Fékk „bakteríuna“ eftir Söngvakeppni sjónvarpsins

„Lögin hafa orðið til á yfir 20 ára tíma­bili og er því nokkur breidd í þessu hjá mér; allt frá stíg­andi ball­öðum til eins konar rokk­óp­eru,“ segir Pétur Arnar Krist­ins­son sem blásið hefur til söfn­unar fyrir útgáfu fyrstu breið­skífu sinnar.

Pétur Arnar Krist­ins­son er fæddur á því herr­ans ári 1974. Hefur hann lengi feng­ist við laga­smíðar en það var ekki fyrr en lagið hans Aldrei segja aldrei komst inn í Söngvakeppni Sjón­varps­ins 2012 að lag eftir hann var gefið út. Enn liðu svo nokkur ár þar til næstu tvö lög voru tekin upp árið 2018. Svo komu lögin í hollum og nú er hann að leggja loka­hönd á síð­ustu fimm lögin á sína fyrstu breið­skífu. Flytj­endur eru, auk höf­undar, ekki af verri end­anum en það eru þau Geir Ólafsson, Íris Lind Veru­dóttir og Sigurður Ingi­mars­son.

Fylgjast má með ferl­inu og tón­list hans á Facebook.

Hefur Pétur nú blásið til söfn­unar fyrir útgáf­unni hjá Karolina Fund.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Ég hef lengi átt mér þennan draum en löng­unin til að gera úr lög­unum eitt­hvað áþreif­an­legt eins og geisla­disk hefur ágerst eftir með hverju lagi sem ratar í stúdíó, þannig að nú um ára­mótin ákvað ég að láta slag standa og setja í upp­töku­ferli þessi lög sem vant­aði fyrir plötu,“ svarar Pétur. Söngvakeppnin 2012 hafi markað upp­hafið. „Þar fékk ég bakt­er­í­una svo að segja, þó ég hafi ann­ars verið búinn að vera að taka upp lagaskissur heima hjá mér um ára­bil.

Svo mörgum árum seinna kom að því lagi sem mér fannst ég bara verða að koma frá mér, Von­ar­stjarna og þá var svo hepp­inn að finna Snorra Snorra­son, upp­töku­stjóra, Ingólf Magn­ús­son bassa­leik­ara og Þorvald Kára Ing­veld­ar­son í verkið og komu tvö lög út árið 2018. Hefur þetta sam­starf hald­ist far­sæl­lega síðan, er ráð­ist var í tölu­vert stærri skammt árið 2020 og loks þessi lög sem eru nú að verða klár. Bak­raddir hef ég fundið í félögum mínum í Rokkkór Íslands.“

Um annan hljóð­færa­leik en bassa og trommur og um útsetn­ingar hef Pétur séð sjálfur, þótt þeir Ingólfur og Þor­valdur hafi að mestu „leikið lausum hala á bass­ann og trommur, ein­ungis með laus­legri hlið­sjón af mínum skissum: Er ég afskap­lega ánægður með útkom­una!“

Er eitt­hvað þema eða rauður þráður í verk­efn­inu?

„Lögin hafa orðið til á yfir 20 ára tíma­bili og er því nokkur breidd í þessu hjá mér; allt frá stíg­andi ball­öðum til eins konar rokk­óp­eru,“ segir Pétur. Tvö lag­anna séu „instru­mental”.

„Ætli þráð­inn sé ekki að finna í text­unum? Þeir eiga það til að inni­halda hvatn­ing­ar­orð og hug­hreyst­ingar sem end­ur­spegl­ast í titl­unum; Aldrei segja aldrei, Gengur betur næst, Fyrir þér, Syngdu með,“ segir hann og tekur exta­dæmi: „Komdu út í straum­inn, taktu taum­inn, vertu vinur með; hvort sem ertu´ í leiknum lífs­ins biskup, kóngur eða peð.. „

Þá segir hann text­ana vera hug­leið­ingar um lífið og „þetta að vera til og hvernig við notum tím­ann okkar hér á jörð. Lagið Tíminn er dæmi það.“

Fyrsta lagið hafi ef til vill verið und­an­tekn­ingin, hvað stíl varðar, en trommu­leik­ar­inn lýsti því sem „tri­bal” rokki. „Ég hef það fyrst, svo að fólk gangi ekki að ein­hverjum stíl sem gefnum hjá mér: Þetta er jú bland í poka.“

Pétur hefur í nokkrum til­fellum tekið upp enskar útgáfu sam­hliða hinum íslensku en á plöt­unni er ein­ungis sungið á íslensku.

Stiklur af lög­unum 12 má hlusta á hér.

Eitthvað að lokum sem þú vilt að komi fram?

„Tja, Þar sem sum­arið er að hlaupa frá okkur ákvað ég að taka smá for­skot á sæl­una og gefa instru­mental­inn Fössari, sem verður á plöt­unni, út í enskri útgáfu, Friday, ásamt mynd­bandi og örlitlum bak­radda­söng.“

Kom lagið út í öllum helstu net­versl­unum (Spotify, Amazon o.fl.) síð­asta föstu­dag. „Og platan mun svo -ef söfn­un­ar­mark­mið næst- fylgja snemma í sept­em­ber,“ segir Pétur.

Hér má kynna sér og styrkja verk­efnið á Karolina Fund.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár