýjar íbúðir.

Bank­­arnir tóku ein­fald­lega yfir íslenska íbúð­­ar­lána­­mark­að­inn eftir að kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­inn skall á. Það sem gerði þeim það kleift voru aðgerðir Seðla­­banka Íslands, sem lækk­­aði stýri­vexti niður í 0,75 pró­­sent og afnam tíma­bundið hinn svo­­kall­aða sveiflu­­jöfn­un­­ar­auka, og rík­­is­­stjórn Íslands, sem lækk­­aði banka­skatt þannig að tekjur rík­­is­­sjóðs af honum rýrn­uðu um sex millj­­arða króna á ári.

Frá mars 2020 og næstu tvö árin juk­ust hrein ný útlán Lands­­­bank­ans, Íslands­­­­­banka og Arion banka, með veði í íbúð, gríð­ar­lega. Mark­aðs­hlut­­­deild bank­anna í öllum úti­stand­andi lánum til íbúð­­­ar­­­kaupa hefur vaxið úr 55 í meira en 70 pró­­­sent.

Þessi miklu útlána­vöxtur mynd­aði grunn­inn að gríð­­ar­­legum hagn­aði bank­anna þriggja í fyrra, sem sam­tals var 81,2 millj­­arðar króna.

Búist við mikilli hækkun stýrivaxta

Hækkandi hús­næð­is­verð er svo stærsti þátt­ur­inn í þeirri stór­auknu verð­bólgu sem mælist á Íslandi, en hún er nú 7,2 pró­sent. Seðla­banki Íslands hefur reynt ýmis­legt til að stemma stigu við ástand­inu og meðal ann­ars hækkað stýri­vexti upp í 2,75 pró­sentu­stig, sem hækkar afborg­anir af lánum og gerir það að verkum að færri geta tekið slík.

Í sept­em­ber í fyrra ákvað fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands einnig að setja reglur um hámark greiðslu­byrðar á fast­eigna­lánum og end­ur­vekja hinn svo­kall­aða sveiflu­jöfn­un­ar­auka. Áður hafði nefndin lækkað hámark veð­setn­ing­ar­hlut­falls fast­eigna­lána til neyt­enda lækkað úr 85 í 80 pró­sent en hámarks­hlut­fall fyrir fyrstu kaup­endur hélst óbreytt í 90 pró­sent.

[adspot]Enn sem komið er hafa þessar aðgerðir Seðla­bank­ans ekki bitið sem neinu nemur. Þvert á móti hækk­aði íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 3,1 pró­sent í síð­asta mán­uði.

Því er búist við að pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­inn hækki stýri­vexti enn og aftur í þess­ari viku. Spár bank­anna segja að sú hækkun verði á bil­inu 0,75 til 1,0 pró­sentu­stig. Það mun skila sér í hærri hús­næð­is­kostn­aði fyrir fleiri.

Dýr lán og gríð­ar­leg sam­keppni um allt hús­næði sem býðst til sölu gerir það að verkum að fleiri lán­takar eru að færa sig í þau lán sem bera lægstu afborg­an­irnar. Það eru verð­tryggð lán, en hin mikla verð­bólga sem nú er gerir þau lán þó afar óhag­stæð, enda leggst verð­bólgan sem verð­bætur á höf­uð­stól þeirra lána.

Samkvæmt nýbirtum tölum Seðla­banka Íslands um útlán banka lands­ins þá tók lands­menn verð­tryggð lán á föstum vöxtum fyrir 3,5 millj­arða króna í mars. Þeir hafa ekki tekið jafn mikið af slíkum lánum síðan í des­em­ber 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár