Stuttmyndin DÓTTIR er „ástarbréf til Íslands“

Sofia Novakova, leik- og kvik­mynda­gerð­ar­kona frá Slóvakíu, er þessa dag­ana að taka upp stutt­mynd­ina DÓTTIR hér á landi. Safnað er fyrir útgáfu mynd­ar­innar á Karolina Fund.

DÓTTIR er stuttmynd um ást, þráhyggju og brotna sjálfsmynd.
DÓTTIR er stutt­mynd um ást, þrá­hyggju og brotna sjálfs­mynd. Mynd: Aðsend

Sofia Novakova, leik- og kvik­mynda­gerð­ar­kona frá Slóvakíu sem hefur meðal ann­ars komið fram í þátt­unum Van Helsing á Netflix og Carniwal Row á Amazon Prime, er þessa dag­ana búsett á Íslandi í þeim til­gangi að taka upp stutt­mynd­ina DÓTTIR, sem fjallar um ást, þrá­hyggju og brotna sjálfs­mynd.

Sagan og hand­ritið er eftir Sofiu sjálfa sem einnig leikur í mynd­inni ásamt íslensku leikkon­unni Rakel Ýr Stef­áns­dóttur. Safnað er fyrir kostn­aði við mynd­ina á Karolina Fund.

Hér að neðan segir Sofia ögn frá mynd­inni og ástæðum þess að hún er stödd hér á landi að fram­leiða mynd­ina.

Hvernig kvikn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„DÓTTIR er um sjálfs­mynd og ég hef alltaf verið að reyna að finna sjálfa mig, alltaf verið í þessum til­vistar­pæl­ingum. Ég held að sjálfs­myndin sé okkur öllum mik­il­væg, sér­stak­lega þegar hún mót­ast af erf­iðri æsku eða geð­rösk­unum. Aðeins með því að horfast í augu við okkur sjálf, sjálfs­mynd okkar, getum við raun­veru­lega lært og orðið betri mann­eskjur. Ég gekk lengi með þessa hug­mynd. Þegar ég kom svo fyrst til Íslands fyrir fjórum árum féll ég í stafi yfir feg­urð og dulúð lands­ins. Ég vissi strax að hér vildi ég búa kvik­mynd­ina til.“

[adspot]

Sofia segir að myndi fjalli um unga konu að nafni Leah sem kemur til Íslands eftir erfið sam­bands­slit.

„Hér kynn­ist hún manni sem er í miklu ójafn­vægi og þjá­ist af geð­hvörfum. Milli þeirra verða miklir árekstrar en á sama tíma sjá þau sig spegl­ast hvort í öðru og að lokum setur mað­ur­inn henni afar­kosti. Ást, þrá­hyggja, and­leg heilsa, ein­angrun og ein­semd eru stef sem koma fyrir. Það má segja að þetta sé saga þar sem Fríða og dýrið mæta Dr. Jekyll og herra Hyde. Þetta er ást­ar­bréf til Íslands. Þetta er allt. DÓTTIR er mjög per­sónu­legt verk en á sama tíma snertir það alla.“

Vefur mynd­ar­innar á Karolina Fund

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár