Frumkvöðlar í lífrænni ræktun hafa synt á móti straumnum í áratugi með lítinn stuðning

Anna María Björns­dóttir er líf­rænn neyt­andi og safnar nú fyrir heim­ild­ar­mynd­inni Lífrænt líf.

Anna María Björns­dóttir er líf­rænn neyt­andi en hún er að vinna að heim­ild­ar­mynd­inni Lífrænt líf sem fjallar um líf­ræna ræktun á Íslandi. Einungis eru um 30 líf­rænir bændur á Íslandi af um 3.000 og hefur sú tala nán­ast staðið í stað í ára­tugi á meðan mörg önnur lönd í kringum okkur hafa jafnt og þétt verið að auka við líf­ræna ræktun. Anna María var að setja af stað söfnun á Karolina fund fyrir seinni hlut­anum á upp­tökum og eft­ir­vinnslu á heim­ild­ar­mynd­inni Lífrænt líf og stendur söfn­unin til 3.ágúst 2021. Lífrænt líf verður frum­sýnd árið 2022.

Hvaðan kom hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég bjó í Danmörku í tíu ár en tengda­fjöl­skyldan mín á og rekur líf­rænan bóndabæ þar í landi. Það var í gegnum þau sem ég kynnt­ist því hvað líf­ræn ræktun er en ég hafði ekki hug­mynd um hvað þetta var þegar ég kynnt­ist mann­inum mínum. Á meðan að ég bjó i Danmörku varð ég ólétt og þar í landi var mikil umræða um líf­ræna ræktun og mik­il­vægi líf­rænnar fæðu á með­göngu til að draga úr magni eit­ur­efna sem fóstrið verður fyrir.

Stefna margra danskra sveit­ar­fé­laga er að börnum í leik­skólum sé boðið upp á líf­rænt fæði og þannig var það þar sem við bjuggum. Hug­myndin að þess­ari mynd kvikn­aði fyrir nokkrum árum en ég fór ekki að hugsa um þetta af alvöru fyrr en við fjöl­skyldan fluttum til Íslands fyrir tveimur árum síðan. Að vera líf­rænn neyt­andi var nefni­lega mjög auð­velt í Danmörku en allt annað umhverfi blasti við okkur við flutn­ing til Íslands,“ segir hún.

[adspot]

Anna María bendir á að Evr­ópu­sam­bandið leggi mikla áherslu á að efla líf­ræna ræktun í álf­unni fram til árs­ins 2030 en lítið sé að ger­ast í þessum mála­flokk á Íslandi.

„Ég fór því af stað í rann­sókn­ar­leið­angur um líf­ræna ræktun á Íslandi en það er efni­viður heim­ild­ar­mynd­ar­innar Lífrænt líf. Sögur frum­kvöðl­anna í líf­rænni ræktun á Íslandi eru ein­stakar en margir þeirra hafa synt á móti straumnum í ára­tugi með lít­inn stuðn­ing. Sögur þeirra end­ur­spegla mik­inn eld­móð og ástríðu fyrir að rækta mat­væli í sátt við jörð­ina og umhverfið. Í heim­ild­ar­mynd­inni Lífrænt líf kynn­umst við nokkrum þess­ara bænda og frum­kvöðla í líf­rænni ræktun á Íslandi.“

Hver er þín veg­ferð út í heim­ild­ar­mynda­gerð?

„Mín veg­ferð út í heim­ild­ar­mynd­ar­gerð er svo­lítið óhefð­bundin. Ég er menntuð söng- og tón­list­ar­kona og hef gefið út 4 plötur, tvær sóló­plötur með eigin tón­list og tvær plötur með Norrænu spuna­söng­hljóm­sveit­inni IKI í Danmörku. Ein sóló­platan mín hét „Hver stund með þér“ en hún inni­hélt tón­list sem ég samdi við ást­ar­ljóð sem afi minn, Ólafur Björn Guð­munds­son orti til ömmu minnar, Elínar Mar­íus­dóttur yfir þeirra ævi saman, sem voru um 60 ár. Þessi fal­lega saga ömmu og afa og allt myndefnið sem afi hafði tekið upp varð til þess að ég ákvað að gera heim­ild­ar­mynd um þau. Ég fram­leiddi mynd­ina en leik­stjórn var í höndum Sigríðar Þóru Ásgeirs­dóttur, klipp­ing í höndum Ólafs Más Björns­sonar og upp­tökur sáu Tjarn­ar­gatan um. Myndin var sýnd á RIFF 2015, RÚV og Sjón­varpi Símans 2020.

Sú reynsla sem ég fékk af vinnu við heim­ild­ar­mynd­ina „Hver stund með þér“ kveikti hjá mér óslökkvandi áhuga fyrir heim­ild­ar­mynda­gerð. Efni­við­ur­inn hefur verið það sem hefur drifið mig áfram og löngun til að deila efn­inu með sem flestum,“ segir hún.

Hér má finna verk­efnið á Karolina fund.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár