„Var amma einu sinni 6 ára?“

Óli Schram safnar nú fyrir Barna­barna­bók­inni á Karolina Fund.

Óli með barnabörnunum.
Óli með barna­börn­unum. Mynd: Karolina Fund

Óli Schram er afi níu barna­barna og saknar þess að hafa ekki getað umgeng­ist þessi kríli þegar hann vill. Og þau veigra sér við heim­sóknir sjálf, eng­inn vill vera valdur af smiti. Þó barnið sé á unga aldri og hafi ekki hug­mynd um hvað sé í gangi vex for­vitni þess með aldr­inum og áhug­inn kemur. Þá gæti gamla fólkið verið gengið og til lít­ils að ætl­ast.

Hefur Óli því brugðið á það ráð að búa til bók sem kall­ast Barna­barna­bókin því hún endar í eigu barna­barns­ins. Bókin er ætluð sem gjöf frá for­eldri eða barn­inu sjálfu til ömmu eða afa. Þau fylla út og skýra út og barnið veit meira um þau. Óli safnar nú fyrir útgáfu á Karolina Fund.

Í lýs­ingu á bók­inni kemur fram að hún lýsi og til­taki atvik í ævi gamla fólks­ins sem verði því meiri ger­semar sem árin líða svo ekki sé talað um frá­föll ömmu og afa. Bókin inni­heldur um 140 spurn­ingar og með auðu plássi þar undir fyrir svörin auk síðum fyrir myndir af við­kom­andi. Bókin er sögð upp­lögð sam­teng­ing á COVID-tímum, þeim öldnu til upp­rifj­unar og barni til ununar.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Hug­myndin kom til mín þegar ég fékk svona (útlenska) bók í hend­urnar sjálfur. Ég hafði afskap­lega gaman af því að rifja upp, muna og leita svara við útfyll­ingu. Þær stundir tókum mig á tíma­flakk svo um mun­aði, aftur í barn­æsku, í gegnum Bítla­tíma­bilið, útvarps­frjáls­ræði, ferða tæki­færin og þegar sím­inn kom.

Pabbi minn sál­ugi, fæddur 1912 svar­aði spurn­ing­unni um hvað hefði verið mesta fram­fara­spor í hans huga þegar hann liti aftur til þró­unar eða tækni­bylt­ingar. Hann sagði: „Þegar gúmmí­skórnir komu.“ Ég geri fast­lega ráð fyrir því að eng­inn nema þeir sem fæddir eru í kringum síð­ustu alda­mót skilji þetta svar hans.“

Óli vildi í COVID-ein­angrun að unnt væri að nálg­ast börnin eða öllu heldur að fá barna­börnin til að nálg­ast gamla fólkið.

„Með útfyll­ingu, sem er ákaf­lega skemmti­legt verk­efni, öðl­ast barnið meiri inn­sýn í líf þeirra öldr­uðu. Hver vildi ekki eiga svona bækur frá ömmum sínum og öfum? Besta vitnið um gljúfrið milli kyn­slóða er þessi sak­lausa spurn­ing 6 ára stúlku til mömmu sinnar: „Var amma einu sinni 6 ára?“.“

Hér er hægt að skoða og styrkja verk­efnið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár