Skapandi óreiða Jóhanns Jóhannssonar – síðpönk, diskó og Hollywood-frægð

Annar höf­undur heim­ild­ar­myndar um tón­skáldið Jóhann Jóhanns­son segir að fer­ill hans ætti að veita inn­blástur öllum mann­eskjum sem hafa áhuga á sköp­un­ar­mætt­inum því að saga hans sé frá­bært dæmi um það hversu langt er hægt að kom­ast á barns­legri for­vitni.

Orri Jónsson segir að það hafi verið mjög sérstakt hvernig Jóhann komst í þá stöðu að verða eitt eftirsóttasta kvikmyndatónskáld Hollywood.
Orri Jónsson segir að það hafi verið mjög sér­stakt hvernig Jóhann komst í þá stöðu að verða eitt eft­ir­sóttasta kvik­mynda­tón­skáld Hollywood. Mynd: Aðsend mynd

Í tvö og hálft ár hafa Orri Jónsson og Davíð Hörgdal Stef­áns­son rann­sakað 30 ára list­feril tón­skálds­ins Jóhanns Jóhanns­sonar. Afrakst­ur­inn verður heim­ild­ar­mynd í fullri lengd, ásamt veg­legu bók­verki sem nú er í for­sölu til 7. júlí á Karolina Fund.

Rannsóknarstarf um kæran vin

„Kira Kira, tón­list­ar­kona og vin­kona mín til margra ára, læddi að mér hug­mynd að heim­ild­ar­mynd um Jóhann í árs­byrjun 2019, segir Orri Jónsson, tón­list­ar­maður og ljós­mynd­ari. Við Kira vorum bæði vinir Jóhanns og urðum því fyrir miklu áfalli þegar hann lést, allt of ungur og með tón­list­ar­feril í fullum blóma. Ég var hik­andi í fyrstu að takast á við verk­efni eins og þetta og benti henni á að tala við Davíð, sem hefur fylgst náið með Jóhanni um ára­bil og þekkti feril hans að mörgu leyti betur en ég.

Þau Kira hitt­ust og sann­færðu mig í fram­hald­inu um að gera þetta með þeim. Eftir eins árs rann­sókn­ar­vinnu ákvað Kira þó að draga sig út úr verk­efn­inu vegna þess að henni fannst hún standa of nærri við­fangs­efn­inu, það tekur til­finn­inga­lega á að fara á djúpið í svona rann­sókn­ar­vinnu, sér­stak­lega um vin sinn. Hún sagði sig því frá þessu og skildi eftir í okkar höndum en er þó í kall­færi ef við þurfum álit á hinu og þessu í ferl­inu,“ segir Orri.

Að vita ekkert hvað maður er að gera … en gera það samt

„Við Davíð höfum þekkst lengi og mikið spjallað um eðli listar og sköp­unar, ekki síst um mátt­inn sem felst í ótta­lausri til­rauna­mennsku, s.s. því að gera meira en maður í raun­inni kann. Til­vitnun í Kim Gordon hefur verið límd upp á vinnu­stof­unni okkar síð­ustu tvö ár: „First records succeed now and again because you don't quite know what you're doing but you go ahead and do it anyway.“ Jóhann vann oft á þennan hátt; hann hafði ákveð­inn grunn í tón­list úr æsku, smá básúna og píanó, en frá ung­lings­árum not­aði hann í raun hvert verk­efni til að kenna sér eitt­hvað nýtt á þennan til­rauna­kennda máta,“ heldur Orri áfram.

[adspot]

Davíð bætir við: „Og þetta gerði hann allt til enda, t.d. að hóa saman nokkrum tón­list­ar­vinum sínum í yfir­gefna vöru­skemmu til að taka upp hljóð­mynd fyrir rán­dýrar stór­myndir. Margir sjá fyrir sér að hjá virtum og frægum lista­mönnum sé sköp­un­ar­ferlið skýrt og straum­línu­lagað – en það sem gerir Jóhann að mínu mati ein­stakan er að hann treysti alltaf mjög mikið á inn­sæið. Margir vinir og sam­starfs­fólk Jóhanns hafa lýst því að áður en hann byrj­aði að semja tón­list fyrir ákveðin verk hafi hann lagst í rann­sókn­ar­vinnu, lesið alls kyns texta og ígrundað þema verks­ins á dýpt­ina. Þannig lagði hann af stað inn í ný verk­efni hlað­inn af hugs­unum, hug­myndum og til­finn­ingum um hvernig best væri að nálg­ast hlut­ina. Restin af ferl­inu fólst síðan í eins konar óreiðu­kenndri fjár­sjóðs­leit með vinum – að þreifa sig áfram þar til rétti hljóð­heim­ur­inn fannst.

Svo er mik­ill styrkur fólg­inn í þessu sam­starfi okkar Orra, sem höfum verið vinir lengi. Verk­efnið er mjög per­sónu­legt og drifið áfram af ást í garð Jóhanns og virð­ingu fyrir því hvernig hann vann – og hvað tón­listin hans er óvenju hlaðin af til­finn­ingum. Ég kom inn í þetta sem „sér­fræð­ingur“ í tón­list Jóhanns, enda hafði ég fylgst grannt með ferli hans frá árinu 2006. Orri hafði ekki skoðað feril hans jafn mark­visst og ég en á móti kemur að þeir voru vinir frá ung­lings­ár­unum og báðir algerir nördar í gömlum hljóð­græjum og ana­log-hljómi. Að sjálf­sögðu hefðu aðilar um allan heim getað gert flotta heim­ild­ar­mynd og bók um Jóhann, en það hefði alltaf verið meira „utan frá“ og miklu almenn­ara eðlis. Orri og Kira Kira hafa lifað og hrærst í íslenska tón­list­ar­sam­fé­lag­inu und­an­farna ára­tugi og inn­sýn þeirra inn í það hvernig mann­eskja Jóhann var skiptir höf­uð­máli og gerir nálgun okkar á þetta við­fangs­efni ein­staka,“ segir Davíð.

Ekki svo alvarlega tónskáldið

Orri bætir því við að eitt af því sem þá langar að gera sé að stinga á þá mýtu að Jóhann hafi verið þung­brýndur og alvar­legur lista­maður sem sat einn við píanóið í tón­skálda-stell­ingum og skrif­aði upp nótur. „Þetta er ímynd sem hann átti örugg­lega þátt í að móta sjálfur, sér­stak­lega eftir að fer­ill­inn fór á flug og hann vildi láta taka sig mjög alvar­lega, en þeir sem þekktu hann vita betur. Hann var oft mjög galsa­kenndur og skemmti­legur með djúpan og smit­andi hlátur, gríð­ar­lega for­vit­inn um lífið, heim­speki, hljóð­heim og vís­indi, for­dóma­laus, opinn og leit­andi. Eins og flestar mann­eskjur var hann líka mót­sagna­kenndur, hann kom sér oft í aðstæður þar sem hann hafði litla stjórn á í sköp­un­ar­ferl­inu, og leit­aði gjarnan fanga í þeirri ringul­reið, en hann var líka mikið kontról-frík og full­komn­un­ar­sinni. Stjórn­semin kom honum oft í koll þegar hann vann í aðstæðum sem kröfð­ust meira jafn­ingja­sam­starfs, eins og innan hljóm­sveita.“

„Það er einmitt þessi nálgun Jóhanns á sköp­un­ar­ferlið, sem við fyrstu sýn kann að hljóma þver­sagna­kennd, sem okkur þykir heill­andi og langar að kryfja betur,“ segir Davíð. „Jóhann var gríð­ar­lega mennt­aður lista­maður en hafði engar háskóla­gráður. Við höfum talað við mik­inn fjölda sam­starfs­fólks og vina hans út um allan heim og þetta fólk talar ítrekað um hvað hann hafi verið vel að sér í öllum fjár­anum; sögu, vís­indum, bók­menntum, kvik­myndum, heim­speki ... en vit­neskja hans kom ekki frá skóla­stofn­unum, heldur í gegnum óslökkvandi for­vitni og for­dóma­lausa leit sem var alger­lega sjálf­drifin. Okkur langar að kryfja þessa nálgun hans á nám og sköp­un­ar­ferlið því þetta er í raun mjög hvetj­andi og fal­leg saga, þrátt fyrir að vera á tíðum erfið.“

Hollywood þefaði Jóhann uppi

Orri segir að það hafi verið mjög sér­stakt hvernig Jóhann komst í þá stöðu að verða eitt eft­ir­sóttasta kvik­mynda­tón­skáld Hollywood. „Hann kom alger­lega bak­dyra­megin inn í þetta, hafði aldrei unnið sem lær­lingur fyrir önnur tón­skáld eins og venjan er, heldur fékk verk­efni út frá þeirri tón­list sem hann hafði gert sjálfur, ekki síst Engla­börn, IBM 1401, For­dlandia og svo fram­vegis. Svo var hann nógu þrosk­aður – og þrjóskur – til að standa fast á sínu og láta Hollywood ekki beygja sig niður í ein­hverja með­al­mennsku.“

„Saga hans er því á margan hátt mjög óvenju­leg,“ segir Davíð að lokum, og alls ekki dæmi­gerð saga um þroska­feril lista­manns. „Ferill Jóhanns ætti að veita inn­blástur öllum mann­eskjum sem hafa áhuga á sköp­un­ar­mætt­inum því að saga hans er frá­bært dæmi um það hversu langt er hægt að kom­ast á barns­legri for­vitni og leik­andi vinnu­brögðum. Þarna sam­ein­umst við Orri full­kom­lega – í þeirri trú að öfl­ug­asta listin verði til þegar leik­ur­inn ræður för.“

Hægt er að styðja við verk­efnið hér til 7. júlí.

Facebook-síða verk­efn­is­ins.

Instagram-síða verk­efn­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár