EDF: Algjörlega misboðið og gáttuð á hryllilegum ummælum

Regn­hlífa­sam­tök aðild­ar­fé­laga fatl­aðs fólks, European Disa­bility Forum, telja að þing­menn­irnir sem við­höfðu niðr­andi ummæli um Freyju Har­alds­dóttur ættu að gera sér grein fyrir því hversu óásætt­an­leg hegðun þeirra sé og segja af sér.

Þingmennirnir sex sem sátu við drykkju á Klaustur bar 20. nóvember 2018 og töluðu um samstarfsfólk sitt og aðra samfélagsþegna.
Þing­menn­irnir sex sem sátu við drykkju á Klaustur bar 20. nóv­em­ber 2018 og töl­uðu um sam­starfs­fólk sitt og aðra sam­fé­lags­þegna. Mynd: Samsett mynd

Samtökin European Disa­bility Forum (EDF), sem eru regn­hlífa­sam­tök aðild­ar­fé­laga fatl­aðs fólks, sendu frá sér yfir­lýs­ingu þann 4. des­em­ber síð­ast­lið­inn eftir að Klaust­urs­málið svo­kall­aða komst í erlenda fjöl­miðla. Í henni kemur fram að þeim sé algjör­lega mis­boðið og þau gáttuð á hinum hrylli­legu ummælum sem íslenskir þing­menn við­höfðu gegn kven­kyns sam­starfs­fólki sínu og gegn Freyju Har­alds­dóttur, bar­áttu­mann­eskju fatl­aðra og fyrr­ver­andi vara­þing­konu.

Sér­fræð­ingar sem Kjarninn hefur talað við eru á einu máli að Freyja Har­alds­dóttir njóti mik­illar virð­ingar á alþjóða­vett­vangi vegna starfa hennar og hafa við­brögð við drykkju­fundi þing­mann­anna sex á Klaustur bar ekki látið á sér standa. Á hljóð­upp­töku heyr­ast þing­menn­irnir gera grín að Freyju, sem þjá­ist af sjald­­gæfum beina­­sjúk­­dómi. Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, þing­maður Mið­flokks­ins, kall­aði hana „Freyju eyju“ og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, gerði grín af því að tveir hinna mann­anna við borðið hefðu sér­stakan áhuga á Freyju og nafn­greindri þing­konu Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Ein­hver úr hópnum hermdi í kjöl­farið eftir sel.

„Þing­menn­irnir sem hlut eiga að máli ættu að gera sér grein fyrir því hversu óásætt­an­leg hegðun þeirra er og segja af sér. Hat­urs­orð­ræða af þessu tagi er óaf­sak­an­leg. Hálf­gerðu afsök­un­ar­beiðn­irnar sem bár­ust frá þeim eru óaf­sak­an­legar. Stjórn­mála­menn eiga að vera fyr­ir­myndir. Þeir voru and­stæðan við það. Þessi frétt und­ir­strikar einnig algenga til­hneig­ingu: fötl­uðum konum er sér­stak­lega hætt við því að verða fyrir hat­urs­orð­ræðu, mis­munun og ofbeldi,“ segir í yfir­lýs­ingu EDF.

EDF bendir á að saga Freyju end­ur­taki sig í sífellu í Evrópu í lífum ótelj­andi kvenna. „Við hvetjum alla til þess að láta til sín taka í hvert sinn sem aðstæður sem þessar koma upp: til að binda enda á svona hegðun eru skýr stefnu­mál nauð­syn­leg, en einnig sterkar aðgerðir, eins og að láta í sér heyra í dag­legu lífi.“

Virðingar og virkrar hlustunar er þörf

[links]Tveir erlendir sér­fræð­ingar í mann­rétt­indum fatl­aðs fólks, þau Gerard Quinn og Anna Lawson, hafa fylgst með atburða­rásinni en þau skrif­uðu opið bréf til íslensku þjóð­ar­innar og birtu á Kjarn­anum í gær. Í því segja þau að ef til vill geti þessi upp­á­koma á Íslandi leitt af sér eitt­hvað gott. Það sé ekki nóg að biðj­ast afsök­unar og láta eins og ekk­ert hafi í skorist! Virð­ingar og virkrar hlust­unar sé þörf.

„Við viljum trúa því að Ísland geti gert eitt­hvað sem myndi gera Bush stoltan, vakið öfund Evrópu og rétt við hlut Freyju. Það er lág­mark að stjórn­völd hlýði á eigin þegna og stofni sjálf­stæða og óháða mann­rétt­inda­stofnun strax. Slík stofnun kemur ekki í stað­inn fyrir stjórn­mál eða stjórn­mála­fólk. En minnir okkur á að stjórn­málin snú­ast – þegar best lætur – um almanna­heill en ekki for­dóma eða sér­hags­muni. Slík mann­rétt­inda­stofnun myndi geta fært hluti til betri vegar þegar eitt­hvað fer úrskeiðis eins og virð­ist hafa gerst hér og myndi tengja Ísland alþjóð­legri umræðu um rétt­læti í heim­inum. Það er hið rétta í stöð­unni. Það myndi gera Freyju aftur stolta af því að vera Íslend­ingur,“ segja þau.

Hatursorðræða gegn fötluðum

Umfjöllun um málið var birt á vef BBC síð­ast­lið­inn mánu­dag. Í henni segir að stór hluti Íslend­inga hafi kallað eftir afsögn sex­menn­ing­anna. Fjallað er um ummæli þing­mann­anna um Freyju, sem og stöðu­upp­frærslu hennar á Facebook, þar sem hún lýsti því að afsök­un­ar­beiðni þar sem við­kom­andi reynir að útskýra og ljúga um hvað hafi átt sér stað sé ekki raun­veru­leg afsök­un­ar­beiðni.

Enn fremur talar blaða­maður BBC við for­mann Þroska­hjálpar, Bryndísi Snæ­björns­dóttur, sem sagði að um hefði verið að ræða hat­urs­orð­ræðu gegn fötl­uðum. „Það var hræði­legt að þurfa að hlusta á upp­tök­urnar þar sem þing­menn­irnir leika eftir dýra­hljóð og gera grín að fatl­aðri konu sem hefur barist svo ötul­lega fyrir rétt­indum fatl­aðra,“ sagði Bryndís í sam­tali við BBC.

Jafn­framt er fjallað um þátt­töku Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins og þing­manns, og skýr­ingu hans um að hljóðin sem líkj­ast áttu sel, þegar nafn Freyju Har­alds­dóttur bar á góma, hafi komið frá stól inni á staðnum. Einnig er for­tíð hans í tengslum við Panama­skjölin rifjuð upp og afsök­un­ar­beiðnin sem Mið­flokk­ur­inn sendi frá sér þar sem sagði að þing­menn hygð­ust læra af mál­inu og að umræð­urnar væru óaf­sak­an­legar.

Frábiður sér frekari símtöl þar sem talað er niður til hennar

Freyja sagði í fyrr­nefndri stöðu­upp­færslu á Face­book að niðr­andi og meið­andi ummæli þing­manna á drykkju­fundi í þar­síð­ustu viku, um hana og fjöl­marga aðra naf­greinda ein­stak­linga, væru kerf­is­bundið hat­ur. „Það bein­ist harð­ast að kon­um. Hinsegin fólki. Fötl­uðu fólki. Karl­mönnum sem ein­hvern­veg­inn passa ekki inn í ríkj­andi hug­myndir um (skað­lega) karl­mennsku. Það er hvorki til­viljun né eins­dæmi að akkúrat þessir hópar séu við­fang orð­a­níðs fólks með mikil for­rétt­indi. Það er alltum­lykj­andi - alltaf.“

Hún sagði í stöðu­upp­færslu sinni að fyrstu við­brögð hennar við hat­urs­orð­ræðu þing­mann­anna hefði verið að verja hvorki krafti né orðum í hana og halda áfram með vinnu­dag­inn sinn. „En ég hélt auð­vitað ekk­ert áfram með dag­inn minn að neinu ráði - þetta hefur tekið sinn toll líkt og allt ofbeldi ger­ir.“

Freyja skrif­aði grein sem birt­ist á vef­síðu Kjarnans síð­asta sunnu­dags­kvöld þar sem hún greinir frá sam­skiptum sínum við Sigmund Davíð en hann hringdi í hana fyrr um dag­inn. „Ég frá­bið mér frek­ari sím­töl þar sem ófatl­aður karl­maður í valda­stöðu talar niður til mín og reynir að útskýra fyrir mér hvað eru fötl­un­ar­for­dómar og hvað ekki. Eina eðli­lega sím­talið í stöð­unni væri að biðj­ast ein­læg­lega afsök­unar, án nokk­urra útskýr­inga eða mála­leng­inga, og segj­ast í ljósi gjörða sinna ætla að axla ábyrgð á ofbeld­inu sem við vorum beittar og segja af sér,“ sagði hún í grein­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

klausturupptakan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár