Ketókokkur segir lífið of stutt til að borða vondan mat

32 ára mat­ar­blogg­ari sem sér­hæfir sig í ketó­genísku fæði missti vinn­una hjá Icelandair í sumar og ákvað í kjöl­farið að gera út upp­skrift­ar­bók. Hún safnar fyrir útgáfu hennar á Karolina Fund.

Hanna Þóra Helgadóttir.
Hanna Þóra Helga­dóttir. Mynd: Aðsend

Hanna Þóra Helga­dóttir er 32 ára mat­ar­blogg­ari sem hefur verið að sér­hæfa sig í ketó­genísku matar­æði. Hún hefur ákveðið að gefa út sína fyrstu upp­skrifta­bók fyrir jólin og er að safna fyrir prent­kostn­aði á Karolina Fund.
Hanna Þóra segir að hug­myndin að verk­efn­inu hafi komið til sín þegar hún missti vinn­una sem flug­freyja hjá Icelandair í sumar. Þá hafi hún farið að hugsa um hvaða draumar hefðu verið látnir sitja á hak­anum und­an­farin ár sökum anna. „Þá kom þessi hug­mynd strax upp í koll­inn á mér. Þetta var í raun full­kom­inn tími til að láta gamla drauma ræt­ast og henda sér í djúpu laug­ina.“

[adspot]Hún hafði sjálf verið á ketó í tvö ár nán­ast upp á dag og segir að sér hafi aldrei liði betur. „Áður en ég breytti um matar­æði fannst mér ég vera komin í smá öng­stræti varð­andi aukakíló og leið hrein­lega ekki vel, hvorki lík­am­lega né and­lega. Ég var farin að fá lið­verki, upp­lifa and­þyngsli, bak­flæði, var alltaf þreytt og orku­laus. Í dag er ég marg­falt létt­ari bæði á lík­ama og sál og orkan sem fylgir er engu lík. Mér fannst til­valið að nýta þessa orku og leyfa öðrum að njóta um leið.“

Allir geta nýtt sér upp­skrift­irnr hennar, óháð því hvort sem þeir eru á ketó eða ekki, en þær eiga þær sam­eig­in­legt að vera allar sykur og hveiti­lausar.

Hanna Þóra segir að bókin ætti líka að vera til­valin jóla­gjöf, enda sé alltaf gaman að fá harða pakka og góða bók í jóla­gjöf. „Ég segi alltaf að lífið sé of stutt til að borða vondan mat og ég stend við það á hverjum ein­asta degi. Ég vil hafa upp­skrift­irnar ein­faldar og þægi­legar og ekki með of flóknum inni­halds­efnum. En þær

verða að vera góðar!“

Hér er hægt að taka þátt í verk­efn­inu og eign­ast ein­tak af bók­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið undanfarið ár