Galdur – Nýr íslenskur söngleikur settur upp í vor

Söng­leik­ur­inn Galdur ger­ist á Íslandi seint á 17. öld, á erf­iðum tímum í íslensku sam­fé­lagi. Öfund, illska og fáfræði eru afl­vakar atburða­rásar þar sem ung stúlka er sökuð um galdra og dæmd á bálið.

Helgi Þór Ingason höf­undur og Hilmar Örn Agn­ars­son org­anisti og kór­stjóri Söng­fé­lags­ins
hafa tekið höndum saman og ætla að setja söng­leik­inn Galdur upp vorið 2020. Helgi Þór er
unn­andi söng­leikja og aðspurður telur hann að hug­myndin um að setja saman söng­leik hafi
kviknað eftir að hann sá Ves­al­ing­ana í Þjóð­leik­hús­inu vorið 1988.

Fyrstu lögin í Galdri urðu til nokkrum árum seinna og sögu­þráð­ur­inn byrj­aði að mót­ast í kringum alda­mótin. „Söng­leikir snú­ast oft um ein­falda fléttu og átökin milli góðs og ills" segir Helgi Þór. „Þessi saga snýst öðrum þræði um það hve fljót við erum oft að hrapa að álykt­unum og dæma. Stundum verður ein­hvers­konar múgæs­ing í sam­fé­lag­inu og dóm­stóll göt­unnar getur verið býsna

grimmur".

[adspot]Sagan ger­ist á síð­asta hluta 17. aldar og fléttan snýst að sögn Helga Þórs um að
stjórn­völd á þeim tíma vildu gjarnan að athygli lýðs­ins beind­ist ekki að erf­iðum kjörum
almúg­ans - og höfð­ingj­unum sem höfðu það gott á meðan alþýðan svalt - heldur að öðrum
óvini. Sum sé and­skot­anum sjálfum sem tæki sér ból­festu í fólki og að eina ráðið í
bar­átt­unni við and­skot­ann væri að ráð­ast gegn honum, og senda hand­bendi hans á bálið.

Söng­fjelagið er kór undir stjórn Hilmars Arnar Agn­ars­sonar. „Við erum 60 manna bland­aður
kór og okkur finnst gaman að stíga út fyrir þæg­ind­ara­mmann og taka þátt í óhefð­bundnum
verk­efnum," segir Hilmar Örn.

Galdur verður einmitt vor­verk­efni Söng­fjelags­ins og verkið verður sett upp sem leik­lestur, með meg­in­á­herslu á flutn­ing tón­list­ar­innar. Ýmsir fleiri munu taka þátt í þess­ari upp­færslu, meðal ann­arra þjóð­laga­hljóm­sveitin Kólga. Mik­il­vægur áfangi náð­ist fyrir skemmstu þegar lett­neski útsetj­ar­inn Viktors Ritovs lauk við kórút­setn­ingar á tíu lögum í verk­inu.

Nú er búið að hleypa af stokk­unum hóp­fjár­mögn­unar­átaki á Karolina­fund til að fjár­magna upp­setn­ing­una, sem er umfangs­mikið verk­efni. Þeir sem styrkja fram­takið geta fengið allt frá miðum á sýn­ingu upp í kvöld­stund við flygil­inn á heim­ili höf­und­ar­ins, þar sem hann útskýrir hug­mynd­ina á bak­við verkið og leikur nokkur lög.

Þeir Hilmar Örn og Helgi Þór hlakka til kom­andi mán­aða í svið­setn­ingu og æfingum á Galdri. „Við ætlum að magna galdra­seið í vor," segja þeir félagar.

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár