Með dreifingarsamning við Sony og safnar fyrir útgáfu á breiðskífu

Karitas var í Suzuki-skóla og gekk síðar til liðs við Reykja­vík­ur­dætur. Nú ætlar hún að hefa út fyrstu sóló­plötu sína í byrjun næsta árs, og safnar fyrir því á Karolinda fund.

Karítas Óðins­dóttir er söng­kona, laga­höf­undur og plötu­snúður fædd og upp­alin í Borg­ar­firð­inum. Hún gaf út sína fyrstu EP plötu haustið 2019 sem nefn­ist „Songs 4 Crying” og má lýsa tón­list­inni sem dimmri popptón­list með R&B ívafi. Karítas hefur komið víða að í tón­list­ar­sen­unni bæði hér á landi sem plötu­snúður og erlendis með hljóm­sveit­inni sinni, Reykja­vík­ur­dætur, en sú sam­vinna hvatti hana til þess að sækj­ast eftir sól­ó­ferli og hefur fengið bæði góðar við­tökur og hún skrif­aði undir dreif­ing­ar­samn­ing við Sony Denmark. Í byrjun apríl 2020 gaf hún út fyrsta sín­gúl­inn af kom­andi breið­skífu sem nefn­ist „Shame” og er núna söfn­unin fyrir plöt­unni í fullum gangi inná Karolina fund.

Karítas seg­ist hafa verið í tón­list síðan hún muni eftir sér. „Þegar ég var 4 ára þá sendi mamma mig í Suzuki skól­ann til þess að læra á fiðlu og gerði það í nokkur ár. Hug­myndin að sóló verk­efni hafði alltaf verið efst í huga hjá mér en ég átti alltaf erfitt með að láta vaða þar sem að ég byrj­aði ekki að semja mína eigin tón­list fyrr uppúr tví­tugt. Ég hélt að ég hefði það bara ekki í mér en svo í kjöl­far af miklum missi opn­að­ist fyrir eitt­hvað og lögin byrj­uðu að flæða. Síðan í jan­úar er ég búin að vera að vinna í nýrri tón­list ásamt góðu fólki og er mjög spennt að koma henni frá mér. Er ótrú­lega þakk­lát fyrir allt fólkið í kringum mig og góðu hlut­ina sem að hafa verið að ger­ast, þar á meðal að hafa skrifað undir samn­ing­inn hjá Sony. Þetta ýtir veru­lega undir drif­kraft­inn til að gefa út og gera meira.“

[adspot]Hún segir að platan snú­ist um per­sónu­legar lífs­reynslur í tengslum við ást­ina og alls­konar til­finn­ingar sem hægt sé að finna í því mengi. „Það má einnig lýsa tón­list­inni sem dimmri popptón­list með R&B ívafi og eru lögin samin út frá hráum til­finn­ingum. Ég finn mikla sköp­un­ar­gleði í því að radda og verður mikið af til­raunar- og draum­kenndum rödd­unum á plöt­unni. Fyrsti sín­gúll­inn kom út í apríl á þessu ári sem nefn­ist „Shame" en hann er hægt að finna á öllum helstu streym­isveitum.“

Stefnt er að því að hefa plöt­una út í byrjun árs 2021 ef allt gengur eftir!

Hægt er að forp­anta plöt­una á vínyl á Karolina fund með því að styrkja og fleira.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár