Nafnlausir höfundar stofna nýtt tímarit

Reykja­vik Review er nýtt íslenskt tíma­rit sem beitir húmor og póli­tík til að draga upp röntgen­mynd af Reykja­vík. Þetta kemur fram á söfn­un­ar­síðu Karolina­fund, en þar standa nafn­lausir höf­undar undir söfnun í þeim til­gangi að fjár­magna útgáf­una.

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, er eitt viðfanga teiknara og höfunda Reykjavík Review.
Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, er eitt við­fanga teikn­ara og höf­unda Reykja­vík Review. Mynd: Aðsend

Nafn­lausu höf­und­arnir segj­ast vera hópur höf­unda og teikn­ara sem meti tján­ing­ar­frelsið ofar öllu. Þeirra mark­mið sé að þýða íslenskan sam­tíma yfir á mynd­mál, og vilja gefa út Reykja­vik Review milli­liða­laust með stuðn­ingi almenn­ings.

Tals­maður hóps­ins segir að hug­myndin að verk­efn­inu hafi sprottið upp úr sam­fé­lags­gerð­inni. „Við lifum í sam­fé­lagi þar sem maður má tala þegar maður segir réttu hlut­ina en ekki þegar maður hefur eitt­hvað að segja. Við erum höf­undar sem áttum það sam­eig­in­legt að halda að við værum með rit­stíflu, en þegar við fórum að ræða þessar “rit­stíflur” kom í ljós að þær voru ekki annað en ótt­inn við að segja röngu hlut­ina. Við vorum orðnir þreyttir á að byrgja inni það sem lá okkur á hjarta, og ákváðum þess í stað að safna áhyggjum okkar saman í eitt tíma­rit þar sem við þyrftum ekki að rit­skoða hugs­anir okkar.“

[adspot]Með því að þýða íslenskan sam­tíma yfir á mynd­mál mynd­ist teng­ingar milli kunn­ug­legra and­lita og við­tek­inna við­horfa. Með því að gera það mun Reykja­vik Review leggja áherslu á sam­eig­in­leg minni okkar allra með því að mynd­gera opin­berar per­sónur og til­einka þeim til­búna frasa. „Per­són­urnar sam­an­standa af stjórn­mála­mönnum, fjöl­miðlum, lista­mönnum, afreks­mönnum og öðrum þjóð­þekktum aðilum, en í bland við sam­tím­ann verða einnig áber­andi per­sónur úr menn­ing­ar­sög­unni dregnar upp; raddir sem berg­mála enn um þjóð­arsál­ina. Með því að tefla saman for­tíð og sam­tíð von­umst við til að ná fram eins konar röntgen­mynd af Reykja­vík, þar sem ímyndir lif­andi og lát­inna manna eru settar í sama sam­hengið. Í grunn­inn erum við þó ólíkir höf­undar með ólíkar skoð­anir, og þar af leið­andi benda mynda­sög­urnar í allar áttir frekar en að miðla ákveð­inni sýn á heim­inn.“

Á söfn­un­ar­síðu Reykja­vik Review geta allir lagt verk­efn­inu lið og fengið prentað ein­tak af bók­inni heimsenda á sér­stökum kjörum, auk ann­arra fríð­inda.

Verk­efnið má finna hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár