Magga Stína syngur Megas ... á vínyl

Til stendur að gefa út tón­leika Möggu Stínu í Eldborg, þar sem hún syngur lög Megasar, út á tvö­faldri vín­yl­plötu. Safnað er fyrir útgáf­unni á Karolina Fund.

Magga Stína hefur lagt stund á tón­list frá unga aldri og hefur í gegnum langan tón­list­ar­fer­il­inn spilað með hljóm­sveitum á borð við Risa­eðl­una, sem var bæði iðin við tón­leika­hald hér­lendis og ferð­að­ist einnig vitt og breitt um heim­inn, Funkstrasse og Jazzhljómsveit Konráðs Bé, polka­sveit­inni Hr. Ingi. R. svo ein­hverjar séu hér nefndar.

Hóf hún svo sinn eigin feril og hefur gefið út eigin tón­list, sem og túlkað ann­arra tón­list inn á fjöld­ann allan af hljóm­plötum.

Hún hefur komið á ótelj­andi tón­leikum í gegnum tíð­ina og má þá ekki gleyma trylltum dans­leikjum áður­nefndrar polka­hljómsveitar hennar, Hr. Ingi. R. og Möggu Stínu sem eru mörgum eft­ir­minni­legir en með þeim söng og skemmti Magga Stína í mörg ár. Hún lagði stund á nám í fiðlu­leik sem barn hjá Helgu Ósk­ars­dóttur og svo tón­smíðar sem full­orðin við LHÍ. Hún hefur unnið sem höf­undur tón­listar og hljóð­mynda við leik­verk, bæði i Borg­ar­leik­hús­inu, hjá Leik­fé­lagi Akur­eyrar og við Nem­enda­leikhúsið.

[adspot]Einnig hefur hún um langa hríð starfað af ástríðu við tónsköpun og tónmennt með börnum, bæði á eigin vegum með tón­list­ar­nám­skeiðum og var tón­mennta­kenn­ari í Barnaskólanum í Reykja­vík og í Vest­ur­bæj­ar­skóla.

Tónlist er ein­fald­lega, inn­tak og alltum­lykj­andi neisti í lífi Möggu Stínu og mun svo verða um ókomna tíð. Nú vinnur hún að því að koma flutn­ingi sínum á lögum Megasar út á vín­yl­plötu.

Hvernig kvikn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Hún kom nú ein­hvern veg­inn alveg kýr­skýr og lógísk í kjöl­far „Magga Stína syngur Megas” – tón­leik­anna sem ég hélt í Eldborg í Hörpu í febr­úar síð­ast­liðnum. Þar fann ég að eitt­hvað ein­stakt gerð­ist í sam­hljómi allra sem komu að, ein­hver galdra­stund átti sér stað sem mér fannst vera ofboð mik­ils virði og mér fannst að hana mætti alveg varð­veita. Vín­yl­plata er jú fal­leg­asta formið og það form sem ég lærði að hlusta á tón­list af, svo það var alger­lega við hæfi að velja útgáfu á tvö­faldri vín­yl­plötu!“

Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Í raun eins og ég sagði áðan þá er þemað kannski jafn ein­falt og að breiða út fagn­að­ar­er­indið um íslenskar tón­smíðar, að þessu sinni tón og texta­smíðar Megasar en það vill til að ég hef fundið mig í þeirri predikun und­an­farin ár.“

Hvers vegna varð tón­list Megasar fyrir val­inu?

„Mér finnst það mjög verð­ugt að túlka tón­list Megasar því hún á sífellt erindi. Hann hefur til að bera tíma­leysi, dýpt og frum­leika í verkum sínum sem gerir mörg laga hans sígild.

Lög sem hann hefur samið jafn­vel fyrir löngu síðan, og þá við lít­inn fögnuð eða skiln­ing nema örfárra áheyr­enda öðl­ast allt í einu áheyrn fleira fólks og þar með bull­andi til­gang. Per­sónu­lega þá er því þannig háttað að ég finn mig í henni.“

Hvernig gengu tón­leik­arnir?

„Það er eitt um þá að segja að þeir voru mér heilög stund, fyrir þær sakir að þar voru saman komnar mjög margar mann­eskjur sem gáfu allt það fagra sem þær áttu til. Tón­list­ar­fólkið allt allt allt. Áheyr­endur allt og það er ekki síður hjart­ans list að njóta og taka inn tón­list en að flytja hana.“

Hvers vegna ætti fólk að næla sér í plöt­una og styðja við verk­efnið?

„Mér fynd­ist það bara ynd­is­legt að fá stuðn­ing sem þennan sem er í raun svo eðli­leg leið, að fólk kaupi sér fyr­ir­fram plöt­una (svo er margt annað líka í boði) og að geta safnað fyrir fram­leiðslu á þess­ari tvö­földu tón­leika­plötu sem inni­heldur tón­leik­ana í heild sinni, myndir og texta, svo jafn­vel fleiri en þeir sem komu fái notið þess sem þar fór fram.“

Hvað er framundan hjá Möggu Stínu?

„Nú er ég að vinna að sönglögum við ljóð íslenskra, nánar til tekið reyk­vískra kven­skálda. Það er alger­lega stór­kost­legt að fá að velt­ast um í ljóð­heimi þeirra, dag­inn langan og stuttan.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár