Hörður Torfason flytur baráttutengda söngva sína

Í mars á næsta ári verða 50 ár liðin frá því að Hörður Torfason gaf út fyrstu plötu sína. Hann ætlar að minn­ast þess áfanga með því að gefa út söngva sem eiga það sam­eig­in­legt að vera bar­áttu­tengdar vanga­veltur.

Flestir þekkja Hörð Torfason lík­lega sem tón­list­ar­mann, trú­badúr sem hefur verið áber­andi á því sviði í ára­tugi. Hann hefur samið og sungið lög sem notið hafa vin­sælda, gefið út plötur og haldið ótelj­andi tón­leika.

Þrátt fyrir aug­ljósa hæfi­leika á tón­list­ar­svið­inu liggja rætur Harðar þó í leik­list­inni, nokkuð sem allir þeir þekkja sem hafa séð hvernig hann fléttar saman leik­list og tón­list á tón­leikum. Þar leikur hann á strengi gleði og gáska eða trega og sorgar og áhorf­endur sitja ýmist hugs­andi og þegj­anda­legir, syngj­andi með, eða skelli­hlæj­andi.

Hörður hefur oft verið nefndur nestor íslenskra trú­badúra — sá sem ruddi braut­ina, fór fyrstur um landið sem syngj­andi skáld, söngvaskáld eins og hann kaus að kalla starf sitt fyrir óra­löngu. Hann var þó ekki bara syngj­andi skáld heldur boð­beri nýrra við­horfa þar sem hann nýtti tækni og anda sviðs­lista til að skapa umgjörð og stíg­andi fyrir sög­urnar sem hann segir okkur með tónum og textum, sögur af sér, sögur af okkur og okkar sam­fé­lagi með mann­rétt­indi sem áherslu­at­riði, en er hann marg­verð­laun­aður fyrir mann­rétt­inda­bar­áttu sína og list.

[adspot]Hörður hefur starfað sem sjálf­stæður lista­maður síðan 1974 en það þýðir að hann hefur enga styrkt­ar­að­ila á bak­við sig. Flestir eru sam­mála um að Hörður hefur aldrei farið um með hávaða og látum kyrj­andi bar­áttu­söngva og póli­tísk slag­orð heldur hefur hann verið lág­stemmdur og áhrifa­mik­ill. Hér bregður þó öðru­vísi við því á plöt­unni DROPAR flytur hann bar­áttu­tengda söngva sína en um þá segir hann: „Þar sem 50 ár verða liðin í mars árið 2021 frá því að fyrsta platan mín kom út, og rétt­inda­bar­átta hefur ein­kennt feril minn, fannst mér kjörið að minn­ast þessa áfanga með því að gefa út nokkra söngva sem eiga það sam­eig­in­legt að vera bar­áttu­tengdar vanga­veltur. Almennt hef ég ekki sungið marga bar­áttu­söngva á ferl­inum heldur kosið að láta verkin tala á því sviði. Þegar ég hóf bar­áttu mína árið 1975 á jafn litlu landi og Ísland er, varð sýni­leik­inn sterk­ari en öll orð.“

Hörður seg­ist oft hafa haft það til siðs að fara í hljóð­ver og taka upp tug söngvaskissa í einni lotu. „Ein taka á söng og ekk­ert lagað eftir á. Síðan hef ég valið úr þeim fyrir heil­stæða plötu. Síð­ast­liðið vor fór ég í hljóð­ver Vil­hjálms Guð­jóns­sonar til að taka upp nokkrar söngvaskissur. Þá bar svo við að Villi finnur upp­tökur frá 1 júlí 2010. Þetta voru 16 söngvar, allir fjöll­uðu þeir um bar­áttu og ég hafði hreint út sagt stein­gleymt þessum upp­tökum. Kannski engin furða þar sem ég var stuttu seinna kom­inn á ferð og flug víða um heim­inn með fyr­ir­lestra um starfs­að­ferðir mínar. Það sér ekki fyrir end­ann á þeirri iðju.

En í sumar tók ég upp­tök­urnar með mér heim og hlust­aði vel á söngvana, valdi úr þeim til hljóð­blönd­unar og stefni nú að því að koma þeim út á plötu sem ég kalla DROPAR.“

  1. hlust­aðu á mig
  2. bar­áttu­söngur
  3. gjaldið
  4. kuldi
  5. valdið er okkar
  6. hvað varðar mig um þig ver­öld?
  7. venju­legur maður
  8. þess­vegna verð ég kyrr
  9. landi minn
  10. til hvers?
  11. upp­gjörið
  12. nöld­ur­skjóða

Hörður segir þessa söngva falla að þeirri hug­mynd sem hann var með í koll­inum um að senda frá sér 3-4 verk á þessu afmæl­is­ári þegar hann fagnar 75 ára aldri. „Verk sem myndu kall­ast á við bækur mínar Bylting og Tabú. Ég byrj­aði á því að senda frá mér bók­ina „75 sungnar sögur“ þann 1 ágúst í til­efni þessa að þá voru nákvæm­lega 50 ár frá því að ég hóf að beita mér í mann­rétt­inda­bar­áttu. Fram að því hafði ég aðeins verið að þreifa fyrir mér sem lista­maður. Þarna öðl­að­ist ég djúp­stæðan til­gang í líf­inu og fékk að launum list­rænt frelsi.

Ég velti útgáfu­málum plöt­unnar fyrir mér og fann Karolina Fund. Það var rétta lausnin. Ég hafði kynnst slíkum fjár­öfl­un­ar­leiðum á ferða­lögum mínum sér­stak­lega á Nýja Sjálandi þar sem komin er löng og góð reynsla á þessa fjár­mögn­un­ar­að­ferð. Karolina Fund er snöll lausn og á örugg­lega eftir að fara vax­andi í fram­tíð­inni.“

Vinyl­platan DROPAR verður gefin út í 250 ein­tökum og verður ekki sett á tón­list­ar­veitu.

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár