Travelco tapaði fimm milljörðum á falli Primera air

Andri Már Ing­ólfs­son segir tap Travelco nema fimm millj­örðum vegna gjald­þrots Primera air. Andri Már segir að Primera Air væri enn í rekstri hefði Arion banki verið reiðu­bú­inn til að veita félag­inu brú­ar­fjár­mögnun líkt og staðið hafði til.

Primera air
Primera air Mynd: Kjarninn.

Ferða­skrif­stof­ur Tra­velco, áður Prim­vera Tra­vel, töp­uðu fimm millj­örðum króna á falli flug­fé­lags­ins Pri­mera Air, að sögn Andra Más Ing­ólfs­son­ar, for­stjóri og stærsti eig­anda Primera air og Travelco. Þetta kemur fram í við­tali við Andra Már í Við­skipta­blaðið í dag.

Arion banki vildi nýtt félag

[links]Mánu­dag­inn 1. októ­ber var greint frá því að flug­fé­lagið Primera Air væri á leið í þrot. Í til­kynn­ing­unni um gjald­þrot Primera air kom fram að ferða­­skrif­­stofur Pri­­mera Tra­vel Group töp­uðu háum fjár­­hæðum vegna fluga sem greidd höfðu verið til flug­­­fé­lags­ins en voru ekki flog­in. Andri segir í við­tal­inu við Við­skipta­blaðið að óskað var eftir gjald­þrota­skiptum þegar ljóst var að Arion banki myndi ekki styrkja frekar við rekstur flug­fé­lags­ins. Þá hafi bank­inn þrýst á um að ferða­skrif­stofur Primera Travel Group yrðu færðar í nýtt félag. Því var stofnað nýtt eign­ar­halds­fé­lag, Travelco, með millj­arð í nýju hlutafé til að tryggja rekstur ferða­­skrif­­stof­anna.

Í kjöl­farið voru ferða­skrif­stofur Primera sam­stæð­urnar færðar yfir í Travelco sem tók þá yfir skuldir félags­ins við Arion Banka. Rekstur allra fyr­ir­tækj­anna var fluttur undir Tra­velco og ferða­skrif­stof­urnar héldu áfram óbreyttum rekstri.

Milljarða kröfur í þrotabúi Primera

Þegar Pri­mera Air hætti í októ­ber síð­ast­lið­inn eftir fjórtán ár í rekstri og var flug­fé­lag­ið, ásamt dótt­ur­fé­lögum sínum í Dan­mörku og Lett­landi, í kjöl­farið tekið til gjald­þrota­skipta. Stjórn­endur flug­fé­lags­ins sögð­u að horfur á flug­mark­aði hefðu farið hratt versn­andi, með hækk­andi olíu­verði og lækk­andi flug­far­gjöld­um, og ekki hefði tek­ist að tryggja félag­inu fjár­mögnun til langs tíma. ­Arion banki þurfti að færa niður lán og greiða út ábyrgðir fyrir á bil­inu alls 1,3 til 1,8 millj­arða króna vegna gjald­þrots­ins en óvíst er hve miklar eignir munu finn­ast í þrota­búum félag­anna.

Í októ­ber var greint frá því að kröfur í þrota­búi Primera air væru komnar upp í 16,4 millj­arða króna en eignir Pri­mera eru metnar á um hálfan millj­arð. Í kringum 500 dönsk fyr­ir­tæki og ein­stak­lingar höfðu þá lýst yfir kröfum í þrotabú flug­fé­lags­ins. Frá þessu var greint á danska miðl­inum Jyske Vest­kysten en ekki var ljóst hverjar end­an­legu töl­urnar um kröf­urnar og eign­irnar eru.

Segir að félagið væri enn í rekstri ef Arion banki hefði veitt brúarfjármögnun

Andri Már seg­ir einnig í við­tal­inu að Pri­mera Air væri enn í rekstri hefði Arion banki verið reiðu­bú­inn til að veita félag­inu brú­ar­fjár­mögnun líkt og staðið hafði til, þar til skulda­bréfa­út­boði félags­ins væri lokið. „Það er ljóst að ef sú fjár­mögnun hefði komið, væri Primera Air enn í rekstri,“ segir Andri Már.

Eigið fé Primera air hafði hins­vegar verið nei­kvætt svo árum skiptir áður félagið fór í þrot.Sem dæmi var það nei­kvætt um 22,1 milljón evra í lok árs 2015, en það ár tap­aði félagið 12,6 millj­ónum evra, og nei­kvætt um 17,1 milljón evra í árs­lok 2016. Gjald­þrot félags­ins kom því ekki líkt og þruma úr heið­skíru lofti en erfið staða flug­fé­lags­ins hafði verið mörgum ljós um nokk­urt skeið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár