Freyja: Orðræðan sársaukafull fyrir þolendur og viðheldur ofbeldismenningu

Orðræðan um að ekki allir þing­menn eða karlar séu blind­fullir á bar að tala með ofbeld­is­fullum hætti um konur og jað­ar­setta hópa getur verið afar sárs­auka­full fyrir þolendur, að mati Freyju Har­alds­dóttur.

Freyja Haraldsdóttir
Freyja Har­alds­dóttir Mynd: Birgir Þór Harðarson

Freyja Har­alds­dóttir, fyrr­ver­andi vara­þing­maður Bjartrar fram­tíðar og þekkt bar­áttu­kona fyrir auknum mann­rétt­indum fatl­aðra, segir að orð­ræðan um ekki allir þing­menn eða karlar séu blind­fullir á bar að tala með ofbeld­is­fullum hætti um konur og jað­ar­setta hópa geti verið afar sárs­auka­full fyrir þolendur og að hennar mati við­heldur hún ofbeld­is­menn­ingu. Orðræðan snúi athygl­inni að van­líðan fólks í for­rétt­inda­stöðu en ekki þeirra sem ganga í gegnum alls konar afleið­ingar þess­ara atburða. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Freyju á Facebook.

[links]„Í þessu Klaust­ur­máli hafa karl­menn í umförmum, líka karl­menn sem ég þekki vel og þykir vænt um, stigið fram eða tekið sér pláss til þess að segja að ekki allir karlar séu eins og þeir þing­menn sem sátu og spúðu hatri á Klaustur. Þá hafa þing­menn og fyrrum þing­menn einnig komið fram með yfir­lýs­ingar um að ekki allir þing­menn séu blind­fullir á bar að tala með ofbeld­is­fullum hætti um konur og jað­ar­setta hópa,“ segir Freyja.

Hún bendir á að það sé vissu­lega rétt að allir karl­menn og allt stjórn­mála­fólk séu ekki ger­endur ofbeldis. Þá skilji hún pirr­ing karl­manna og stjórn­mála­fólks varð­andi til­raun ger­enda til þess að koma ábyrgð­inni af sér með því að segja að allir hagi sér svona hvort sem er. „Við viljum að þau gang­ist við ofbeld­inu, taki ábyrgð, segi af sér og raun­veru­lega iðrist þess sem þau hafa gert,“ segir hún.

Allir þurfa að líta í eigin barm

„Mörg okkar höfum ítrekað orðið fyrir ofbeldi og því geta afleið­ing­arnar verið miklar, t.d. svefn­leysi, síþreyta, lík­am­legir verkir, kvíði, þung­lyndi, doði, end­ur­upp­lif­anir, upp­rifin gömul sár, ein­beit­ing­ar­skortur og lyst­ar­leysi. Ég er ekki að segja að sárs­auki eins úti­loki sárs­auka ann­arra en ég er samt að segja að kannski væri nær að karl­menn og stjórn­mála­fólk spör­uðu karllægu, ófötl­uðu og gagn­kyn­hneigðu tárin sín og nýttu til­finn­ingar sínar í að vinna með mark­vissum hætti gegn þess­ari ofbeld­is­menn­ingu og þannig skapa þolendum rými til þess að vinna úr sínum áföllum,“ segir Freyja.

Hún bendir jafn­framt á að allir séu partur af þessu ófatl­aða og gagn­kyn­hneigða feðra­veldi. „Við erum öll for­dóma­full. Við eigum öll í hættu að vera for­dóma­full og ómeð­vituð um for­rétt­indi okkar. Í raun getur engin sagt: það var ekki ég! Svona fyrir utan það að rann­sóknir og reynsla sýna okkur þær svim­andi háu tölur um kyn­bundið ofbeldi. Einnig ofbeldi gagn­vart fötl­uðu fólki. Hinsegin fólki. Ofbeldi er líka ekki bara eitt­hvað eitt. Það er ekki bara það að lemja, nauðga og smána. Ofbeldi getur verið kerf­is­bundið, t.d. króna á móti krónu skerð­ing, manna­nafna­nefnd og bleikur skattur. Ofbeldi getur verið menn­ing­ar­bundið, t.d. að nota fötlun sem aðhlát­ursefni í ára­mótaskaup­inu nær und­an­tekn­ing­ar­laust í áraraðir og þegar ólík leik­föng senda skila­boð á pakkn­ingu um að þau séu fyrir stelpu eða stráka. Í slíku ofbeldi getum við ekki bent á einn ger­anda heldur bara valda­kerfi og hug­mynda­fræði sem þarf að upp­ræta.

Við erum öll hluti af því ferli. Við þurfum öll að líta í eigin barm. Á hverjum ein­asta degi. Með því að afneita því erum við að skapa kjörað­stæður fyrir ofbeld­is­menn­ingu. Þetta breytir ekki því að beinir ger­endur þurfa að taka ábyrgð á sínum gjörðum. Eitt úti­lokar ekki annað.

Ef karl­menn og stjórn­mála­fólk eiga í miklum erf­ið­leikum með að liggja undir grun verða þeir að taka þá umræðu þar sem hún á heima. Hjá ger­endum. Ekki agn­ú­ast út í konur og jað­ar­setta hópa um þau óþæg­indi sem rétt­inda­bar­átta okkar veldur. Sú til­finn­inga­vinna á ekki að vera í höndum þolenda!“ segir Freyja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár