Aðdáendur GusGus gefa út ljósmyndabók um hljómsveitina

Á ald­ar­fjórð­ungs­af­mæli raf­tón­list­ar­hljóm­sveit­ar­innar GusGus safnar hópur aðdá­enda fyrir útgáfu bókar um feril hennar.

Það þekkja flestir lands­menn raf­tón­list­ar­sveit­ina GusGus. Hún var stofnuð árið 1995 og er því ald­ar­fjórð­ungs­gömul um þessar mundir.

Til þess að fagna 25 ára ferli GusGus ætlar hópur af aðdá­endum frá Íslandi, Frakk­landi og Þýska­landi að búa til ljós­mynda­bók fyrir aðdá­endur um allan heim. Til­gang­ur­inn er að fara yfir feril hljóm­sveit­ar­innar og bjóða upp á ein­staka bók fyrir safn­ara. Safnað er fyrir útgáfu bók­ar­innar á Karolina fund.

[adspot]Meðlimir í hópnum eru miklir aðdá­endur GusGus og elska Ísland, hafa séð bandið á sviði og komið til lands­ins margoft. Þeir hafa einnig gert tvær bækur um landið: „ÍSLAND” og „Nuit Blanche”.

Hug­myndin af gerð bók­ar­innar kom fyrir um tveimur árum og er núna á loka­metr­unum.

Bókin mun inni­halda ein­stakar ljós­myndir af tón­leikum sveit­ar­innar, bak­sviði þeirra og opin­berum mynda­tökum en einnig per­sónu­legar myndir frá með­limum sveit­ar­innar og úr hópi aðdá­enda þeirra. Einnig mun fylgja með hannað efni af plötu­umslögum þeirra og mynd­böndum, blaða­úr­klippur… eins mikið efni og mögu­legt verður að koma fyrir til að byggja upp sjón­ræna ímynd sveit­ar­innar í þessi 25 ár sem liðin eru frá stofnun hennar.

Verk­efnið utan um GusGus 25 ára bók­ina er fyrir aðdá­endur, og verður list­rænt og auð­skilið fyrir alla, en þó ekki sölu­vara. Bókin á að end­ur­spegla heim­inn í kring um GusGus eins mikið og hægt er.

Til þess að geta prentað bæk­urnar þarf hóp­ur­inn sem stendur að verk­efn­inu að safna fjár­munum til að standa undir kostn­aði af prentun og hefur því farið af stað með söfn­un­ar­her­ferð á Karolina Fund.

Þeir sem styðja við verk­efnið geta nælt sér í ein­tak í for­sölu eða valið ein­hvern af öðrum pakka­til­boðum sem eru í boði á Karolina Fund síð­unni.

Hægt er að lesa meira um verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár