We Guide – tímarit fyrir fagfólk í ferðamennsku

Þrír leið­sögu­menn ákváðu að stofna tíma­rit sem er sér­stak­lega ætlað fólki í ferða­þjón­ustu í stað þess að sitja aðgerð­ar­laus á meðan að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn gengur yfir og ferða­menn geta farið að snúa aftur til lands­ins.

Mynd: Samsett
Mynd: Samsett Mynd: Elín Esther Magnúsdóttir, Kaśka Paluch og Davíð Arnar Runólfsson sem mynda ritstjórn We Guide.

Þegar Covid-19 skall á störf­uðu Davíð Arnar Run­ólfs­son, Elín Esther Magn­ús­dóttir og Kaśka Paluch sem leið­sögu­menn.

Eins og margir aðrir misstu þau vinn­una en von­ast til að geta farið að leið­segja aftur innan skamms. Frekar en að sitja aðgerð­ar­laus þangað til ákváðu þau að sam­eina krafta sína og gefa út veftíma­rit sem er sér­stak­lega ætlað fólki sem starfar í ferða­þjón­ustu á Íslandi.

Elín Esther segir þeim finn­ist öllum mjög gaman að vinna í ferða­þjón­ustu, en þegar gest­irnir voru farnir frá land­inu vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins litu þau ein­fald­lega í eigin barm og hugs­uðu um hvað annað þau gætu gert. „Okkur lang­aði að vera áfram við­loð­andi ferða­þjón­ust­una, en höfum öll líka fyrri starfs­reynslu sem gæti nýst við fjöl­miðla. Hví þá ekki að gera skemmti­legt tíma­rit fyrir þau fjöl­mörgu sem vinna við ferða­þjón­ustu um allt land, en hafa í raun ekki mikla teng­ingu hvort við annað? Við trúum því að gest­irnir muni koma aftur, og okkur langar að taka þátt í að skapa góða stemm­ingu meðal þeirra sem taka á móti þeim.“

[adspot]Davíð segir að þema verk­efn­is­ins sé í raun að efla tengsl milli þeirra sem vinna í fremstu röð í þjón­ustu við ferða­menn, ásamt því að veita þeim upp­lýs­ingar sem gagn­ast þeim í starfi. „Þarna erum við að tala um mörg ólík störf; leið­sögu­menn, bíl­stjóra, hót­el­starfs­fólk, upp­lýs­inga­mið­stöðvar, land­verði, sölu­menn ferða og svo fram­vegis. Við viljum efla tengslin milli þess­ara hópa. Auðvitað er svo stefnan að hafa þetta skemmti­legt líka.“

Kaśka von­ast til þess að fyrir utan að vera gott blað með áhuga­verðum greinum verði We Guide í fram­tíð­inni vett­vangur sem leiði saman starfs­fólk í ferða­þjón­ustu. „Við erum í mörgum stétt­ar­fé­lögum, í mis­mun­andi störfum, en við erum öll að spila á sama velli. We Guide gæti orðið eins konar sam­komu­staður fyrir okkur, bæði á net­inu og utan þess.“

Hægt er að styðja við verk­efnið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár