Sjálfstyrkingarnámskeið með jóga og tónlist um landið fyrir unglinga

Þrjár ungar konur standa á bak­við verk­efnið „Þitt sann­asta sjálf“. Safnað er fyrir því á Karolina Fund.

María Viktoría, Vala Yates og Elena Arn­gríms­dóttir eru þrjár ungar konur sem hafa fetað mis­mun­andi slóðir til þess að við­halda eigin heil­brigði. Þær hafa sett saman sjálf­styrk­ing­ar­nám­skeið fyrir ung­linga með jóga og tón­list. María og Vala settu saman tón­list­ina en Elena setti saman jógað sem sam­anstendur af hug­leiðslu og öndun. Safnað er fyrir nám­skeið­inu á Karolina Fund.

María segir að hug­myndin að verk­efn­inu hafi kviknað þegar hún var í mark­þjálfa­námi hjá Evolvia 2020. „Eitt loka­verk­efnið í okkar námi var að kynna vöru, alvöru eða ímyndun, og selja hópnum. Ég fyllt­ist eld­móði og mundi eftir lang­þráðum draumi mínum sem var að halda sjálf­styrk­ing­ar­nám­skeið. Þetta hafði verið draumur frá 2016 og ég nú læt hann loks­ins verða að veru­leika með góðum vin­konum, Elenu og Völu, sem deila sama draumi! Í nám­inu náði ég ein­stak­lega mikið að tengj­ast mínum eigin kjarna, gildum og til­gangi og langar að gefa það áfram. Ég var svo heppin að finna þær því að þær geta bætt sínum gjöfum við sem gerir nám­skeiðið mun rík­ara.“
[adspot]Aðspurð hvert þema verk­efn­is­ins sé þá segir María að það mætti segja að það væri að tengj­ast sínum innra sann­asta sjálfi og efla vellíðan í leið­inni. „Það verða ýmsar leiðir farnar að því eins og könnun á lífs­gildum, draumum, styrk­leika­vinna, sjálfs­ást, núvit­und og sjálfs­sam­þykki. Einnig munum við fá rými til að deila okkar sýn og sann­leika með öðrum.“

Það sé mik­il­vægt vegna þess að allir eigi það skilið að fá að vera þeir sjálfir, vera ham­ingju­samir og líða vel í eigin skinni. „Við höfum allar lært þessi tæki og tól sem að eru áhrifa­rík og umbreyt­andi. Okkur finnst allir eiga það skilið að njóta góðs af þeim og ekki síst unga kyn­slóðin.“

Hægt er að skoða og styðja við verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár