Brúðuleikhús á heimsmælikvarða á Hvammstanga

Aðra helg­ina í októ­ber fer fram brúðu­lista­há­tíð á Hvamms­tanga en hátíðin er sú eina sinnar teg­undar sem haldin er á Íslandi. Þar verður hægt að sjá „heimsklassa“ sýn­ingar víðs vegar að úr heim­inum.

Greta Clough er list­rænn stjórn­andi Hand­bendis brúðu­leik­húss sem heldur HIP Fest, Hvamms­tangi International Festival. Um er að ræða brúðu­lista­há­tíð, sá einu sinnar teg­undar á Íslandi. Hátíðin verður haldin í annað sinn dag­ana 8.-10. Október og hægt er að leggja verk­efn­inu lið á Karolina Fund.

[adspot]

Brúðu­leik­húsið Hand­bendi er hand­hafi Eyr­ar­rós­ar­innar fyrir fram­úr­skar­andi menn­ing­ar­verk­efni á lands­byggð­inni. Greta er þekktur frum­kvöð­ull í stjórnun leik­húsa og hefur unnið til alþjóð­legra verð­launa sem höf­undur, leik­stjóri og brúðu­leik­ari. Hún er með MA í lista­stjórnun og menn­ing­ar­stefnu, er fyrr­ver­andi lista­maður húss­ins hjá hinu heims­fræga Little Angel leik­húsi í London og hefur unnið með BBC Worldwide, BBC Radio 4, Tiger Productions, Studio Reykja­vik og Go to Sheep Productions í sjón­varpi, kvik­myndum og útvarpi. Hún er einnig for­seti Íslands­deildar UNIMA, alþjóða­sam­taka brúðu­lista­manna.

Alþjóð­lega brúðu­lista­há­tíðin á Hvamms­tanga var fyrst haldin árið 2020 og var í fram­hald­inu valin menn­ing­ar­verk­efni árs­ins á Norð­ur­landi vestra.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Eftir að ég flutti til Hvamms­tanga frá London í lok árs 2015 fór ég að íhuga alvar­lega þau miklu jákvæðu áhrif á sam­fé­lög úti á landi brúðu­lista­há­tíðar víða um heim hafa,“ segir Greta. „Ég hafði oft séð þessi jákvæðu áhrif með eigin augum og komst fljótt á þá skoðun að alþjóð­leg brúðu­lista­há­tíð á Hvamms­tanga gæti með tíð og tíma orðið veru­leg lyfti­stöng fyrir svæðið. Svo var engin brúðu­lista­há­tíð til á Íslandi og mér fannst ein­boðið að bæta einni slíkri við inni í sviðs­listaflóru lands­ins. Ég skrif­aði fyrstu styrk­um­sókn­ina 2017 fyrir HIP árið 2017, en það var ekki fyrr en 2019 sem sú vinna fór að bera árangur og ég gat haldið fyrstu hátíð­ina 2020. Nú erum við að vinna að því að geta gert hana að glæstum árlegum við­burði. Söfnunin á Karolina Fund er lyk­il­þáttur í því.“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins.

„HIP er hátíð brúðu­listar sam­tím­ans þar sem fjöl­breyttar sýn­ingar, hvaðanæva að úr heim­inum, sem eiga það sam­merkt að vera í heimsklassa, koma til Íslands og fyr­ir­hitta íslenska áhorf­endur og íslenska lista­menn sem sýna einnig á hátíð­inni. Þetta er því afar mik­il­vægt og kær­komið tæki­færi fyrir bæði almenna áhorf­endur, sem og þátt­töku­lista­menn og aðra fag­menn í sviðs­listum, til að kynn­ast því allra besta sem er að ger­ast á erlendri grundu og til að erlendir lista­menn beri hróður íslenskrar brúðu­listar til sinna heima­landa.

Í ár taka 32 lista­menn þátt í hátíð­inni, frá 8 þjóð­löndum og 3 heims­álfum. Leik­sýn­ing­arnar eru 9, kvik­mynd­irnar 2, ásamt sýn­ingu á brúð­unum sjálfum og fjölda vinnu­smiðja. Til sam­ans hafa leik­sýn­ing­arnar unnið til um 100 verð­launa um heim allan, því er ljóst að dóm­nefnd­inni okkar er ærinn vandi á höndum að velja Sýningu hátíð­ar­innar sem eru aðal­verð­launin okkar, og þá sýn­ingu sem fær Skollann, en þau verð­laun eru hvatn­ing­ar­verð­laun veitt fyrir nýsköpun í brúðu­leik.“

Eitthvað sér­stakt sem þú vilt að komi fram um þitt verk­efni?

„Það verður rosa­lega gaman á hátíð­inni! Reynslan frá því í fyrra segir okkur að þetta sé virki­lega magn­aður við­burður sem á fram­tíð­ina fyrir sér. Ég vil hvetja alla til að kynna sér hátíð­ar­dag­skrána, kaupa sér miða á Karolina (verður aldrei hægt að fá aðgangskort ódýrar!) og mæta til Hvamms­tanga og njóta brúðu­leik­húss á heims­mæli­kvarða aðra helg­ina í októ­ber.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár