#Kommentakerfið II snýr aftur

Framhald er fyr­ir­hugað af spil­inu #Kommenta­kerfið. Í spil­inu taka spil­arar að sér hlut­verk hins alræmda hóps virkra í athuga­semdum.

#Kommenta­kerfið kom upp­runa­lega út árið 2015 eftir söfnun á Karolina 
Fund. Nú er að koma fram­hald. Í spil­inu taka spil­arar að sér hlut­verk 
virkra í athuga­semdum. Þeir reyna að finna fyndn­ustu athuga­semd­ina við 
hverja fyr­ir­sögn. Spilið er undir miklum áhrifum frá Cards Against 
Humanity.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég fékk hug­mynd­ina upp­runa­lega þegar ég var að dunda mér við að reyna að 
búa til íslenska útgáfu af Cards Against Humanity. Það gekk ekki upp - 
aðal­lega af því að fall­beyg­ingar og önnur mál­fræðilög­mál gera 
eyðu­fyll­ingar erf­iðar. Þá datt ég niður á þá hug­mynd að nota 
athuga­semdir vef­miðl­ana stað­inn. Núna er upp­runa­lega spilið upp­selt og 
því aug­ljós­lega færi á gefa út nýja útgáfu. Ég hef líka eytt síð­ustu 
fjórum árum að safna kommentum og fyr­ir­sögnum og það var ákaf­lega erfitt 
að velja út. Maður var reyndar að vona sumir stjórn­mála­menn sem voru 
fyr­ir­ferð­ar­miklir árið 2015 hefðu látið sig hverfa en í stað­inn fá þeir 
að vera aftur með.
[adspot]Ef spilið hefur eitt­hvað þema þá er það ein­fald­lega firr­ing nútím­ans þar

sem mesta sam­skipta­bylt­ing allra tíma leiðir til þess að sam­skipti verða 
eitruð. Maður gæti grátið en með #Kommenta­kerf­inu þá getur maður hlegið 
í stað­inn.

Þegar ég ákvað að reyna að gefa út #Kommenta­kerfið fyrir fjórum árum þá 
náði ég að upp­fylla draum en ég varð að læra mikið á skömmum tíma. Ég 
þurfti meðal ann­ars að leggja stof­una heima undir spila­pökkun. Ég fékk 
vini og fjöl­skyldu með mér í lið. Við þurftum að brjóta saman hvern 
ein­asta spila­pakka. Síðan voru spjöldin ekki flokkuð í til­búna bunka 
heldur voru öll ein­tök af hverju spjaldi í búnti sem við þurftum síðan 
að sortera ofan í kassa. Lukku­lega kemur þetta allt til­búið núna.
Það er hægt að spila nýja spilið eitt og sér eða með gamla spil­inu. Það 
er reyndar auð­velt að sjá mun­inn á nýja og gamla spil­inu af því að ég 
hef meðal ann­ars lært að velja betri pappír. Ekki það að gamla útgáfan 
sé ómerki­legur pappír.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár