Hefur nú fundið sitt eigið „sound“ og safnar fyrir útgáfu á vínyl

Daníel Þor­steins­son semur og flytur raf­tón­list undir lista­manns­nafn­inu TRPTYCH. Hann hefur nú þegar sent frá sér sex plötur á staf­rænu formi en safnar nú fyrir fyrstu vín­yl­út­gáf­unni. Hljóm­borðs­leik­ari The Cure meðal þeirra sem leika með Daníel á plöt­unni.

Svona mun platan „Spawn Apart“ líta út þegar hún verður komin út á vínyl.
Svona mun platan „Spawn Apart“ líta út þegar hún verður komin út á vínyl. Mynd: Aðsend

TRPTYCH er sóló tón­list­ar­verk­efni Daníels Þor­steins­sonar en hann hefur komið víða við, meðal ann­ars sem trommu­leik­ar­inn í Maus og höf­uð­paur elektrónísku hljóm­sveit­ar­innar Sometime. Daníel vinnur sem graf­ískur- og hreyfi­hönn­uður á aug­lýs­inga­stof­unni VORAR.

Daníel hefur sinnt tón­list­inni í þónokkurn tíma og byrj­aði sinn feril í Maus. „Í kringum 1993 þá var ég komin á kaf í rap- og teknótón­list en bara sem hlust­andi og var að daðra við að fá mér trommu­heila og hljóm­borð en ég var shang­hai-aður inn í Maus og fyrir það er ég ævin­lega þakk­látur því þar náði ég að þróa minn trommu­leik og tón­list­ar­sköpun. Í dag eru Maus­ar­arnir enn bestu vinir mínir og ég er hrika­lega stoltur af því sem við gerðum, enda vorum við tryllt band, sér­stak­lega á tón­leikum. Og ég gleymi því aldrei þegar við gáfum út okkar fyrstu plötu, en það verður seint toppað til­finn­inga­lega. En ég er með svip­aða til­finn­ingu fyrir „Spawn Apart“ sem verður sjö­unda útgáfa TRPTYCH.“

Með TRPTYCH hefur Daníel á síð­ustu árum fundið sér sinn eig­inn hljóm. „Síðan ég stofn­aði Sometime 2006, þá hef ég sífellt notið þess meira og meira að taka upp og semja, í Maus þá voru allar tromm­urnar á plöt­unum heil „live“ upp­taka og það er rosa­legt stress fyrir trommu­leik­ara, því ekki eitt slag má vera off. En maður var nú hel­víti þéttur enda oft kall­aður Danni „one-take“ í stúd­íó­inu. Síðan ég stofn­aði TRPTYCH sirka 2015/2016 þá er ég búinn að dæla út plötum. Og það hef ég gert til að fá „closure“ og getað haldið áfram og til að þróa mína tón­list­ar­sköpun og mitt „sound“. Því aldrei hef ég verið í tón­list­ar­sam­starfi eða gert tón­list sem hljómar eins og eitt­hvað annað. Það er hægt að segja margt um Maus, Sometime og TRPTYCH en það verður ekki tekið af þessum hljóm­sveitum að þær eru allar gjör­sam­lega ein­stakar og það er fyrir mig lang mik­il­væg­asta atriðið í tón­list­ar­sköpun.“

Platan „Spawn Apart“ verður fyrsta plata TRPTYCH sem kemur út á föstu formi. „Núna finn ég í mag­anum að það er eitt­hvað virki­lega sér­stakt við þessa plötu og mér finnst í raun­inni þetta vera fyrsta alvöru plata TRPTYCH (þær fyrri komu bara út sem raf­magn á inter­net­inu) og ég veit að ég mun fá sömu til­finn­ingu og þegar Maus gaf út sína fyrstu plötu „Allar kenn­ingar heims­ins… … og ögn meira“ árið 1994, þegar ég og Páll Ragnar Pálsson tón­list­ar­gúru og týpa náðum í okkar fyrstu ein­tök niður í Smekk­leysu og löbbuðum upp Lauga­veg­inn og gátum ekki hætt að hlæja. Það er líka gaman að segja frá því að Roger O’donn­ell sem er búinn að vera hljóm­borðs­leik­ar­inn í The Cure síðan sirka 1987 spilar á „Spawn Apart“, en hann spil­aði síð­ast með mér og Maus á „Lof mér að falla að þínu eyra“ með Maus árið 1997.“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár