Plata sem undirstrikar tengsl hugleiðslu og bænar

Hugarró er fyrsta sóló­plata Mar­grétar Árna­dóttur söng­konu og söng­kenn­ara. Hún safnar fyrir útgáfu hennar á Karolina Fund.

Hugarró er geisla­diskur með 11 vel völdum bæna­lögum sem hafa verið útsett með það fyrir augum að ná fram ákveðnum hug­leiðslu­blæ og þannig und­ir­strika tengsl hug­leiðslu og bænar. Hugarró er fyrsta sóló­plata Mar­grétar Árna­dóttur söng­konu og mun hluti af ágóð­anum renna til Píeta sam­tak­anna á Akureyri, sem sinna for­varn­ar­starfi gegn sjálfs­vígum og sjálfs­skaða. Um útsetn­ingar og hljóð­færa­leik sá Kristján Edel­stein gít­ar­leik­ari. Kjarninn hitti Margréti og ræddi við hana um þetta spenn­andi verk­efni.

Hún seg­ist hafa starfað lengi sem klass­ísk söng­kona og haldið marga ljóða­tón­leika og oftar en ekki valið sér eitt­hvað þema til að vinna út frá. „Mig hefur lengi dreymt um að gera upp­tökur en lang­aði þá til að vinna með eitt­hvað ólíkt því sem ég hef unnið með hingað til. Fyrir mér hafa bæn og hug­leiðsla alltaf verið mjög tengd fyr­ir­bæri. Þegar ég fór að velta því meira fyrir mér fékk ég þá hug­mynd að gera teng­ingar þarna á milli með því að láta útsetja sálma í hug­leiðslu­stíl. Ég fékk Kristján Edel­stein gít­ar­leik­ara í lið með mér og við tókum upp nokkra sálma og bæna­lög við hans und­ir­leik. Fyrsti sálm­ur­inn sem við tókum upp var ,,Vertu Guð faðir” eftir Jón Leifs. Ég varð fyrir miklum hug­hrifum þegar ég heyrði útsetn­ingu Krist­jáns og sá að hann hafði lagt mik­inn metnað og alúð í verk­efnið. Útsetn­ingin var alveg dásam­leg. Hann not­aði fjöld­ann allan af hinum ýmsu strengja­hljóð­færum: Langspil, Strumstick, Zither, Stál­strengjagítar, Barítón Klass­ískan gítar og Monochord. Þannig bjó hann til alveg ein­stakan hljóð­heim sem ég heill­að­ist af.

[adspot]Þegar ég átt­aði mig á því, að dag­inn sem við tókum þennan fyrsta sálm upp, voru nákvæm­lega 20 ár síðan sam­býl­is­maður minn og barns­faðir tók sitt eigið líf, þá vissi ég að þetta væri verk­efni sem ég vildi gera í minn­ingu hans. Um leið og ég minn­ist hans með þess­ari útgáfu langar mig að vekja athygli á Píeta sam­tök­unum og mun hluti af ágóða disks­ins, renna til þeirra.“

Þemað unnið er með á plöt­unni er hug­leiðsla og bæn. „Geisla­disk­ur­inn hefur að geyma 11 sálma og bæna­lög útsett í flæð­andi og róandi ambient stíl með söng og minimal­ískum und­ir­leik hinna ýmsu strengja­hljóð­færa. Þegar fólk gengur í gegnum erf­ið­leika er oft líkt og hug­ur­inn hætti að starfa rétt. Hugsanir koma í belg og biðu og erfitt reyn­ist að beisla þær. Í kjöl­farið á fólk oft erfitt með að hafa stjórn á líðan sinni og upp­lifir ef til vill eirð­ar­leysi, ein­beit­ing­ar­skort, kvíða, ótta, dep­urð, pirr­ing o.fl. Þetta getur haft alvar­legar afleið­ingar ef ekk­ert er að gert. Hug­leiðsla er góð leið til að þjálfa hug­ann og hefur hjálpað mörgum við að takast á við erf­ið­leika í líf­inu. Að iðka hug­leiðslu getur bætt and­lega heilsu og dregið úr streitu og áhrifum áfalla og erf­ið­leika. Hug­leiðsla og bæn eiga margt sam­eig­in­legt. Þegar við biðjum erum við í raun að setja fókus á ákveðnar hugs­anir, orða þær og þannig koma skipu­lagi og ró á hug­ann. Margir leita til bæn­ar­innar þegar erf­ið­leikar steðja að og senni­lega hefur bænin verið eitt að fáum verk­færum sem fólk fyrr á öldum hafði til að takast á við áföllin í líf­inu; barna­missi, maka­missi, upp­skeru­brest og ham­farir. Bænin á sér því djúpar rætur í menn­ing­unni. Að þjálfa hug­ann, líkt og með iðkun hug­leiðslu eða bæna­gjörð, hefur hjálpað mörgum við að takast á við erf­ið­leika og ná tökum á hug­anum og hugs­unum og þar með ná betri stjórn á and­legri heilsu og líðan. Því er útgáfa á efni sem þessu ekki síst við­eig­andi á þessum for­dæma­lausu tímum sem við lifum á.“

Hluti ágóð­ans kemur til með að renna til Pieta sam­tak­anna. Margrét segir þau vera að gera stór­kost­lega hluti fyrir fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir og aðstand­endur þeirra í Reykja­vík og víða um heim. „Í Reykja­vík bjóða Píeta sam­tökin upp á allt að 15 við­töl við sál­fræð­ing fyrir þá sem eru að glíma við sjálfs­vígs­hugs­anir. Einnig bjóða þau upp á við­töl fyrir aðstand­endur. Með­ferðin er skjól­stæð­ingum að öllu gjald­frjáls.

Starf þeirra er því gíf­ur­lega mik­il­vægt sam­fé­lag­inu, sér­stak­lega á þessum tímum þar sem sjálfs­vígum fer fjölg­andi.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár