Sálfræðitryllir um Rósu í flóknum veruleika geðveikinnar

Rósa lifði lífi sem hefði getað orðið eðli­legt. Það tekur hins vegar krappa beygju niður á við eftir frá­fall nokk­urra vikna dóttur hennar. Þetta er efni­viður nýj­ustu bókar Guðrúnar Sæmund­sen. Hún safnar nú fyrir útgáfu hennar á Karolina fund.

Kápa „Rósu“.
Kápa „Rósu“. Mynd: Aðsend

Guðrún Sæmund­sen stefnir nú að útgáfu á sinni þriðju bók, sál­fræði­tryll­inum „RÓSA“.

Áður hefur hún gefið út „Hann kallar á mig“ (2015) og „And­stæður“ (2018). Þess má geta að báðar bæk­urnar eru á Storytel og var „Hann kallar á mig“ fyrr á þessu ári til­nefnd til Íslensku hljóð­bóka­verð­laun­anna 2021, Storytel Awards.

Guðrún er 39 ára, tveggja barna móðir. Hún starfar á kvenna­deild Land­spít­al­ans og unir sér vel þar enda verk­efnin fjöl­breytt og krefj­andi og sam­starfs­fólkið skemmti­legt; „fag­menn fram í fing­ur­góma“.

Árið 2009 útskrif­að­ist Guðrún með masters­gráðu í alþjóða­við­skiptum frá Grenoble Graduate School of Business eftir að hafa lokið námi í við­skipta­fræði við Háskól­ann í Reykja­vík. Hún er jafn­framt með lög­gild­ingu í verð­bréfa­miðlun og hefur auk þess tekið fjölda nám­skeiða til að auka þekk­ingu sína og hæfni á hinum ýmsu sviðum. Eftir að hafa gefið út tvær bækur þá lét hún verða af því á síð­asta ári að sitja tvö
nám­skeið í skáld­legum skrifum í End­ur­menntun Háskól­ans.

Guðrún segir að hug­myndin að sög­unni hafi komið þegar hún var að ljúka við bók númer tvö, um mitt ár 2018. „Sagan er gjör­ó­lík því sem ég hef skrifað áður, en það er einmitt það sem ég vil gera; prófa mig áfram með mis­mun­andi efni þótt stíll­inn sé í grunn­inn sá sami. Hvernig nákvæm­lega ég fékk hug­mynd­ina get ég ekki tengt við eitt­hvað eitt. Hún bara kom, eins og aðrar hug­myndir. Átti að vísu ekki að vera sál­fræði­tryllir, heldur meira í spennu­sagna­stíl, en svo breytt­ist það þegar ég byrj­aði að útfæra hug­mynd­ina. Ég skrifa það sem kemur í hug­ann hverju sinni. Nákvæm­lega það sem mig langar til að skrifa um. Að fólki líki það sem ég skrifa er algjör bónus.

Að eðl­is­fari er ég jákvæð og róleg, mér finnst gaman að gant­ast og hlæja. Þess vegna eru bæk­urnar gjör­ó­líkar per­sónu­leika mínum; fremur dökkar, grófar og óhugna­legar á köflum. Þegar ég hugsa um það sem ég hef skrifað þá finnst mér eins og ég hafi tekið fyrir eitt­hvað sem veldur ótta hjá mér sjálfri. Að það sem ég ótt­ast sjálf skíni í gegnum bæk­urnar. Þær hreyfa vissu­lega við les­and­anum, enda á það að vera þannig. Sjálf vil ég
lesa það sem vekur hjá mér hinar ýmsu til­finn­ingar og fær mig til að hug­leiða les­efnið.“

[adspot]Aðal­sögu­per­sóna sög­unnar, Rósa, lifir í flóknum veru­leika geð­veik­innar, að sögn Guðrúnar. Líf sem hefði getað orðið eðli­legt, tekur krappa beygju niður á við eftir frá­fall nokk­urra vikna dóttur hennar. „Sögu­þráð­ur­inn byggir á þess­ari lífs­reynslu Rósu og hve erfitt hún á með að horfast í augu við for­tíð­ina. Þegar fyrrum sam­býl­is­maður hennar og barns­faðir er svo myrtur tekur við atburða­rás sem hún hefur engin tök á. Með rétt­ar­stöðu grun­aðs hættir hún smám saman að treysta fólk­inu í kringum sig. Dul­ar­fullir atburðir ger­ast og reikar les­andi milli hins raun­veru­lega og hug­ar­heims Rósu, sem sjálf fer að efast um sak­leysi sitt. Hún á hvergi höfði að halla, hvorki hjá núver­andi maka og hvað þá Díönu, æsku­vin­konu sinni. Það er eitt­hvað við Díönu og nýfætt barn hennar sem truflar Rósu óstjórn­lega mikið. Leit Rósu að svörum leiðir les­and­ann að því sem ósagt er og um leið á slóð kald­rifj­aðs morð­ingja.“

Guðrún segir að það sé frá­bært að til sé vett­vangur fyrir lista­menn að hrinda verk­efnum úr vör líkt og á karolina­fund.com. „Þetta er algjört „win-win“; þarna fá lista­menn tæki­færi til að gefa út og klára það sem þeir hafa skapað á sama tíma og þeir sem styrkja verk­efnið fá eitt­hvað
fyrir sinn snúð. Það er ekk­ert auð­velt að trana sér fram sem rit­höf­undur og eflaust eru fleiri að upp­lifa það sama. Þá skiptir svo miklu máli, þegar maður brennur fyrir því að klára það sem maður byrj­aði á, að fá fjár­magn til að verk­efnið verði að veru­leika. Ég gaf út fyrstu bók­ina mína á karolina­fund.com og það gekk alveg frá­bær­lega. Við útgáfu bókar númer tvö var ég með útgef­anda og mér fannst það ekki ganga eins vel. Þess vegna finn ég mig knúna til að gefa út þriðju bók­ina sjálf. Það er marg­falt meiri vinna, en sú vinna er bæði skemmti­leg og lær­dóms­rík. Ég er til í slag­inn“.

Hér er hægt að skoða og taka þátt í söfn­un­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár