„Mín tilfinning og ósk er að þessi mynd verði einhvers konar heilunarferli fyrir alla“

Siggi Kinski og Stefán Árni safna nú fyrir þriggja þátta heim­ild­ar­mynd um lit­ríkan og dramat­ískan feril GusGus.

Siggi Kinski er kvik­mynda­gerð­ar­maður, tón­list­ar­maður og list­rænn stjórn­andi. Hann er einn af stofn­endum fjöl­lista­hóps­ins GusGus en hefur búið og starfað við kvik­mynda­gerð erlendis síð­ast­liðin 18 ár. Á síð­ustu árum hefur Siggi samið tón­list á ný með GusGus og er afrakstur þeirrar sam­vinnu plata árs­ins hjá Íslenskum tón­list­ar­ver­launum, Mobile Home.

Hann rekur fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Kjól & Anderson, ásamt Stefáni Árna og Baldri Stef­áns­syni. Kjól & Anderson er að und­ir­búa fram­leiðslu á heim­ild­ar­mynd­inni Impossi­ble Band, sem fjallar um langan, dramat­ískan og lit­ríkan feril GusGus. Siggi og Stefán Árni hafa unnið sem leik­stjórar um heim allan undir nafn­inu Arni & Kinski. Þeir safna nú fyrir verk­efn­inu á Karolina Fund.

[adspot]

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Við Stefán vorum einir af stofn­endum GusGus og með­limir í um sex ár. Þetta tíma­bil var allt í senn skemmti­legt, spenn­andi, grát­bros­legt, fárán­legt, sorg­legt og ógleym­an­legt. Sem kvik­mynda­gerð­ar­mönnum hefur okkur lengi langað til að gera þessu skil á ein­hvern hátt. Ein hug­mynd var að gera leikna gam­an­þætti, enda voru þarna skraut­legir karakt­erar, stór egó, sér­vitr­ingar; flestir sjálf­um­glaðir og klikk­aðir snill­ingar.

Árið 2019, þegar ég byrj­aði að vinna tón­list aftur með GusGus, hafði Biggi Veira búið um sig sem nokk­urs konar ein­ræð­is­herra. Mér datt í hug að gera mynd um það hvernig GusGus fór frá því að vera 9 manna útópískt lýð­ræð­is­ríki í það að vera ein­ræð­is­ríki þar sem Veiran veður yfir allt og alla á skítugum pinna­hæl­unum, sáldr­andi brjáli yfir hóg­væran séntil­mann­inn Daníel Ágúst, sem á þessum tíma var orð­inn einn eftir í kot­inu með harð­stjór­anum,“ segir Siggi.

En GusGus hafi alltaf verið á stöð­ugu breyt­inga­skeiði. Hugar og hjörtu hafi opn­ast á síð­ustu árum, kær­leik­ur­inn hafi vaxið, heilun átt sér stað, og nú síð­ast hafi Biggi Veira fengið lang­þráð Íslensk tón­list­ar­verð­laun fyrir bestu plöt­una. „Það mis­ræmi hefur nú verið lagað,“ segir Biggi. „Nú er hægt að fara gera eitt­hvað skemmti­legt.“

Þannig að í mynd­inni munu áhorf­endur kynn­ast GusGus í dag en á sama tíma kynn­ast sög­unni með við­tölum við alla fyrrum með­limi hóps­ins og upp­lif­unum þeirra í GusGus.

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins.

„Mín til­finn­ing og ósk er að þessi mynd verði ein­hvers konar heil­un­ar­ferli fyrir alla sem hafa lagt hönd á plóg­inn í GusGus, eða fyrir alla þá sem hafa „farið í gegnum hakka­vél­ina,“ eins og Veiran orð­aði það ein­hvern tím­ann. Ást og frelsi er þemað í öllum okkar verkum á einn eða annan hátt. Vonandi snertir þessi saga jafn djúpt við áhorf­endum eins og GusGus snerti við, eða braut, hjarta hvers og eins sem hefur verið með­limur í þessu óút­reikn­an­lega fyr­ir­bæri. Impossi­ble Band,“ segir Siggi.

Hægt er að styðja við verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár