Ljóð til styrktar Konukoti og Frú Ragnheiði

Safnar er fyrir ljóða­bók­inni „Skugga mæra – skjá­skot af jaðr­inum“ á Karolina Fund.

Lilja Tryggva­dóttir, sjálf­boða­liði í Konukoti, stefnir að því að styrkja Konukot og Frú Ragn­heiði með sölu ljóða­bókar. Ljóða­bókin sprettur sem úrvinnslu­ljóð úr sjálf­boða­lið­a­r­eynsl­unni í Konukoti. Konukot er athvarf fyrir konur í hús­næð­is­vanda rekið af Rótinni en Frú Ragn­heiður er verk­efni rekið af Rauða Kross­inum sem veitir heil­brigð­is­þjón­ustu og nála­skipti­þjón­ustu. Báðir staðir leggja ríka áherslu á skaða­minnkun og aðstoða fólk sem enn í dag er jað­ar­sett í sam­fé­lag­inu. Það er mikil vakn­ing í þessum málum búin að eiga sér stað á síð­ustu árum.

Reykja­vík­ur­borg styrkir rekst­ur­inn en hluti af rekstr­inum hjá bæði Konukoti og Frú Ragn­heiði er rek­inn af sjálf­boða­liðum og fjár­fram­lögum úr söfn­unum og gjöfum. Því er fjár­mögnun mik­il­væg og von Lilju að þetta verk geti veitt silf­ur­kant inn í sum­arið og haustið. Í bók­inni er magnað sam­spil ljóða og mynda en bók­ina mynd­skreytir Ingi­björg Huld Hall­dórs­dóttir. Mynd­irnar eru gerðar eftir lestur ljóð­anna og heim­sókn í Konukot og end­ur­spegla túlkun lista­manns­ins á til­finn­ing­unum í ljóð­unum og umhverf­inu í Konukoti. Ingi­björg Huld hefur haldið sýn­ingar á verkum sínum í Danmörku og á Íslandi. Verkin í bók­inni „Skugga mæra – skjá­skot af jaðr­inum“ eru einnig glæsi­leg stök og eru öll til sölu hjá lista­mann­inum. Útgáfa bók­ar­innar er fjár­mögnuð á Karolina Fund og söfn­unin þar var að hefj­ast. Bókin er kynnt bæði á facebook og instagram undir nafn­inu.

[adspot]Lilja seg­ist alltaf hafa notað ljóða­gerð, eða ljóða­pár ofan í skúffum, sem úrvinnslu­að­ferð í líf­inu. „Fyrir um sex árum byrj­aði ég sem sjálf­boða­liði í Konukoti og nokkrum árum seinna sá ég að það var að vaxa fram efni í ljóða­bók ofaní skúff­unni. Þar sem ég hafði svo til enga reynslu af heim­il­is­leysi, fíkni­vanda og geð­rænum vanda áður en ég byrja í Konukoti var alveg nóg af nýjum hlutum til að vinna úr. En upp úr því kom hug­myndin að setja saman bók, nýta hana til að gefa smá til­baka og þakka fyrir allt það góða sem sjálf­boða­lið­a­r­eynslan hefur gefið mér. Það er líka búinn að vera draumur að birta eitt­hvað af pár­inu í skúff­unni, en stundum þarf að ýta við sjálfum sér út í svona ævin­týri og þá er gott að vera með skýran til­gang. Gerð ljóða­bókar er mikið lær­dóms­ferli og það eru ófáir sem hafa stutt við mitt. Ég hef fengið bæði form­legan og óform­legan yfir­lestur nokkrum sinnum og í hvert skipti hefur bókin tekið stökk. Takk allir sem hafa gefið af sér, peppað og sagt mér til. Án ykkar væri þetta allt enn ofaní skúffu!“

Ljóðin eru sprottin úr reynslu Lilju sem sjálf­boða­liði í Konukoti. „Ég er bæði að skila til­finn­ingum mínum frá mér á blað og einnig að reyna að skilja betur stöð­una, setja mig í spor gesta og aðstand­enda og sjá heim­inn út frá þeim. Það eru skjá­skotin sem ég vísa í með seinni helm­ing tit­ils­ins á bók­inni, skjá­skot af jaðr­inum. Sterkt þema í bók­inni er því heim­il­is­leysi og allt það sem getur tengst því, svosem áfalla­saga, fíkni­vandi, geð­rænn vandi og bara það að vera stundum svo­lítið einn í til­ver­unni. En það eru einnig fal­legar stundir í og við Konukot, sam­staða og sam­kennd jafn­vel þó það taki á að vera nán­ast alls­laus og jað­ar­settur í sam­fé­lag­inu. Það er svo mik­il­vægt að muna að við erum öll í þessu saman. Við erum öll að upp­lifa margar af þessum sömu til­finn­ingum og eigum margt sam­eig­in­legt þrátt fyrir að vera kannski á mis­mun­andi stað í líf­inu.“

Hún segir að það að ágóð­inn af bók­inni renni beint inn í starf Konukots og Frú Ragn­heiðar sé henni eðli­legt og mik­il­vægt þar sem ekk­ert ljóð­anna væri til án þeirra. „Þakk­lætið gagn­vart fólk­inu sem sækir þjón­ustu þangað og starfar þar er óend­an­legt. Það kennir manni svo margt um lífið og til­ver­una að kynn­ast fólki út fyrir sína eigin litlu „jólakúlu“.“

Hægt er að styrkja söfn­un­ina hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár