Karolina Fund: 111 myndlistarverk á vinyl í takmörkuðu upplagi

Ljós­mynd­ar­inn Spessi og nokkrir tón­list­ar­menn unnu saman að því að útsetja lög Clash fyrir brass­band. Nú vilja þeir gefa afrakst­ur­inn út á 111 vín­yl­plötum og safna fyrir verk­efn­inu á Karolina Fund.

Þetta er verk­efni sem Spessi og tón­list­ar­menn­irnir Óskar Guð­jóns­son, Ómar Guð­jóns­son Samúel, Jón Sam­ú­els­son, Helgi Svavar Helgason, Kjartan Hákon­ar­son, Haukur Grondal og Matthías Hemstock unnu saman fyrir sýn­ingu Spessa 111. Það kom til þannig að Spessi og Ámundi Sig­urðs­son hönn­uðu bók­ina 111 eins og heim­ilda­mynd og tón­list The Clash var spiluð undir. Lögin sem voru notuð voru; London calling sem var fyrir inn­gang bók­ar­innar, Should I stay or should I go og Guns of Brixton voru meg­in­kafli bók­ar­innar. Í nið­ur­lagi bók­ar­innar kom svo Magnificent seven. Haukur Gröndal útsetti þessi lög Clash fyrir brass­band til að spila á opnun sýn­ingar Spessa á Lista­há­tíð í sumar. Þeir fengu nafnið Magnificent 7 og mynd­uðu svo­kallað second line skrúð­göngu­band á opn­un­inni. Það var ljóst þá að það var eitt­hvað við þessi lög Clash í þessum bún­ingi sem þyrfti að gera meira með. Þá stakk Sammi uppá því að gerðar yrðu 111 vín­yl­plötur.

[adspot]Þessi söfnun á Karolina fund er okkar leið til að láta þetta ræt­ast. Við höfum reyndar bætt um betur og verða þetta þrisvar sinnum 111 plötur, 3 mis­mun­andi cover og ýmis­legt bita­stætt sem hægt er að styrkja. Platan var svo tekin upp í Greenhouse Studios hjá Valgeiri Sig­urðs­syni og á tökk­unum var Francesco.

Hvernig vaknaði hugmyndin að verkefninu?

Þegar ég var að vinna 111 vann ég þetta eins og heim­ild­ar­mynd þó þetta væri mynd­list­ar­verk. Samhliða sýn­ing­unni kom út bók, 111. Við Ámundi Sig­urðs­son settum bók­ina upp með takt­inn úr lögum The Clash í eyr­unum. Ég fór í gegnum allan Clash katalókin og valdi þessi lög. Tónlist Clash pass­aði alveg við þessar myndir. Póli­tíkin í text­unum munstrað­ist vel við mynd­irnar og póli­tík­ina í bók­inni.

Þegar leið að sýn­ing­ar­opnun hafði Óskar Guð­jóns­son vinur minn sam­band við mig og spyr hvort að han ætti ekki að gera eitt­hvað gigg á opn­un­inni. Þá sagði ég Óskari frá pæl­ingum okkar Ámunda með bók­ina og það varð úr að við ákváðum að nota Clash á opnun sýn­ing­ar­innar það eru þau lög sem eru á þessum vinyl sem við erum að safna fyrir. Í sam­ein­ingu ákváðum við Óskar að gera þetta New Orleans second line (jarð­ar­fara mars) stíl. Og á opn­un­inni Mar­ser­aði hljóm­sveitin eftir göngu­stígnum sem gengur í gegnum Fellin og stopp­aði fyrir framan Gall­er­íið og spil­aði þar fyrir gesti. Síðan mar­ser­aði hljóm­sveitin sömu leið og þeir komu í Laginu Guns of Brixton. (Það er til vídeó af þessu)

Segðu okkur frá þema verkefnisins

Þetta er byggt utanum gleð­ina og góðan vin­skap, þegar vinir hitt­ast þá ger­ist ein­hver galdur og úr verður alls­konar. Í þetta skipti kom hug­mynd af vinyl og svo fannst okkur bara góð hug­mynd að kýla á það!

Það væri nátt­úru­lega ekk­ert verk­efni ef mér hefði ekki verið svona vel tekið af Breið­hylt­ingum sem opn­uðu heim­ili sitt og hjarta fyrir mér og það leiddi mig svo áfram í frá­bæra sýn­ingu á Lista­há­tíð sem mættu yfir 600 manns að sjá, bókin sem kom út á sama tíma seld­ist upp hjá útgef­anda eins og skot, og var önnur prentun að detta í hús. Þeir sem vilja tryggja sér bók, vinyl­inn , mynd eða hrein­lega tón­leika með band­inu geta tryggt sér þetta allt á Karolina Fund.

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

https://www.karolinafund.com/project/view/2270

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár