Hver er munurinn á vinnuafli manneskju og vélar? Nú þegar kröfur verkalýðshreyfingar og fyrirtækjaeigenda eru að koma fram, sést stór munur á afstöðunni til vinnutíma fólks.
[links]Verkafólk er að búa sig undir breytta tíma, með aukinni tæknivæðingu í fjölmörgum störfum og þeirra breyttu krafna til vinnuframlags fólks sem framtíðin muni fela í skauti sér. Lengi hefur verkafólk átt sér vonir um að aukin tækni muni létta því störfin og skila því betri afkomu. Tæknin á að draga úr einhæfum störfum og líkamlegu erfiði og einnig stytta þann tíma sem þarf í að vinna verk og þar með að auka frítíma fólks. Þessi ávinningur tækniframfaranna fyrir vinnandi fólk hefur látið standa á sér. Enn skal tekist á um hverjir skuli njóta ávinnings tækninnar.
Samtök atvinnulífsins (SA), en svo heita samtök fyrirtækjaeigenda, eru nú búin að leggja fram tillögur sínar um það á hvern hátt þau vilji koma að styttingu vinnutíma fólks. Í tillögum þeirra kemur fram afar gamaldags hugsunarháttur og langkunnugur. Vinnuafköst eru mæld í vinnuhraða og vinnutíma og jafnan er: Því hraðar og lengur sem unnið er, því meiru er afkastað.
[adspot]Það eru bara 100 ár síðan fyrst var lagt til á Alþingi að koma lágmarks hvíldartíma vinnandi fólks inn í lög. Vökulögin voru samþykkt tveimur árum síðar, sem skylduðu að veita togarasjómönnum 6 klst. samfellda hvíld á sólarhring. Fram að því voru engin hvíldartímaákvæði í íslenskum lögum og aldagömul tiltrú á langtíma vinnuþrælkun. Síðan þá hefur íslensk verkalýðshreyfing náð fram talsverðum umbótum, en hugarheimur vinnuseminnar lifir enn. Að „vinna alla vikuna, vitanlega sunnudaga og helst líka alla helgidaga, vinnan göfgar vissulega“ eins og Örn Bjarnason orti um vísitölufjölskylduna.
Núverandi grunnlög á vinnumarkaði eru lögin um 40 stunda vinnuviku sem tóku gildi í ársbyrjun 1972. Þá var verið að stytta dagvinnutímana úr 48 stundum á viku og setja ítarleg ákvæði um vinnutíma að öðru leyti og í kjarasamningum komu nánari útlistanir á vinnutímum, hvíldartímum og matar- og kaffitímum. Á þessum tíma var ég unglingur að stíga mín fyrstu skref á launuðum vinnumarkaði, en hafði sem bóndadóttir auðvitað unnið frá því ég fór að ganga. Við færibandið í sláturhúsinu, frystihúsinu og verksmiðjunum, var ég tímavinnuvél sem afkastaði stykkjum á tímaeiningu. Seinna vann ég störf sem reyndu meira á rökhyggju, skipulagningu, þekkingu og hugmyndir, en undir suðaði áfram krafan um að mæla vinnuframlag mitt í klukkustundum. Og ennþá suðar tímamælingavél SA.
SA leggja til að stytta vinnudag fólks með því að fella niður matar- og kaffitímana. Þetta eru alveg 35 launaðar mín á dag (oftast skipt í tvennt) og svo þar að auki ólaunaður matartími í hádeginu. Þessi ólaunaði hádegismatartími átti við í þá tíð þegar karlar unnu í þorpunum og konur elduðu hádegismat fyrir karl sinn og börn sem löbbuðu heim í mat. Nú tekur víða lengri tíma að keyra heim í hádegismat - aðra leið - en sem nemur matartímanum. SA kallar það að stytta vinnutímann að fella öll hlé út og láta fólk vinna sama vinnutíma í einum spreng.
[adspot]Á móti þessari „styttingu vinnutímans“ vilja þeir fá lengra dagvinnutímabil, eða frá kl. 6 að morgni til 19 að kvöldi, sem eru 13 klst. Innan þess tímabils er hægt að koma á tvískiptum vöktum, þar sem unnið er í 6,5 klst. samfellt á hvorri vakt og allt á dagvinnutaxta. Með þessu þarf verkafólkið ekki einu sinni að fara á klósettið á vinnutíma, enda þarf fólk sem hvorki fær vott né þurrt ekki að fara eins títt á klósett. Svo hafa hagræðingarsérfræðingar þeirra líka komist að því að það dragi úr afköstum fastandi starfsmanns sem sé kominn í spreng eftir 6,5 klst. og því borgi sig ekki að kreista út úr honum eina klukkustund í viðbót. Aukin heldur þá nær þessi vinnutími ekki „fullu starfi“ og þarf því ekki að borga heil mánaðarlaun fyrir vinnuframlagið. Svona skal sjá við því að byltingarsinnarnir í verkalýðshreyfingunni ætla að láta hækka taxta mánaðarlauna. Lausnin er að ráða fólk í hlutastörf og taka af því kaffihlé á vinnutíma.
Það verður eitthvað skrautlegt þegar verkalýðsforingjar sem koma nú úr röðum vinnandi fólks fara að ræða samninga við uppvaxin dekurbörn sem þekkja ekki muninn á vinnufólki og vinnuvélum.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.





















































Athugasemdir