Vilja varpa ljósi á hugmyndaauðgi og hagleik forfeðra sinna

Afkom­endur Símonar Daníels Pét­urs­sonar, upp­finn­inga- og hag­leiks­manns frá Vatns­koti, stefna á að opna Vatns­kots safn í sömu bygg­ingu og Bíla­safnið á Breið­dals­vík. Harley Davidson hjól Péturs, sonar Símonar, verður í önd­vegi.

Helga Hrönn Sigursteinsdóttir Melsteð á Harley Davidson hjólinu skömmu eftir að hún fékk það afhent á dögunum.
Helga Hrönn Sig­ur­steins­dóttir Melsteð á Harley Davidson hjól­inu skömmu eftir að hún fékk það afhent á dög­unum. Mynd: Aðsend mynd

Á dög­unum tók hópur afkom­enda Símonar Daníels Pét­urs­sonar, upp­finn­inga- og hag­leiks­manns frá Vatns­koti, sig saman og hóf und­ir­bún­ing að Vatns­kots­safni en þau safna nú á Karolina Fund fyrir safn­inu.

Símon og eig­in­kona hans Jónína Sveins­dóttir úr Grafn­ingi hófu sinn búskap í Vatns­koti í Þing­valla­sveit og eign­uð­ust fimm börn sem öll náðu háum aldri. Þau voru í ald­urs­röð: Pétur, Helga, Katrín, Svein­borg og Aðal­steinn. Fleiri af afkom­endum Vatns­kots­hjón­anna en börnin hafa þótt útsjón­ar­söm og hand­lagin svo það kemur þeim sem til þekkja ekki á óvart að hluti afkom­enda hafi tekið sig saman og hafið und­ir­bún­ing að Vatns­kots­safni.

[adspot]

Þegar Helgu Hrönn Sig­ur­steins­dóttur Melsteð, langa­fa­barni þeirra hjóna, bauðst til kaups Harley Davidson árgerð 1931 sem er upp­gert hjól Péturs frá Vatns­koti fóru hjólin að snú­ast og und­ir­bún­ingur safns­ins fór af stað fyrir alvöru. Að sögn Helgu var það bara of gott tæki­færi til að sleppa, að fjár­festa í hjól­inu, enda teng­ist stór hluti af æskuminn­ing­unum umræðu um Pétur frænda og ótrú­legum hæfi­leikum hans við að búa til og gera við tæki og tól.

„Ég ólst upp við að heyra sagðar sögur af langafa Símoni þús­und­þjala­smið og ömmu­bróður mínum Pétri Símonar. Þegar fregnir af því að upp­gert hjólið hans Péturs væri til sölu bár­ust og við ætt­in­gj­arnir skoðum leiðir til að sam­ein­ast um kaup á því þá átti ég frekar auð­velt með að ákveða að kaupa það ásamt manni mínum Ingólfi Finns­syni. Þiggja þá í stað­inn aðstoð ætt­ingja við að fjár­magna upp­setn­ingu á Vatns­kots­safni. Við vorum nokkur af afkom­end­unum í góðu sam­bandi þegar hjólið bauðst til kaups og þá voru rifj­aðar upp sögur af þeim feðgum og fleirum úr frænd­garð­inum.

Það væri hægt að sitja í fleiri daga og rifja upp magn­aðar sögur af því sem þeir aðhöfð­ust og fram­kvæmdu, enda greini­lega dugn­að­ar­forkar sem hafa hugsað í lausnum. Má þar nefna snjó­sleða sem Pétur byggði að hluta til úr gam­alli flug­vél, en talið er að sleði þessi sé sá fyrsti sinnar teg­undar í Evrópu,“ segir Helga.

Helga segir enn fremur að með upp­setn­ingu safns­ins langar þau að varpa ljósi á hug­mynda­auðgi og hag­leik for­feðra þeirra og leyfa fleirum að kynn­ast sög­unum af þeim sem þau ólust upp með. Einn af mögu­leik­unum til þess að koma safn­inu á lagg­irnar var að fjár­magna hluta upp­setn­ing­ar­innar með hóp­fjár­mögnun á Karolina Fund.

„Við hjónin opn­uðum á síð­asta ári í félags­skap val­in­kunnra félaga okkar, Factory Car Museum í heimabæ okkar Breið­dals­vík. Þar höfum við í lausu plássi haf­ist handa við að opna Vatns­kots safn þar sem hjólið verður í önd­vegi, en við höfum einnig viðað að okkur ýmsum munum og verk­færum úr Vatns­koti. Einnig kemur til greina að sýna muni sem tengj­ast með ein­hverjum hætti hag­leik afkom­enda langömmu og langafa.

Við eigum enn eitt­hvað í land með að und­ir­búa hús­næðið en stefnum engu að síður á opnun 17. júní. Einnig erum við enn að fal­ast eftir munum til sýnis á safn­inu, jafn­vel að láni, þar sem við stefnum á að skipta reglu­lega út munum,“ segir hún að lokum.

Hægt er að styðja við söfn­un­ina hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár