Endurskoðendur draga ársreikninga Primera Air í efa

Eigandi Primera Air hafnar því að rang­lega hafi verið staðið að gerð árs­reikn­inga félaga innan Primera-sam­stæð­unnar en end­ur­skoð­endur segja það vand­séð hvort félag­inu hafi verið heim­ilt að inn­leysa hagnað vegna sölu á vélum sem enn eru í smíðum.

Andri Már Ing­ólfs­son, aðal­eig­andi Primera-sam­stæð­unnar, hafnar því að rang­lega hafi verið staðið að gerð árs­reikn­inga félaga innan ferða­þjón­ustu­sam­stæð­unnar. End­ur­skoð­endur sem hafa rýnt í árs­reikn­inga félag­anna telja vand­séð að víkj­andi lán sem Primera Air var veitt í fyrra og breytti nei­kvæðri eig­in­fjár­stöðu í jákvæða, geti talist til eigin fjár félags­ins. Þá segja þeir vafa leika á því hvort félag­inu hafi verið heim­ilt að inn­leysa hagnað vegna sölu á vélum sem eru enn í smíðum og átti að afhend á næsta ári. Frá þessu er greint í Mark­að­inum, fylgi­riti Frétta­blaðs­ins í dag.

Óvæntur viðsnúningur

End­ur­skoð­endur sem hafa rýnt í árs­reikn­inga félaga innan Primera-sam­stæð­unnar telja veru­legan vafa leika á því að árs­reikn­ingar tveggja félaga, Primera Air ehf. og Primera Travel Group ehf., fyrir síð­asta ár séu í sam­ræmi við lög, reglur og góða end­ur­skoð­un­ar­venju. Af árs­reikn­ingi Primera Air fyrir síð­asta ár að dæma batn­aði fjár­hags­staðan umtals­vert á árinu, miðað við fyrri ár, en til marks um það fór eig­in­fjár­hlut­fallið frá því að vera nei­kvætt um 51 pró­sent í lok árs 2016 í það að vera jákvætt um 8,8 pró­sent í lok síð­asta árs. Var eigið fé félags­ins á sama tíma jákvætt um 4,6 millj­ónir evra.

Við­snún­ing­ur­inn kom þeim sem þekkja vel til mála á flug­mark­aði nokkuð á óvart enda var árferðið á mark­að­inum afar erfitt á árinu. Hærra olíu­verð, lægri flug­far­gjöld og auk­inn launa­kostn­aður bitn­uðu á rekstri flug­fé­laga eins og rekstr­ar­tölur íslensku félag­anna Icelandair Group og WOW air báru með sér. Hagnaður fyrr­nefnda félags­ins dróst saman um tæp 60 pró­sent á meðan síð­ar­nefnda félagið tap­aði um 2,4 millj­örðum króna. Af árs­reikn­ingi Primera Air má ráða að einkum tvö atriði, nýtt víkj­andi lán og sölu­hagn­aður vegna Boeing-flug­véla, hafi að stórum hluta skýrt bætta eig­in­fjár­stöðu félags­ins. Áður­nefnt víkj­andi lán upp á 20,9 millj­ónir evra, sem syst­ur­fé­lagið Primera Travel Group veitti Primera Air í fyrra, var fært á meðal eigin fjár í síð­asta árs­reikn­ingi Primera Air og skýrir þannig bætta eig­in­fjár­stöðu félags­ins á milli ára.

Flokkast sem eiginfjárgerningur samkvæmt alþjóðlegum reikningskilastöðlum

Samkvæmt umfjöllun Mark­að­ar­ins segja end­ur­skoð­endur félag­anna hjá Deloitte að víkj­andi lán frá tengdum aðila sem Primera Air veitt var í fyrra upp á 20,9 millj­ónir evra, sem breytti nei­kvæðri eig­in­fjár­stöðu félags­ins í jákvæða um 4,6 millj­ónir evra í árs­lok 2017, flokk­ist sem eig­in­fjár­gern­ingur sam­kvæmt alþjóð­legum reikn­ings­skila­stöðlum. En án láns­ins hefði eigið fé þess verið nei­kvætt um 16,3 millj­ónir evra í lok síð­asta árs.

Þá segja þeir vafa leika á því hvort félag­inu hafi verið heim­ilt að inn­leysa á síð­asta ári sölu­hagnað vegna end­ur­sölu á Boeing-flug­vélum sem eru enn í smíðum og verða afhentar í apr­íl­mán­uði árið 2019. Þá feli inn­leystur hagn­aður á árinu 2017 upp á 13,3 millj­ónir evra vegna sölu á flug­vélum, sem ekki var búið að afhenda, í sér breyt­ingu á gang­virð­is­mati þar sem um sé að ræða afleiðu­samn­inga. Frá þessu greina heim­ild­ar­menn Mark­að­ins.

Til við­bótar er það mat við­mæl­enda Mark­að­ar­ins að sterk rök hafi staðið til þess að færa niður, að hluta eða öllu leyti, millj­óna evra kröfur Primera Travel Group á hendur syst­ur­fé­lag­inu Primera Air og móð­ur­fé­lagi þess síð­ar­nefnda, PA Holding, í ljósi bágrar fjár­hags­stöðu félag­anna. Rekstur Primera Air og erlendra dótt­ur­fé­laga þess, Primera Air Nordic í Lett­landi og Primera Air Scandinavia í Danmörku, stöðv­að­ist sem kunn­ugt er í byrjun síð­asta mán­aðar þegar félögin voru tekin til gjald­þrota­skipta.

Neikvætt eigið fé árum saman

[links]Primera Air hætti í októ­ber síð­ast­lið­inn starf­semi eftir fjórtán ár í rekstri og var flug­fé­lagið, ásamt dótt­ur­fé­lögum sínum í Danmörku og Lett­landi, í kjöl­farið tekið til gjald­þrota­skipta. Stjórn­endur flug­fé­lags­ins sögðu að horfur á flug­mark­aði hefðu farið hratt versn­andi, með hækk­andi olíu­verði og lækk­andi flug­far­gjöldum, og ekki hefði tek­ist að tryggja félag­inu fjár­mögnun til langs tíma. Arion banki þurfti að færa niður lán og greiða út ábyrgðir fyrir á bil­inu alls 1,3 til 1,8 millj­arða króna vegna gjald­þrots­ins en óvíst er hve miklar eignir munu finn­ast í þrota­búum félag­anna.

Samkvæmt umfjöllun Mark­að­ar­ins hefur eigið fé Primera Air hefur verið nei­kvætt svo árum skiptir en sem dæmi var það nei­kvætt um 22,1 milljón evra í lok árs 2015, en það ár tap­aði félagið 12,6 millj­ónum evra, og nei­kvætt um 17,1 milljón evra í árs­lok 2016. Athygli vekur að þrátt fyrir langvar­andi bág­borna eig­in­fjár­stöðu hafa end­ur­skoð­endur félags­ins frá Deloitte engan fyr­ir­vara gert um rekstr­ar­hæfi þess í árs­reikn­ing­unum. Erfið staða flug­fé­lags­ins hefur verið mörgum ljós um nokk­urt skeið og segja við­mæl­endur Mark­að­ar­ins á fjár­mála­mark­aði að gjald­þrot félags­ins hafi ekki komið eins og þruma úr heið­skíru lofti. Vitað hafi verið að svona gæti farið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár